Verkfall í Noregi gæti hækkað olíuverð

Óttast er hækkunar á olíuverði vegna yfir­standandi verkfalls norskra starfs­manna á olíu­borpöllum.

Lokun olíuborpalla í Noregi gæti þrýst upp heimsmarkaðsverði á olíu.
Lokun olíu­bor­p­alla í Noregi gæti þrýst upp heims­mark­aðs­verði á olíu. Mynd: EPA

Meira en 600 norskir starfs­menn á olíu­borpöllum eru komnir í verkfall, en búist er við verð­hækkunum á heims­markaðs­verði á olíu í kjölfarið. Þetta kemur fram í frétt Dagens Næringsliv í gærkvöldi.

Ljóst var í gær að samningar myndu ekki nást milli Sambands norskra skipa­eigenda (e. Rederiforbundet) og Verkalýðs­félags orku­geirans í Noregi (e. SAFE) og munu því yfir 600 starfs­menn olíu­borpalla hefja verkfall. Náist samningar ekki fyrir næst­komandi sunnudag munu 900 meðlimir verkalýðs­félagsins einnig leggja niður störf. Vegna verkfalls­ógnar upplýsti Shell svo í gær að starfsemi á Knarr-svæðinu yrði stöðvuð.

Í umfjöllun Dagens Næringsliv er haft eftir Commerzbank að þrátt fyrir að lítill hluti olíu­framleiðslu á heimsvísu muni laskast vegna verkfalls­aðgerðanna gætu þær haft áhrif á olíuverð þar sem markaðurinn sé nú þegar í þröngri stöðu. Í frétt Financial Times um málið er verk­fallinu lýst sem dæmi um hve viðkvæmur hrávöru­markaðurinn er gagnvart litlum röskunum.

Olíuverð hefur farið nokkuð hækkandi undan­farin misseri, en samkvæmt ráðgjafa Dagens Næringsliv eru þær aðallega vegna framboðs­minnkunar í Líbíu auk viðskipta­banns Banda­ríkjanna við Íran. Norski hlutabréfa­markaðurinn hefur notið góðs af þessum hækkunum, en vísitala hans hækkaði um 1,18 prósent í kjölfar olíu­verð­hækkananna í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár