Vextir hækkaðir um 0,5 prósentustig

Seðla­bankinn hefur ákveðið að hækka megin­vexti sína um hálft prósentu­stig vegna hækkandi verðbólgu. Nokkur óvissa er um framvindu efnahags­mála, en bankinn spáir þó meiri hagvexti en áður fyrir næsta ár.

Peninga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bankans um 0,5 prósentu­stig og verða þeir því 2 prósent. Þetta kemur fram í tilkynningu nefndarinnar sem birt var á vef bankans í morgun.

Samkvæmt tilkynningunni hafa hagvaxtar­horfur batnað nokkuð, en búist er við að hagvöxturinn muni nema 4 prósentum í ár og 5 prósentum á næsta ári. Hins vegar segir nefndin að óvissa sé enn mikil og þróun efnahags­mála muni sem fyrr markast af framvindu farsóttarinnar.

Nefndin segir að verð­bólgan, sem mældist 4,5 prósent í október, hafi að stórum hluta vegna innlends kostnaðar­þrýstings, hækkunar húsnæðis­verðs undan­farna mánuði. Hins vegar bætir nefndin við að áhrif hækkana alþjóð­legs olíu- og hrávöru­verðs hafi einnig aukist. Hún segir einnig að undir­liggjandi verðbólga vera minni og hafa minnkað undan­farna mánuði.

Verðbólgu­horfur hafa versnað nokkuð frá því í ágúst sem m.a. má rekja til þrálátari alþjóðlegra verð­hækkana, hraðari viðsnúnings í innlendum efnahags­umsvifum og hækkunar launa­kostnaðar. Horfur eru á að verðbólga aukist áfram á næstu mánuðum en taki síðan að hjaðna enda haldist kjölfesta verðbólgu­væntinga við markmið.

Í lok tilkynningarinnar ítrekar nefndin að hún muni beita þeim tækjum sem hún hefur yfir að ráða til að tryggja að verð­bólgan hjaðni aftur í markmið innan ásættanlegs tíma.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár