FBI leitar að Campbell-súpu verkum Andy Warhol

Sjö teikningum eftir Andy Warhol var stolið að morgni 7. apríl og leita FBI nú þjófana.

Alríkis­lögreglan í Banda­ríkjunum, FBI, er tilbúin að borga 25 þúsund Bandaríkja­dali, sem nemur um 3,2 milljónum króna, fyrir upplýsingar sem leitt geta til þess að sjö verk úr hinni svokölluðu Campbell-súpu röð eftir list­goðsögnina Andy Warhol, komist í leitirnar. Þeim var stolið að morgni 7. apríl úr lista­safninu Springfield Art Museum í Missouri. Ekki er um upphaf­legu verk Warhols að ræða, heldur tíu verk sem hann gerði árið 1968, sem byggð eru á frum­gerðinni, sem eru frá 1962.

Verkin eru metin á 500 þúsund Bandaríkja­dali, eða sem nemur 65 milljónum króna.

Upphaf­legu verk Warhols af Campbell-súpu röðinni eru í eigu Nýlistasafnins í New York; MoMA. Verkin keypi safnið árið 1996 af listaverka­salanum Irving Blum fyrir fimmtán milljónir Bandaríkja­dala, eða sem nemur tæplega tveimur milljörðum króna. Hann hafði keypt verkin fyrir þúsund dali, um 130 þúsund krónur, tæpum tuttugu árum fyrr.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár