Lilja sendir Frökkum samúðarkveðjur: „Biðjum fyrir þeim sem um sárt eiga að binda“

Hátt í 100 manns hafa látið lífið vegna árásarinnar í Nice.

Lilja Alfreðs­dóttir utan­ríkis­ráðherra sendi í dag samúðar­kveðju til Jean-Marc Ayrault, utan­ríkis­ráðherra Frakk­lands, vegna árásarinnar í Nice þar sem minnst 84 létust og yfir 100 slösuðust, þar af 18 lífs­hættulega. Árásar­maðurinn, Mohamed Lahouaiej Bouhlel, var skotinn til bana af lögreglu, en hann var 31 árs gamall Nice-búi ættaður frá Túnis. 


„Það var skelfilegt að fá fregnir af fjölda óbreyttra borgara sem lét lífið við hátíðarhöld á þjóð­hátíðardegi Frakk­lands í Nice í gær. Þessi hryllilegu voðaverk beindust að frönsku þjóðinni og á sama tíma einnig að þeim gildum sem við öll höldum í heiðri - frelsi, jafnrétti og bræðra­lagi,“ segir í samúðar­kveðjunni frá Lilju. „Ég færi þér og frönsku þjóðinni mínar innilegustu samúðar­kveðjur. Við hugsum til og biðjum fyrir þeim sem um sárt eiga að binda.“


Utan­ríkis­ráðuneytið sendi út frétta­tilkynningu á tólfta tímanum þar sem því er komið á framfæri við Íslendinga í Nice að Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning vegna atburð­anna. Hjálpar­sími Rauða krossins er 1717 og svara þjálfaðir og reynslu­miklir sjálfboða­liðar símtölum. Ef hringt er erlendis frá er númerið +3545801710.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár