Umhverfisstofnun nýtir ferðamannaleysið til uppbyggingar

Heildar­kostnaður Umhverfis­stofnunar vegna innviða­uppbyggingar verður yfir 800 milljónir á þessu ári. Nú nýtist tíminn á meðan COVID-19 faraldri stendur til að laga göngu­stíga, bílastæði og endurnýja salerni á hinum ýmsu stöðum á landinu.

Framkvæmdir eru hafnar við endurnýjun á göngustíg og útsýnispalli á efra svæði við Gullfoss.
Fram­kvæmdir eru hafnar við end­ur­nýjun á göngu­stíg og útsýnis­palli á efra svæði við Gullfoss. Mynd: Umhverfisstofnun

Umhverfis­stofnun hyggst ráðast í innviða­uppbyggingu á um 30 stöðum á landinu á þessu ári. Þetta kemur fram í svari stofnunarinnar við fyrir­spurn Kjarnans.

Samkvæmt svarinu mun heildar­kostnaður framkvæmd­anna vera um 844.345.000 krónur en þessi tala felur ekki í sér framkvæmdir á þjóðgarðs­miðstöð á Hellis­sandi þar sem þær eru nú í útboðs­ferli.

Fram kom á vef Umhverfis­stofnunar þann 8. maí síðastliðinn að framkvæmdir væru hafnar við endurnýjun á göngustíg og útsýnis­palli á efra svæði við Gullfoss.

Verið væri að útbúa hjáleið frá Gull­fosskaffi að stiga. Leið að útsýnis­palli á efra svæði yrði lokuð á meðan framkvæmdir standa yfir. Við neðra bílastæði eru engar framkvæmdir í gangi, samkvæmt Umhverfis­stofnun, og fært er niður að fossi.

„Umhverfis­stofnun biður gesti velvirðingar á þeirri röskun sem þessar þessar framkvæmdir gætu haft í för með sér en minnir jafnframt á ábatann sem af hlýst, íslenskri náttúru til verndar,“ segir á vefnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár