Vaxandi koparþjófnaður lamar lestarsamgöngur í Danmörku

„Gæðakopar - gulls ígildi.“ Þessa fyrirsögn mátti lesa á dönskum netmiðli fyrir nokkrum dögum. Tilefni fyrir­sagnarinnar var að kopar­þjófar hafa að undan­förnu gerst stórtækir í „störfum“ sínum. Í liðinni viku hafa þeir fimm sinnum lamað hluta danska lesta­kerfisins með því að klippa sundur rafmagns­kapla dönsku járn­brautanna og í öll skiptin haft á brott með sér hundruð kílóa af kopar. Vanda­málið er ekki nýtt af nálinni og hreint ekki bundið við Danmörku.

Í nýliðinni viku birtust daglega í dönskum fjöl­miðlum fréttir af kopar­þjófunum, eins og þeir eru kallaðir. Með fréttunum fylgdu gjarna myndir af sundur­klipptum köplum og viðgerða­mönnum járn­brautanna sem keppast við að koma fyrir nýjum rafmagns­köplum í stað þeirra stolnu.

Gangverð á kopar er frá 40 til 90 krónur kílóið (ca. 800 – 1.800 íslenskar krónur) fer eftir gæðum málms­ins.

Danska lesta­kerfið er í raun tvískipt, fyrir utan Metrokerfið í Kaupmanna­höfn. Annars vegar lestir sem ganga fyrir olíu og hinsvegar hinar svonefndu S-lestir sem eru rafknúnar. S-lestirnar voru upphaf­lega bundnar við Kaupmanna­hafnar­svæðið en ná nú yfir mun stærrri hluta Sjálands. Þær eru hljóð­látari, umhverfis­vænni og eyðslu­grennri en dísil­lestirnar, raforkan er flutt með köplum sem lagðir eru í teinana. Það eru þessir kaplar sem freista hinna fingra­löngu. Teinarnir liggja víða um svæði þar sem fáir eru á ferli, slík svæði og nátt­myrkrið eru eftirlæti þjófanna.

Köplum stolið annan hvern dag á síðasta ári


Árið 2014 var upp­gripaár hjá kapla­þjófum hér í Danmörku. Í 173 skipti beittu þeir klipp­unum og þótt kíló­verðið á kopar sé ekki sér­lega hátt (sé miðað við gull) hafa þeir haft tals­vert uppúr krafs­inu. Gangverð á kopar er frá 40 til 90 krónur kílóið (ca. 800 – 1.800 íslenskar krónur) fer eftir gæðum málms­ins.

Starfs­menn járn­brautanna huga að sundur­klipptum rafmagns­vírum.

Starfsmenn járnbrautanna huga að sundurklipptum rafmagnsvírum.
Starfs­menn járn­braut­anna huga að sund­ur­klipptum raf­magns­vírum.

Talsmaður dönsku járn­brautanna hefur ekki viljað upplýsa nákvæmlega hversu mikinn kopar þjófarnir hafa komist yfir en fjöl­miðlar telja að andvirði koparsins nemi fimm og hálfri milljón króna (ca. 110 milljónir ísl.). Þá er ótalinn annar kostnaður, laun viðgerða­manna, strætis­vagnar til að bjarga málum og svo framvegis. Tjónið er þó mest hjá farþegunum, sem ekki komast leiðar sinnar á tilsettum tíma. Starfs­fólk dönsku járn­brautanna veit ekki með vissu hversu margir ekki hafa komist leiðar sinnar þegar ferðir hafa fallið niður en daglega ferðast nærri 360 þúsund manns með S-lestunum.

En af hverju er kopar í köplunum?


Ástæða þess er ein­fald­lega sú að kopar er sá málmur (að silfri und­an­skildu) sem hefur hvað besta raf­leiðni. Á síð­ustu árum hefur reyndar orðið mikil þróun í notkun áls í raf­magn­s­kapla og í dag eru nær allir nýir kaplar sem dönsku járn­braut­irnar nota gerðir úr áli. Þegar þjófarnir klippa sundur álkapal (sem hefur margoft gerst) og sjá að hann er úr áli hraða þeir sér á brott.

Utanbæjarmenn!


Íslend­ingar þekkja vel úr fréttum af drykkjulátum og óspektum úti á landi að oft er sér­stak­lega tekið fram að „utan­bæj­ar­maður“ hafi átt í hlut. Hér í Danmörku hefur ekki tek­ist að upp­lýsa marga þjófn­aði á kop­ar­köplum. Lög­reglan telur sig þó vita að í mörgum til­vikum séu það erlendir rík­is­borg­arar, meðal ann­ars frá Rúmeníu, sem eigi í hlut. Fyrir nokkrum dögum hand­tóku lag­anna verðir tvo menn sem staddir voru hjá brota­járns­sala (sem ekki hefur starfs­leyfi) í Suð­ur­höfn­inni í Kaup­manna­höfn, þeirra erinda að selja kop­arkapla merkta dönsku ján­braut­unum. Menn­irnir sem eru með rúm­ensk vega­bréf sitja nú í grjót­inu.

Ráð­herr­ann nefndi einnig að brota­járns­salar ættu að hugsa sig vel um áður en þeir kaupi góss sem aug­ljós­lega sé illa fengið.

Kopar­málið, eins og það er kallað hefur nú náð inn í danska þingið (Folketinget) og margir þingmenn krefjast þess að strangar verði tekið á kopar­þjófunum, en fram til þessa hefur refsing við slíku afbrotum verið nokkurra mánaða fangelsi.

Blek og DNA merki


Í við­tali við einn dönsku fjöl­miðl­anna sagði sam­göngu­ráð­herr­ann Magnus Heunicke að mjög kostn­að­ar­samt yrði að skipta öllum raf­magn­s­köplum dönsku járn­braut­anna út. Svo kostn­að­ar­samt að slíkt kæmi vart til greina. Ráð­herr­ann sagði að lög­reglan væri með ýmis konar aðgerðir í und­ir­bún­ingi en vildi ekki útskýra það nánar. Hann nefndi einnig að til greina kæmi að koma fyrir DNA merkjum í köplunum, það hafa Þjóð­verjar, Bretar og Hol­lend­ingar gert með góðum árangri. Bretar hafa sömu­leiðis notað sér­stakt blek sem klín­ist á þann sem kemur við kaplana.

Ráðherrann nefndi einnig að brotajárns­salar ættu að hugsa sig vel um áður en þeir kaupi góss sem augljós­lega sé illa fengið. Að lokum nefndi ráðherrann að eftirlit með járn­brautar­teinum S-lestanna hefði nú verið stóraukið. Hvort slíkt dugir til að koma í veg fyrir frekari þjófnaði, eða fækka þeim, verður tíminn að leiða í ljós.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár