Fimm ráð Michael Moore til að bregðast við kjöri Donald Trump

Michael Moore spáði fyrir um sigur Donald Trump í heimildar­mynd sem hann gaf út skömmu fyrir kosningar. Morguninn eftir að ljóst varð að hann hefði rétt fyrir sér og ljóst varð að Donald Trump yrði næsti forseti Banda­ríkjanna birti hann aðgerða­lista í fimm liðum á Facebook. Hann hvetur fólk til að hafna óttanum, hætta að tala um hvað það er miður sín yfir úrslitunum og ráðast í aðgerðir.

Michael Moore
Michael Moore Var sann­færður um að Donald Trump ætti eftir að ná kjöri, þrátt fyrir að skoð­ana­kann­anir bentu til ann­ars. Mynd: Wikimedia Commons

Morguninn eftir að Donald Trump hafði verið kjörinn forseti Banda­ríkjanna settist leik­stjórinn, handrits­höfundurinn og fram­leiðandinn Michael Moore niður og skrifaði morgun-gátlista fyrir landa sína. Listanum, sem er nokkurs konar ákall til fylgjenda Demókrata­flokksins, deildi hann á Facebook-síðu sinni og þaðan barst hann með ógnar­hraða um netið. Í dag hafa 374 þúsund manns brugðist við listanum, honum hefur verið deilt meira en 170 þúsund sinnum og 17 þúsund manns hafa skrifað ummæli við hann.

Moore var einn margra sem reyndu að koma í veg fyrir að Donald Trump kæmist til valda fyrir kosningar. Þrátt fyrir það var hann sann­færður um að Trump næði kjöri, enda spáði hann fyrir um það í óvæntri og hrað­soðinni heimildar­mynd sinni, Michael Moore in TrumpLand, sem kom út í októberlok öllum að óvörum. Í myndinni er fylgst með því þegar Michael Moore setur upp eins manns sýningu í Ohio stuttu fyrir kosningar, þar sem …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár