Economist: Önnur kreppa handan við hornið, bara spurning um tíma

Fjallað er um stöðu efnahags­mála í heiminum í nýjustu útgáfu The Economist. Mikil skuld­setning og hækkandi vextir valda áhyggjum.

Önnur kreppa, sambærileg við þá sem varð fyrir áratug á alþjóða­mörkuðum, er á leiðinni og það er aðeins spurning um hvenær.

Frá þessu er greint í ítarlegri umfjöllun í The Economist sem kom til áskrifenda í gær.

Ástæðan er meðal annars viðkvæmt skulda­staða þjóðríkja, fyrir­tækja og heimila víða um heim, eftir áratugstímabil örvunar­aðgerða seðla­banka í heiminum.

Er sérstak­lega vikið að stöðu mála í Banda­ríkjunum, og tekið fram að margt bendi til þess að tími mikillar uppsveiflu sé nú að líða undir lok, en samkvæmt rann­sóknum á hagþróun í Banda­ríkjunum og endast uppsveiflur þar yfirleitt ekki mikið lengur en áratug.

Um þessar mundir eru hagtölur að mörgu leyti jákvæðar; atvinnu­leysi er um 4 prósent, hagvöxtur er í viðvarandi og töluverður uppgangur er víða.

Það sem helst bendir til þess að nú sé að fara þrengja að, jafnvel með dramatískum breytingum, er vaxandi verðbólgu­þrýstingur víða og vaxta­hækkanir. Mikil skuld­setning sé hættuleg við slíkar aðstæður. Seðla­banki Banda­ríkjanna er nú í vaxta­hækkana­ferli og samkvæmt spá bankans verða vextirnir komnir í 3,5 prósent árið 2020, en þeir eru nú 2,25 prósent. Seðla­banki Evrópu er síðan að hætta örvunar­aðgerðum sínum í desember, en hann hefur keypt skulda­bréf á markaði fyrir 60 milljarða evra í hverjum mánuði undan­farin ár, til að örva hagvöxt.

Samkvæmt spá bankans má reikna með hækkun vaxta og aukinni verðbólga, á næsta ári.

Í þessari stöðu er einnig nefnt, að breytingar á viðskipta­samningum - með tolla­stríð Banda­ríkjanna og Kína í algleyminingi - séu afar áhættu­samar, og geti komið af stað alvarlegri efnahags­þróun. Þannig er Kína með mikla skuld­setningu víða um landið, bæði hjá fyrir­tækjum og hinu opinbera. Með auknum fjármagns­kostnaði þurfi ekki endilega mikið til þess, að skapa kjör­aðstæður fyrir nýja kreppu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár