Dagur: Full ástæða til að „slá í klárinn“

Rafbíla­væðing gæti orðið hröð á næstu árum. Kynning Teslu Motors á nýjum bíl í gær, þykir marka tímamót fyrir rafbíla­væðingu á heimsvísu.

„Borgin mun leggja aukna áherslu á að greiða götur rafbíla­væðingar á næstunni,“ segir Dagur B. Eggertsson, borgar­stjóri, en betri innviðir fyrir almenna rafbíla­væðingu er eitt af áherslu­atriðunum í aðgerðar­áætlun í loftslags­málum sem er í undir­búningi hjá Reykja­víkurborg. „Borgin vann aðgerðar­áætlun fyrir nokkrum misserum og Orku­veitan jafnframt. Nú er hins vegar margt sem bendir til þess að þróunin geti orðið hraðari og jákvæðari í þessa átt en áður hefur verið talið og því full ástæða til að slá í klárinn,“ segir Dagur.

Mikil vakning hefur átt sér stað í bíla­heiminum á undan­förnum árum, þegar kemur að rafbílum og tækni­þróun hefur einnig verið ör. Eitt stærsta augnablik í tiltölu­lega stuttri sögu rafbíla í heiminum var í gær, þegar Elon Musk, stofnandi og forstjóri Tesla Motors, kynnti í fyrsta skipti opinber­lega nýja tegund frá Tesla, Model 3, sem kemur á götuna á næsta ári. Bíllinn verður markaðs­settur fyrir almenning og mun kosta frá 35 þúsund Bandaríkja­dölum, eða sem nemur 4,5 milljónum, nýr úr kassanum. „Ég fullyrði að þetta verður besti bíll sem hægt verður að kaupa fyrir þennan pening í heiminum,“ sagði Musk meðal annars þegar hann kynnti bílinn.

Bíllinn mun að lágmarki komast um 300 kílómetra á einni rafmagns­hleðslu, en auk þess verður mögulegt að fá fjölmarga aukahluti við bílinn og einnig meiri snerpu í akstri. Model 3 verður þannig útbúinn að engin undir­tegund mun verða lengur að ná 100 kílómetra hraða en sex sekúndur.

Í dag hefur Tesla þegar tekið á móti forpöntunum á bílnum fyrir 7,5 milljarða Bandaríkja­dala, eða sem nemur um þúsund milljörðum króna. Á innan við sólar­hring frá því bíllinn var kynntur hafa 180 þúsund eintök verið pöntuð.

Musk lét hafa eftir sér á kynningunni að það væri stórt og mikið mál fyrir allan heiminn að rafbíla­væðing næði að ganga fram hraðar, og það væri megin­markmiðið með starfsemi Teslu. Að búa til tæknilega full­kominn bíl, sem gengi fyrir rafmagni, og væri að öllu leyti samkeppnis­hæfur við bestu bíla sem ganga fyrir olíu - og menga því meira.

Eitt af því sem sérstak­lega hefur verið horft til, að muni stjórna því hversu hröð rafbíla­væðing á heimsvísu getur orðið, er uppbygging landa á innviðum fyrir hleðslur rafbíla. Sérstak­lega eru það borgar­svæði sem munu þurfa að byggja upp slíka innviði. 

Dagur segir að Reykja­víkurborg sé meðvituð um mikilvægi þessa mála­flokks, og uppbygging fyrir rafbíla­væðingu sé í góðu samræmi við stefnu borgarinnar í umhverfs- og skipulags­málum. Tillögur um þessi mál muni að líkindum liggja fyrir síðar á árinu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár