Fjársterkir aðilar og jafnvel ríki fjármagni hús stofnunar Ólafs Ragnars

Ólafur Ragnar Grímsson, fyrr­verandi forseti Íslands og stofnandi Hringborðs Norðurslóða, segir að ekki sé búið að fjármagna húsið í Vatnsmýri sem til stendur að heiti eftir honum. Samkvæmt Ólafi Ragnari mun fjár­magnið koma frá aðilum sem vilja vera með aðsetur í húsinu. Í kynningar­bæklingi kemur fram að efnafólk og jafnvel erlend ríki geti fjár­magnað verkefnið og látið nefna hluta bygg­ing­ar­innar eftir sér.

Geta fengið sali eða herbergi nefnd eftir sér
Geta fengið sali eða her­bergi nefnd eftir sér Í kynn­ing­ar­bæk­lingi um húsið í Vatns­mýr­inni segir að ein­stak­lingar, fyr­ir­tæki og jafn­vel ríki getið fengið rými í hús­inu nefnd eftir sér. Húsið á að vera kennt við Ólaf Ragnar Grímsson, fyrr­ver­andi for­seta Íslands og stofn­anda Hring­borðs Norð­ur­slóða.

Ólafur Ragnar Grímsson, fyrr­verandi forseti Íslands og stofnandi Hringborðs Norðurslóða, segir að bygging húss sem til stendur að byggja í Vatns­mýrinni og hýsa á skrif­stofur hugveitu hans um Norðurslóðir, hafi ekki verið fjár­mögnuð. Því liggi ekki fyrir hver greiði fyrir byggingu hússins, sem á að vera 20 til 30 þúsund fermetrar að stærð. 

„Þau áform eru nú bara enn þá á vinnslu­stigi en hins vegar hafa Reykja­víkurborg og háskólinn gengið frá þessari lóð. Ætlunin er að þetta verði alþjóða­miðstöð þar sem stefnt verður að nýsköpun og umræðum um stefnu­mótun í vísindum og rann­sóknum með þátttöku fjölmargra aðila víða að um heiminn. En þetta form er á þessu stigi í mótun og mun taka á sig mynd á næstu 1 til 2 árum,“ segir Ólafur Ragnar, sem verið hefur í forsvari fyrir Hringborð Norðurslóða síðastliðin níu ár.  

Hugmyndin forsætisráðherra

Ólafur Ragnar segir aðspurður að hugmyndin að húsinu …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • I
    Ilmu skrifaði
    Þetta egotripp samfélag er ófært um að einu sinni ímynda sér að það vaki eitthvað annað fyrir fólki en að koma sjálfu sér á framfæri ... og við eigum það þessum vonlausu "fyrirmyndum" að þakka.
    0
  • Ásgeir Överby skrifaði
    Það er ósiður að kenna dauða hluti við tilteknar persónur, bæði lífs og liðna. Sovétríkin sálugu höfðu af því slæma reynslu.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár