Spásögn eða áhrínsorð – nútíminn talar við Atómstöðina!

Leiklistar­gagnrýnandi Kjarnans fjallar um Atóm­stöðina – endurlit í leik­stjórn Unu Þorleifs­dóttur í Þjóð­leikhúsinu.

Þjóðleikhúsið: Atómstöðin – endurlit

Leik­stjóri: Una Þorleifs­dóttir

Höfundur leik­gerðar: Halldór Laxness Halldórsson í samvinnu við Unu Þorleifs­dóttur

Höfundur skáldsögu: Halldór Laxness

Leikmynd og búningar: Mirek Kaczmarek

Lýsing: Ólafur Ágúst Stef­ánsson

Tónlist: Gísli Galdur Þorgeirsson

Hljóðmynd: Aron Þór Arnarsson, Kristinn Gauti Einarsson og Gísli Galdur Þorgeirsson.

Dramatúrgur: Gréta Kristín Ómars­dóttir

Leikarar: Ebba Katrín Finns­dóttir, Björn Thors, Birgitta Birgis­dóttir, Arnmundur Ernst Bachman, Snæfríður Ingvars­dóttir, Hall­grímur Ólafsson, Stefán Jónsson, Oddur Júlíusson, Snorri Engilbertsson, Hildur Vala Baldurs­dóttir, Edda Arnljóts­dóttir og Eggert Þorleifsson.

Það er án efa engin tilviljun að „járn­tjaldið“ blasir við áhorf­endum þegar gengið er inn í sal stóra sviðs Þjóð­leikhússins. „Járn­tjaldið“ er brunavarnar­tjaldið milli sviðs og salar en hér er það hluti af leik­myndinni – enda fjallar Atóm­stöðin um þá tíma þegar járn­tjaldið var dregið fyrir milli austurs og vestur eftir lok síðari heims­styrjaldar; sagt er að enginn minni maður en Churchill hafi gert hugtakið frægt í ræðu sinni í Fulton í Missouri árið 1946. En þótt Churchill sé eignaður heiðurinn af hugtakinu á það sér eldri sögu: það mun hafa verið hin þýsk­ættaða Elísabet drottning af Bæjara­landi og Belgíu sem sagði þetta fyrst manna árið 1914 (!!!) og Göbbels ku hafa nýtt sér járntjalds­myndina til að lýsa hvaða skelfing myndi gerast ef Sovét­ríkin myndu nú vinna síðari heims­styrjöldina. Svona herma nú karlarnir eftir konunum án þess að láta þeirra getið!

Járn­tjaldið skapar semsagt ákveðin hugrenninga­tengsl við þá tíma þegar skáldsaga Halldórs Laxness, Atóm­stöðin, varð til og var út gefin og þá ekki síður ákveðna stemningu yfir sýningu Þjóð­leikhússins á Atóm­stöðinni – endurlit; skáldsaga Laxness olli miklu pólítísku fjaðra­foki og var aukinheldur skrifuð við bergmálið af járntjalds­skellinum sem festi í sessi þau skil milli austurs og vesturs sem við búum enn við; hvort leik­gerðin nú sé á sama hátt skrifuð inn í okkar samtíð er spennandi spurning.

Leik­gerðin er skrifuð af dóttur­syni skáldsins, Halldóri Laxness Halldórs­syni, betur þekktur sem Dóri DNA og hefur hann notið aðstoðar leik­stjórans, Unu Þorleifs­dóttur við leik­gerðina. Leikgerðar­höfundur sýnir afaverkinu fyllsta trúnað en leggur þó í að rjúfa þráð hinnar upphaf­legu sögu og leyfa nútímanum að skipta sér af. Það er enda rökrétt; hugtakinu „endurlit“ er bætt við titil sýningarinnar og væntanlega er þá hugsunin að sjá hversu vel hin upphaf­lega saga rímar við raun­veruleikann eins og hann birtist okkur í dag.

Nú skal tekið fram að undir­ritaður sá Atóm­stöðina – endurlit tvisvar sinnum, í fyrra skiptið á frum­sýningu en í síðara skiptið 4. sýningu þann 13. nóvember og var það í raun tilviljun að sú sýning varð fyrir valinu. En Atóm­stöðin – endurlit er um margt flókin sýning að byggingu og útliti og ekki síður þegar kemur að nálgun á frum­sögunni og þótti undir­rituðum því vissara að hafa vaðið fyrir neðan sig og sjá sýninguna tvisvar. Það er þó engin trygging fyrir því að umsögnin verði gáfulegri, svo því sé haldið til haga!

Áður en járn­tjaldinu er lyft flytur Hildur Vala Baldurs­dóttir eins konar formála sem tengdur er útgáfu­sögu skáldsögu Laxness og þeirri staðreynd að Laxness er óneitanlega á stall hafinn sem einn fremsti rithöfundur vorrar þjóðar – þetta er fyndið stílbragð og dregur úr hátíð­leikanum sem kynni annars að fylgja nafni höfundar og höfundar­verki hans; það er augljóst að eitthvað annað er í vændum en að bregða upp svip­myndum úr sögunni, enda er ekki endurlit í vændum? Hildur Vala er klædd í hergrænan samfesting sem boðar engin vettlingatök. Þetta stílbragð er svo endur­tekið eftir hlé; járn­tjaldið niðri og Hildur Vala flytur þá formála um væntanlegan ágóða Þjóð­leikhússins af sýningunni - fagni hún því láni að verða vinsælt kassa­stykki!

Þetta stílbragð er í ætt við „verfremdung“ austur­þýska leik­húsmannsins Bertold Brecht; hugtakið einatt þýtt með fram­andgerving, og er þá átt við að hlutirnir eru teknir úr sínu hefð­bundna samhengi til að forðast innlifun áhorf­andans (sem er borgaralegt fyrirbæri – það á að „skilja“ það sem fram fer, ekki „lifa sig inn í“ það) og sú sýning sem í hönd fer er morandi í slíkri fram­andgervingu.

Þegar járn­tjaldinu er lyft og sviðið blasir við er horft inn í fernings­laga gímald, eins konar risakassa sem nær yfir allt sviðið og virðist jafnt á alla vegu – frá vinstri vegg til þess hægri, frá sviðbrún og inn í sviðsbotn. Þennan kassa höfum við reyndar séð í svipuðu formi áður – fyrir fáum árum var Makbeð komið fyrir í viðlíka rými og sömuleiðis gerðist Loddarinn í svona kassa, þótt vissulega væri unnið með það rými á annan hátt. Hér er rýmið alhvítt, nánast sterílt – er þetta atóm­stöðin sjálf, sem horft er inn í? – og það eina sem breytir ásýnd þessarar leik­myndar fyrir utan hreyfingar og stöður leik­aranna er lýsingin, en hún er líka galdri líkust og þeim sem þetta ritar er til efs að hafa séð fallegri lýsingu, svo vel vinnur hún úr formum, línum og yfirborðs­áferð leik­myndarinnar, svo vel fylgir hún sögunni, áherslum og blæbrigðum leiks og leik­stjórnar. Ólafur Ágúst Stef­ánsson nær að töfra fram hughrif sem þjóna heildinni og leik­myndin með lýsingu Ólafs Ágústar verður einstök. Á sviðs­gólfinu standa bekkir sem þjóna öllum sviðs­myndum, hvort sem það er kirkjan sem faðir Uglu byggir í afdal í fjarska, heimili Búa Árland, heima hjá organ­istanum eða útivið í Reykjavík – alls staðar nær leik­myndin að anda frá sér réttu andrúms­lofti. Það er fallegur leikhús­galdur, sem fyrst og fremst má þakka hönnun Mireks Kaczmareks.

Hönnun leik­myndar og sömuleiðis búninga er í höndum hans, en þau Una Þorleifs­dóttir leik­stjóri hafa áður unnið saman farsæl­lega í ≈[um það bil] árið 2015; í leikmynd Atóm­stöðvarinnar gætir áhrifa frá evrópskum leik­húsmönnum fyrri hluta nýliðinnar aldar, Appia, Craig, svo hinir þekktustu séu nefndir, en hér má einnig greina skemmtileg áhrif frá dadaistum og – svo nefndur sé að lokum – Bertolt Brecht sem áður er getið. Allir þessir leik­húsmenn teljast góðir fulltrúar þess alþýðu­leikhúss, sem braust fram uppúr umbrotum kringum aldamótin 1900 og er það vissulega við hæfi þegar um ræðir Atómstöð Halldórs Laxness. Eldri.

Halldór Laxness yngri fylgir sögu afa síns sæmilega vandlega en hvenær sem þörf krefur er leikurinn rofinn og gerðar athuga­semdir við rás atvika, sum deilu­atriðin færð til nútíma, önnur beinlínis sögð óviðeigandi og til þess eins fallin að villa um fyrir fólki – Atóm­stöðin fjallar um sölu lands og kúgun borgara­stéttar á hinni vinnandi alþýðu – ekki um eitthvert ástar­ævintýri borgaralegrar þingmanns­druslu með sveita­stelpu – sú saga er afvega­leiðing, en það hugtak kemur fyrir oftar en einu sinni í sýningunni og er sem áminning um að borgara­stéttin mun ávallt reyna að bregða fæti fyrir þá umræðu sem tekur á kjarna mála og leiða hana á villu­götur. Frammígripin eru gerð af eins konar byltingar­hópi, sem Piltur fer fyrir, leikinn af Snorra Engilberts­syni. Þessi Piltur og hópurinn á bak við hann telur sig höndla sann­leikann og þjónar jafnframt því hlutverki að vera félagar á sellu­fundi í uppruna­legum tíma sögunnar. En Pilturinn og byltingar­hópurinn eru líka persónur í nútíma og hluti af þeim (ósamstæða) leikhóp sem setur Atóm­stöðina á svið hér og nú.

Það er hlaupið frjáls­lega á milli tíma­skeiða og frammígrip þessa byltingar­hóps nútímans fleyta sýningunni ágætlega áfram í upphafi en verða á endanum að nokkuð fyrir­sjáanlegum stíl­brigðum; hér hefði örugglega mátt stytta og þjappa – skapa þá samkennd með áhorf­endum að „við vitum hvað er í gangi“ án þess að það sé sagt fullum fetum í hvert skipti.

En hér kemur einnig annað til: Atómstöð Halldórs Laxness (eldri) fjallar um annað og meira en bara sölu lands og hvort byggja skuli vöggu­stofu handa alþýðunni – sem voru vissulega brýnustu mál á sínum tíma. Sala lands er brýnt mál einnig í dag - það nægir að nefna breskan milljarðamæring og innlend og erlend orku­fyrirtæki því til stað­festingar - en vöggu­stofur eru trúlega í augum nútímans frekar kátlegt barn síns tíma, eins og sellu­fundirnir. Hins vegar er þar að finna annað þema hjá Laxness, sem er mismun­andi staða kynja og birtist í stöðu fjögurra kvenna í bókinni: Þær Ugla, Aldinblóð, Kleópatra og eiginkona guðsins Briljantín gjalda allar kynferðis síns á einn eða annan hátt, þrjár þeirra að minnsta kosti verða óléttar; Búi Árland kostar fóstur­eyðingu upp á dóttur sína Aldinblóð til að forða hneyksli, eiginkona guðsins Briljantín lætur föðurinn sjá um barnið meðan hún skemmtir sér með könum, Kleópatra eignast ekki barn, en er gleði­konan sem sefur einu sinni hjá þrjátíu mönnum eins og organ­istinn kemst að orði í velþekktri tilvitnun. Ugla ákveður að fara aftur heim í sveitina sína og eiga sitt barn. Hefði ekki mátt gera meira úr konunum og byltingar­hópurinn mátt sjá að stöðu kvenna í nútíma­samfélagi má ekki síður bæta nú einsog þá. En þetta er örugglega meðvitað val hjá höfundum handrits og sýningar og verður að teljast smekks­atriði.

Í skiptingunum milli tíma og sögusviða – Reykja­víkur Atóm­stöðvar Laxness og þess nútíma sem við lifum í – hefði mátt sýna meiri dirfsku, þótt ekki væri nema til að gefa ástæðu bundna í tíma og rúmi fyrir því hve munurinn er mikill á upphaf­legum texta og viðbótum Halldórs yngri og Unu. Þar sem texti bókarinnar fær að njóta sín er leik­textinn skáld­legur, jafnvel seiðandi, þökk sé stíl­snilli höfundar og óbrigðulu valdi á áhrifum textans á áheyrendur/áhorf­endur.

Það eru ekki síst langar einræður Uglu sem lokka og draga áhorf­andann inn í heim hennar OG leik­hússins enda er þetta sýning Uglu í fleiri en einum skilningi.

Ugla er eins og þekkt er miðpunktur sögunnar og Ugla er einnig sú persóna sem Atóm­stöðin – endurlit hverfist um. Það eru ekki mörg andartök sem Ugla hverfur af sviðinu og er þá einnig fjarvera hennar þrungin merkingu. Ugla Ebbu Katrínar Finns­dóttur er persóna tveggja tíma, hún er vissulega aðal­karakter þeirrar sögu sem verið er að leika, en hún er líka sú, sem uppgötvar þá sögu sem varð til fyrir um sjötíu árum og leiðir okkur inn í þann tíma – jafnframt því sem hún ræður litlu um bægsla­gang byltingar­hópsins, finnur sig jafnvel í andstöðu við hann. Þar skapast ákaflega skemmtileg spenna sem vekur og heldur athygli áhorfenda og það er fyrst og fremst karakter Uglu sem tengir saman þessa ólíku tíma. Ebba Katrín tengir þá saman í leik, fasi og svip­brigðum glæsilega og af tæknilegu öryggi, texti Laxness leikur henni í munni og það er ekki síst Ebbu Katrínu að þakka að sýningin nær svo skilmála­laust og örugglega til okkar. Ebba Katrín vinnur stórkost­legan leiksigur í hlutverki Uglu og það er full ástæða til að óska bæði henni og íslensku leikhúsi til hamingju.

En textinn sem við er bætt er einkum til þess að gera athuga­semdir við söguna úr nútíma, nútíminn talar líkt og við hina sjötíu ára sögu og það má virðast helstil einföld lausn á almennu spurningunni hvernig nútíminn yfirleitt nálgast þetta rúmlega sjötíu ára skáldverk. Má búast við jafn hatrömmum deilum um Atóm­stöðina og þegar bókin kom fyrst út. Það er vissulega spurning sem á fullan rétt á sér og svo það sé sagt hreint út: Hver getur ekki verið beturviti eftirá?!

Hefði ekki verið hægt að finna meira spennandi leið og nota forspár­kraftinn sem í sögunni býr og láta nútímann tala til framtíðar? Til okkar, til barna okkar og barna­barna? Hefði ekki Atóm­stöðin, saga Halldórs Laxness, þá hlotið þann sess að verða að mögulegum áhrínsorðum um það sem koma skal?

Eins og áður var getið sá undir­ritaður sýninguna tvisvar. Og það verður að segjast eins og er að það voru tvær algerlega ólíkar sýningar, þótt engu hafi verið breytt. Hér var heldur ekki um að ræða að sýningin hafi vaxið, sem svo er oft kallað, þegar leikarar venjast því að leika fyrir áhorf­endur, þeir verða öruggari og sýningin þéttist og þroskast. Nei, það var ekki það. Það var allt annað og meira, sem gerði Atóm­stöðina miðvikudaginn 13. nóvember að annarri sýningu en frum­sýningar­daginn 1. nóvember.

Þriðjudaginn 12. nóvember var frétta­skýringa­þátturinn Kveikur sýndur á RÚV og fjallaði um mútu- og spillingarmál stærsta sjávar­útvegs­fyrirtækis Íslendinga, Samherja, og hvers konar viðskipta­hætti það hefur viðhaft í Afríku­ríkinu Namibíu. Það vildi svo einkenni­lega til – en þó eru eldri dæmi til um þetta í leikhús­sögunni – að Atóm­stöðin varð allt í einu að nútíma­sögu. Atóm­stöðin fjallaði allt í einu um Samherja, kapítalíska mútu­menningu og hvernig við Íslendingar höfum komið fram við aðra þjóð sem hafði þó verið lofað öðru.

Viðbrögð áhorfenda voru allt önnur á 4. sýningu en á frum­sýningu. 4. sýning fjallaði um Samherja­málið og hún var sett upp í berg­málinu af Kveik, ekki járn­tjaldinu milli austurs og vesturs. Sem segir sitthvað bæði um okkar pólítíska skilning, en ekki síður hvernig lista­skáld vinnur með söguefni sitt. Löngu eftir að járn­tjaldið er fallið hefur Halldóri Laxness tekist sú list að glæða skáldverk sitt nýju lífi - í seinni sýningunni sem ég sá, þann 13. nóvember hefði Búi Árland allt eins getað heitið Þorsteinn Már Baldvinsson. Það hefði litlu breytt um þann pólítíska veruleika sem umlykur sýninguna.

Það er sjaldgæft að sjá sýningu á fjölum Þjóð­leikhússins sem líkt og fyrir tilviljun talar til áhorfenda sinna og hefur fram að færa bein­skeyttan og brýnan boðskap. Það er full ástæða að hvetja fólk að sjá Atóm­stöðina – endurlit.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár