Jonas Gahr Støre í hlutabréfabraski - Fjölskyldan virkur fjárfestir á markaði

Jonas Gahr Støre, formaður Verkamanna­flokksins í Noregi, er ekki aðeins einn virtasti stjórn­málamaður Noregs heldur er hann einnig vellauðugur en fjöl­skyldan hans, Støre-fjöl­skyldan, rekur fjár­festinga­félagið Femstø.

Árið 2013 átti það hlutabréf fyrir 10 milljónir norskra króna, eða sem nemur ríflega 160 milljónum króna. Á árinu 2014 fjárfesti það enn meira í hluta­bréfum og nam hluta­fjáreignin meira en þrefaldri upphæð, 38 milljónum norskra króna, eða ríflega 600 milljónum. Þá námu innlán félagsins um tveimur milljónum norskra króna, eða um 32 milljónum króna, að því er fram kemur á vef norska viðskipta­frétta­miðilsins Dagens Næringsliv í dag.

Jonas Gahr á sjálfur 76 prósent hlut í félaginu en synir hans þrír, Magnus, Vetle og Ola Gullik eiga tæplega fjórðungs­hlut í sameiningu.

Jonas Gahr var utan­ríkis­ráðherra Noregs á árunum 2005 til 2012 og heilbrigðis­ráðherra á árunum 2012 og 2013. Þá var hann framkvæmda­stjóri Alþjóða­heilbrigðis­mála­stofnunarinnar (WHO) á árunum 1998 til 2000, og hefur árum saman verið einn nánast banda­maður Gro Harlem Brundtland, fyrr­verandi forsætis­ráðherra Noregs.

Fjölskylduauð Støre-fjöl­skyldunnar má rekja til föður Jonasar, hin níræða Ulf Jonas Støre, en hann byggði upp starfsemi skipa­þjónustu í Noregi og keypti og seldi skip til skipa­félaga í Norður-Evrópu.


Jonas Gahr Støre @jonasgahrstore går tungt inn i aksjer. http://t.co/5vgcMTFubj


— DN.no (@DN_no) September 22, 2015

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár