Hnitmiðað, áleitið, fyndið!

Leiklistar­gagnrýnandi Kjarnans fjallar um HÚH! Best í heimi þar sem leik­hópurinn RaTaTam er í samvinnu við Borgar­leikhúsið.

HÚH! Best í heimi
HÚH! Best í heimi Mynd: Borgarleikhúsið

RaTaTam í samvinnu við Bogarleikhúsið: HÚH! Best í heimi

Höfundur: RaTaTam

Leik­stjórn: Charlotte Bøving

Leikmynd og búningar: Þórunn María Jóns­dóttir

Lýsing: Björn Bergsteinn Guðmundsson

Hljóðmynd og tónlist: Helgi Svavar Helgason og RaTaTam

Myndbönd: Aron Martin Ásgerðarson

Leikarar: Albert Halldórsson, Guðmundur Ingi Þorvaldsson, Guðrún Bjarna­dóttir, Halldóra Rut Baldurs­dóttir, Hildur Magnúsdóttir.

RaTaTam hefur á undan­förnum árum sett á svið sýningar um áleitin samfélags- og tilfinningamál: heimilda­sýningin Suss! var samin af leik­hópnum og fjallaði um heimilis­ofbeldi, Ahhh ... byggði á textum Elísabetar Jökuls­dóttur og þar var megin­þemað ástin í mismun­andi myndum. Báðar þessar sýningar voru líkt og ferskur andblær í íslenskt leikhúslíf enda brá við öðruvísi efnis­tökum en venjan er. Kannski má það þakka því að leik­stjóri hópsins, Charlotte Bøving, er af dönsku bergi brotin og hefur því hugsanlega annað sjónar­horn en íslenskt samstarfs­fólk hennar. Þótt margt af okkar íslenska leik­húsfólki sæki sér menntun erlendis eru rætur þess óhjá­kvæmilega tengdar íslenskum jarðvegi, íslenskri menningu og íslenskum andlegum innviðum sem að sjálfsögðu móta einstaklinginn og setja mark sitt á starf hans – sem hugsanlega má ögra fyrir tilstilli listræns stjórn­anda með sterka, vel mótaða og sjálf­stæða sýn á viðfangs­efnið og skýra aðferða­fræði hvað varðar með hvaða listrænu meðulum skuli úr efninu unnið. Ekki skal frekar fjölyrt um það hér, enda krefst það ítarlegri rannsókna en kostur er í stuttri og hrað­soðinni gagnrýni.

Nú hefur RaTaTam skapað þriðju sýningu sína sem sækir efni í samfélag og sjálfs­vitund og hefur að þessu sinni yfirgefið heimilislegt leiksvið Tjarna­bíós og hafið samstarf við Borgar­leikhúsið og leikur á Litla sviðinu. Vista­skiptin eru mögulega til bóta; þó væri það sár þróun ef Tjarnarbíó endar á því að verða eins konar fæðingar­deild fyrir stóru leikhúsin, sem hirða til sín „áhuga­verðustu” hópana. Það er kannski ástæða til að hvetja sjálf­stæðu leik­hópana til að móta sér einhvers konar stefnu í þessum málum til að forðast að verða leik­soppar í þróun sem stýrist af stóru leik­húsunum, því fjármagni sem þau fara með og valdi þeirra á hinu listræna sviði. En þetta má skoða sem útúrdúr.

HÚH! Best í heimi er stutt, hnitmiðuð og áleitin leik­sýning sem fjallar um muninn á þeirri sjálfsímynd sem við vörpum út í kosmósið og þeim ímyndum sem við gerum okkar besta til að fela og kjósum að halda útaf fyrir okkur. Þar finnum við kvíðann, höfnunina, skömmina, og mótlætið sem heltekur líf okkar og sem við erum reiðubúin að leggja ýmislegt og margt í sölurnar fyrir að opinbera aldrei. Sýningin samanstendur af nokkrum sögum þar sem hver persóna leiksins er í fyrirrúmi og fullyrt er að allar séu sögurnar sannar; um það skal ekkert fullyrt, en þó tekið fram, að hver einasta saga var fram sett á einlægan og trúverðugan hátt sem styður full­yrðinguna um sann­leikann – hins vegar má minna á tilvitnun í leikskrá, þar sem segir:

„Sögur eru uppfinning mannsins. Allar sögur eru ósannar, einmitt vegna þess að þær eru sögur.“

Þessi tilvitnun ku vera sótt í bók ísraelska sagn­fræðingsins og heim­spekingsins Yuval Noah Harari sem ber hið ögrandi heiti „21 lessons for the 21st Century” eða „21 hugmynd um 21. Öldina“ (enska orðið „lesson” þýðir vissulega „kennslu­stund”, en Harari er meira í mun að vekja til umhugsunar en „kenna” lesendum sínum; því vel ég orðið „hugmynd”, sem er auk þess í samræmi við sænskt heiti bókarinnar) og um Harari má sannlega segja að hann er höfundur sem kann að ögra og vekja upp spennandi hugsanir með lesendum sínum. Hann vakti m.a. máls á þeirri hugmynd í bók sinni „Sapiens. A brief history og Mankind” að þegar akuryrkju­tímabil hófst og maðurinn fór að sá hveiti skipulega hafi maðurinn í raun farið að þjóna hagsmunum hveitisins og að hveitið hafi þannig breytt lífs­háttum mannsins. Slíkur umsnúningur sjónar­horns eggjar óneitanlega til skapandi hugsunar og HÚH! Best í heimi sækir ómælda næringu í slíkan umsnúning.

Ákveðnum lykil­orðum er varpað upp á skjá fyrir ofan höfuð leikenda – það er auðvelt að missa af þessum hluta sviðs­myndarinnar, en á þessum skjám birtast eins konar lyklar að orðum og athöfnum leik­endanna í þeim atvikum sem um er fjallað. Nokkur dæmi:

  • „Dugnaður”
  • „Fullkomin skírnar­veisla”
  • „Ég vil bara vera elskuð”
  • „Margir þeir sem fá ávísað þunglyndis­lyfjum fá jafnframt örvandi lyf”
  • „Ég er ekki nóg”
  • „Líkams­skömm”
  • „Hvar er Raufar­höfn”

Eins og sjá má á þessum fáu dæmum, er víða drepið fingri á samfélags­ástandið og líðan einstaklingsins innan þess samfélags. Og þótt fyrir­sagnirnar geti virst sundur­leitar og komi eins og fljúgandi sitt úr hvorri áttinni, tekst leikhópi og leik­stjóra furðu vel að mynda rauðan þráð og samhengi í samfélags­rýnina sem er bæði beitt, nákvæm og fyndin. Því fyndin, það er sýningin og er reyndar tónninn sleginn þegar í heiti hennar, HÚH! vísar í víkinga­klappið margfræga og fram­haldið, „best í heimi” til alræmds þjóðar­hroka; vantar ekki nema „miðað við höfðatölu” og þá verður greinilegt í hve tómri tunnu hér bylur.

Það er ekkert sérstak­lega auðvelt að vera Íslend­ingur, hvað þá ungur Íslend­ingur, svo ekki sé talað um að vera ungur kvenkyns Íslend­ingur þegar þarf að vega sig og meta andspænis þeirri andlegu kúgun sem slík viðmið eru í raun (reyndar ber blessunar­lega lítið á kynja­mismun í þeirri mynd sem hér er máluð upp og það bendir til þess að leik­hópurinn og leik­stjóri líti á málið sem sammannlegt og það er vel!)

Við búum í heimi þar sem allt fer fram á ofsahraða, kyrrðar­stundir þurfa að vera þræl­skipulagðar inn í annasama og þrönga dagskrá þar sem allt á að bera þess vitni að við séum meðða – svo aftur sé vísað í leikskrá sýningarinnar, þar sem knappur texti myndar eins konar stefnu­skrá eða grunn­viðhorf sýningarinnar.

Ekki verður svo um HÚH! Best í heimi fjallað öðruvísi en að nefna leikmynd og búninga Þórunnar Maríu Jóns­dóttur. Hún hefur áður unnið með RaTaTam í Suss! og Ahhh ... og það er óhætt að segja að bæði leikmynd hennar og búningar mynda órjúfanlegan hluta af þeirri sögu, sem sögð er. Hér er rými Litla sviðs Borgar­leikhússins nýtt til fullnustu og góðir mögu­leikar skapaðir og nýttir til fjöl­breytilegs hreyfi­mynsturs; leik­myndin og leikrýmið takmarkar hvergi möguleika á óvæntum stað­setningum, tilfærslum og inn- og útkomum heldur ýtir undir þá hugsun að lífið sé frekar flókið og krefst þess að vera ekki sett á afmarkaðan bás. Þetta styrkist enn frekar með kaðal­stiganum sem gerir leikurum kleift að fara upp á svalir Litla sviðsins; sú fjarlægð og sá hæðar­munur sem þar með skapast eykur við vídd sögunnar og það verða á köflum ákaflega fyndin atriði sem þannig skapast. Búningarnir eru litríkir og fjöl­breytilegir í sama anda og lýsing Björns Bergsteins Guðmunds­sonar fellur vel að leikrými og leik.

Hljóðmynd og tónlist Helga Svavars Helga­sonar og leik­hópsins er í öndvegi í sýningunni og veitir dýpri skilning á efni auk þess sem tónlistin skapar, styrkir og eflir þann kómíska tón sem einkennir sýninguna frá upphafi til enda.

Margt mætti segja um frammistöðu leik­aranna í sýningunni; þeir segja hver sína sögu og fullyrt er að þær sögur séu allar sannar. Má vera og skiptir kannski ekki höfuðmáli. Meira er um vert að þær falla allar að okkar íslenska veruleika og eru hér fram settar af kostulegu innsæi, íróníu og húmor – og óendanlegri ást á manneskjunni. Leik­hópurinn er svo jafn í frammistöðu sinni að engum einum eða fáum verður hér hampað. Hins vegar skal vakin athygli á einu, býsna mikilvægu atriði, en það er beiting raddar og meðferð hins talaða máls. Hér hafa leik­stjóri og leikhópur unnið krafta­verk, svo ekki sé fastar að orði kveðið. Það er auðfundið að hver einasti leik­aranna lítur á röddina sem mikilvægt verkfæri; leik­hópurinn allur mætir til leiks með þjálfuð og vel ydduð talfæri og það er hreint ótrúlegt að heyra hvers hver leikari er megnugur þegar kemur að röddinni og blæbrigðum hennar og hve fjöl­breytileg radd­beitingin er og flæðið fallegt á milli tals og söngs. Þá er ekki síður mikils vert að hópurinn hefur að fullu leyti aðlagað radd­myndina að Litla sviðinu, þannig að engu skiptir hvar hver er, það heyrist skýrt til allra og hver einasti tónn, talmáls eða söngs, á sér tilgang í flutningi hverrar sögu.

HÚH! Best í heimi er sýning sem á erindi við nútíma­manninn, og hver sem finnur til nútíma­mannsins í sjálfum sér gerir sjálfum sér gott að horfa á sig og umheiminn með írónískum sjón­glerjum RaTaTam.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár