Vaxtahækkanir Seðlabankans halda áfram

Vextir Seðla­bankans hækka um 0,25 prósentu­stig í dag og verða 5,75 prósent. Þetta er enn ein vaxta­hækkunin sem peninga­stefnu­nefnd bankans kynnir í baráttu við verðbólgu. Hún hefur þó hjaðnað að undan­förnu.

Vextir hækk
Vextir hækk Seðla­banka­stjór­inn Ásgeir Jónsson situr sem for­maður pen­ings­tefnu­nefndar Seðla­banka Íslands, sem í dag hækk­aði vexti sína um 0,25 pró­sentu­stig. Mynd: Heiða Helgadóttir

Stýri­vextir Seðla­banka Íslands halda áfram að hækka, nú um 0,25 prósentu­stig. Megin­vextir bankans verða því 5,75%. Um þetta var tilkynnt í morgun en vextir hafa hækkað úr 0,75 prósentum síðasta sumar, samtals um 5 prósentu­stig.

Í tilkynningu frá peninga­stefnu­nefnd bankans segir að undir­liggjandi verðbólga hafi aukist á milli funda nefndarinnar þó að verðbólga hafi hjaðnað um 0,6 prósent á sama tíma. „Vís­bend­ing­ar eru um að vaxta­hækk­an­ir und­an­far­in miss­eri hafi hægt á vexti al­mennr­ar eft­ir­spurn­ar og um­svif­um á hús­næðis­markaði,“ segir í tilkynningu nefndarinnar. 

Nefndin segir að vísbendingar af vinnu­markaði bendi til að spenna í þjóðar­búskapnum hafi náð hámarki en alþjóðlegar efnhagshorfur hafi versnað. „Og óvissa aukist sem kann að leiða til þess að hraðar dragi úr innlendri eftir­spurn en áður var gert ráð fyrir,“ segir í tilkynningu nefndarinnar. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár