Píratar skiluðu gildum ársreikningi of seint til Ríkisendurskoðunar

Píratar skiluðu ársreikningi of seint til Ríkis­endur­skoðunar Allir flokkar sem eiga fulltrúa á þingi nema einn hafa skilað inn gildum ársreikn­ingum til Ríkis­endur­skoðunar, en frestur til þess rann út fyrir rúmum einum og hálfum mánuði.

Halldóra Mogensen og Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmenn Pírata.
Halldóra Mogensen og Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­menn Pírata. Mynd: Aðsend

Sjö stjórn­málaflokkar sem sæti eiga á Alþingi skiluðu árituðum ársreikningi sínum til Ríkis­endur­skoðunar áður en lögbundinn frestur til þess rann út 1. nóvember síðastliðinn.

Sá eini sem skilaði ekki á réttum tíma voru Píratar, en ársreikningur þeirra barst ekki fyrr en 23. nóvember. Í svari Skúla Eggerts Þórðar­sonar ríkis­endur­skoðanda við fyrir­spurn Kjarnans segir að athuga­semdir hafa verið gerðar af Ríkis­endurskoðun við reikninginn og að hlut­aðeigandi stjórnmála­samtök, sem eru Píratar, hafi fengið frest til að bæta úr annmörkunum. „Að því loknu að því skilyrði uppfylltu að bætt hafi verið að fullu úr annmörkum verða upplýsingarnar birtar á vef Ríkis­endur­skoðunar.“

Reikningar allra annarra stjórn­málaflokka sem eiga fulltrúa á þingi hafa verið birtir á heimasíðu Ríkis­endur­skoðunar. Kjarninn hefur þegar birt umfjöllun um þá alla.

Píratar fóru líka yfir lögbundinn frest til að skila inn réttum ársreikningi í fyrra, en reikningur flokksins var þá ekki birtur á heimasíðu Ríkis­endur­skoðunar fyrr en 11. desember. Þá barst reikningur Flokks fólksins líka seint, en honum var skilað á réttum tíma í ár.

Eyddu nánast öllu í rekstur

Á árinu 2019 högn­uð­ust Píratar um 2,6 millj­ónir króna. Tekjur flokks­ins, sem eru nær ein­vörð­ungu úr opin­berum sjóð­um, voru 86 millj­ónir króna. Mest mun­aði um fram­lög úr rík­is­sjóði til flokks­ins sem námu tæpum 83 millj­ónum króna.

Rekstr­ar­kostn­aður Pírata var 82 millj­ónir króna. Þar af kost­aði rekstur aðal­skrif­stofu 65 millj­ónir króna og rekstur þing­flokks Pírata 15,1 milljón króna. Það þýðir að 95,5 pró­sent af tekjum Pírata fór í rekstr­ar­kostnað á síð­asta ári.

Flokkurinn skar sig úr í stjórn­málaflokka­flórunni með því að eyða svona stórum hluta tekna sinna í rekstur. Hinir lögðu flestir tugi milljóna króna til hliðar á árinu 2019. Sömu sögu er að segja um síðasta ár, og kosninga­sjóðir þeirra fyrir þing­kosningarnar sem fóru fram í september því digrir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár