Óskaði eftir að koma í skýrslutöku hjá lögreglu: „Ég er fullkomlega saklaus“

Eggert Gunnþór Jónsson, knattspyrnu­maður hjá FH, var kærður ásamt Aroni Einari Gunnars­syni landsliðs­fyrirliða. Hann hafði samband við lögreglu á dögunum.

Eggert Gunnþór Jónsson
Eggert Gunnþór Jónsson Stjórn FH hefur verið í sam­skiptum við lög­mann Eggerts vegna kæru á hendur honum. Mynd: RÚV

Knattspyrnu­maðurinn sem kona sakaði um alvarlegt brot á Instagram, ásamt Aroni Einari Gunnars­syni landsliðs­fyrirliða, segist hafa haft samband við lögreglu í byrjun mánaðar til að segja frá sinni hlið málsins. 

„Það er hrikalegt áfall að vera ásakaður um hræðilegt ofbeldis­brot vegna atviks sem var svo sannarlega ekki með þeim hætti sem lýst er í fjöl­miðlum,“ segir Eggert í yfir­lýsingu sem send var rétt í þessu.

„Þar sem ég hef ekki enn fengið tækifæri til að skýra mál mitt á réttum vettvangi og sökum umfjöllunar frétta­miðla í dag tel ég mig hinsvegar ekki eiga annan kost en að stíga fram og lýsa því opinber­lega yfir að ég er fullkomlega saklaus af því sem ég hef verið sakaður um. Ég vona að málið komist í réttan farveg hið snarasta svo ég geti hreinsað mig af þessum ásökunum.“ 

Sams konar kæra á hendur Aroni Einari Gunnars­syni landsliðs­fyrirliða vegna kvölds í Kaupmanna­höfn varð til þess að hann var tekinn úr landsliðs­hópnum í knatt­spyrnu.

Konan sem kærði þá tvo greindi frá reynslu sinni á Instagram í vetur, án þess að nafn­greina þá. „Ég ligg andvaka, get ekki hætt að hugsa um alla sem hafa þurft að upplifa það sama og ég. Upplifa skömm, reiði, sorg, uppgjöf, vantrú á sínar eigin tilfinningar og upplifanir,“ sagði hún og lýsti atburðunum nánar. „Ég ætlaði að kæra, fékk lögfræðing, fór í skýrslu­töku hjá lögreglu en hvar sem ég kom var mér sagt að þetta væri erfitt mál, annað land og þeir tveir gegn mér. Ítrekað var ég spurð hvort ég vildi leggja þetta á mig.“

Konan ákvað að fylgja málinu ekki eftir alla leið, en lét verða af því að kæra fyrr í ár eftir umræðu um brot lands­liðsmanna. 

Aron Einar hefur einnig neitað að hafa brotið gegn konunni. Í yfir­lýsingu fyrr í mánuðinum sagðist hann aldrei hafa fengið tilkynningu um að hann væri undir grun. „Hafi einhver eitthvað út á mig að setja þá bið ég viðkomandi vinsamlegast að hlífa mér ekki, ásaka mig frekar og nafn­greina og gefa mér kost á að verja mig. Það er heiðarlegt.“

Málið er til rann­sóknar hjá lögreglu.

Yfirlýsing Eggerts í heild sinni

Undan­farnar vikur hafa fjöl­miðlar fjallað um atvik sem á að hafa átt sér stað í Kaupmanna­höfn árið 2010 þar sem tveir lands­liðsmenn hafa verið bornir þungum sökum. Ég er annar umræddra lands­liðsmanna. 

Það er hrikalegt áfall að vera ásakaður um hræðilegt ofbeldis­brot vegna atviks sem var svo sannarlega ekki með þeim hætti sem lýst er í fjöl­miðlum. 

Ég hef reynt að skýla mér og fjöl­skyldu minni fyrir kastljósi fjölmiðla þar sem ég hafði fram að birtingu fréttar Stundarinnar í dag ekki verið nafn­greindur. Föstu­daginn 1. október síðastliðinn hafði ég hinsvegar þegar óskað eftir því að vera boðaður í skýrslu­töku til að skýra frá minni hlið. 

Þar sem ég hef ekki enn fengið tækifæri til að skýra mál mitt á réttum vettvangi og sökum umfjöllunar frétta­miðla í dag tel ég mig hinsvegar ekki eiga annan kost en að stíga fram og lýsa því opinber­lega yfir að ég er fullkomlega saklaus af því sem ég hef verið sakaður um. 

Ég vona að málið komist í réttan farveg hið snarasta svo ég geti hreinsað mig af þessum ásökunum. 

Eggert Gunnþór Jónsson.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár