Flýgur frjáls úr héraðsdómaraembætti

Arnar Þór Jónsson verðandi vara­þingmaður og héraðs­dómari boðar að hann ætli að segja sig frá dómstörfum. Hann segir embættið oft hafa látið sér líða „eins og fugli í búri“.

Arnar Þór Jónsson varaþingmaður og fráfarandi héraðsdómari.
Arnar Þór Jónsson vara­þing­maður og frá­far­andi hér­aðs­dóm­ari. Mynd: Skjáskot/RÚV

Arnar Þór Jónsson, sem verður fyrsti vara­þingmaður Sjálfstæðis­flokksins í Suðvestur­kjördæmi eftir kosningarnar síðasta laugardag, hefur ákveðið að hætta sem héraðs­dómari við Héraðsdóm Reykja­víkur. Frá þessu sagði hann í færslu sem hann setti inn á Facebook síðdegis í dag.

Þar segist hann standa á kross­götum, sem liggi annars staðar en hann hafði vonað, en Arnar Þór gerði sér vonir um að ná inn á þing þrátt fyrir að vera í 5. sæti á lista Sjálfstæðis­flokksins í Suðvestur­kjördæmi.

„Ég hef legið undir feldi síðustu daga og velt við öllum steinum um nútíð og framtíð. Dómara­embættið hefur hentað mér vel að sumu leyti, en umhverfið hefur þrengt að hugsun minni og oft hefur mér liðið eins og fugli í búri. Það besta við að kúpla mig frá þessu hlutverki síðustu mánuði er að mér hefur aftur liðið eins og frjálsum manni með sjálf­stæða rödd,“ skrifar Arnar Þór.

Hann bætir því við að hann hafi verið frelsinu feginn og hjartað segi honum að hann eigi að „velja leið frelsis.“

„Á þessum forsendum hef ég tekið ákvörðun um að stíga út fyrir skorður dóms­kerfisins og nýta bæði meðbyr og mótbyr til að taka flugið á nýjum vettvangi. Ég mun njóta þess að tala, skrifa og vinna að mínum hugðar­efnum laus við ytri fjötra með bjartsýni og trú að leiðar­ljósi,“ skrifar vara­þing­maðurinn verðandi.

Hætti í Dómarafélaginu

Það vakti athygli á vordögum er Frétta­blaðið greindi frá því í stríðs­letri á forsíðu sinni að Arnar Þór væri hættur í Dómara­félaginu. Ein af ástæðunum sem hann gaf fyrir úrsögn sinni úr félaginu var umræða sem átti sér stað á lokuðum fundi í félaginu haustið 2019, þar sem rætt var um tjáningar­frelsi dómara.

„Á fundinum var spjótum beint að mér og minni tjáningu og átti hann stóran þátt í því að ég kaus að segja mig úr félaginu,“ sagði Arnar Þór í samtali við Frétta­blaðið, en hann hefur um nokkurt skeið gagnrýnt ákvæði siða­reglna Dómara­félagsins, sem meðal annars mælast gegn því að dómarar taki virkan þátt í stjórnmála­starfi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár