Misheppnaður einkarekstur

Á síðustu árum hafa einka­fyrirtæki í stór­auknum mæli annast þjónustu við aldraða í Danmörku sem áður var eingöngu á könnu sveitar­félaganna. Tilgangurinn var að ná fram hagkvæmni og samkeppni. Þetta nýja fyrir­komulag hefur reynst misjafnlega og fyrir­hugaður sparnaður iðulega haft í för með sér aukinn kostnað.

Fyrir þremur árum setti danska ríkis­stjórnin á laggirnar nefnd sem ætlað var að gera tillögur um bættan rekstur hins opinbera á fjölmörgum sviðum og skoða sérstak­lega þá þætti sem æskilegt og hagkvæmt væri að færa frá ríki og sveitar­félögum til einka­fyrirtækja. Tilgangurinn var að auka fram­leiðni og hagkvæmni en rann­sóknir sýndu að Danir höfðu dregist aftur úr nágannaþjóðunum og dregið hafði úr samkeppnis­hæfni. Nefndin sem fékk nafnið Produktivitetskommission var skipuð níu sérfræðingum úr ýmsum áttum. Henni var ætlað að vinna hratt og fyrst og fremst að koma með tillögur eða ábendingar en ekki útfærslur. Meðal þess sem nefndin lagði til var að einka­fyrirtækjum yrði gefinn kostur á að annast ýmis konar þjónustu við aldraða, ekki síst heima­þjónustu sem hefur aukist mjög á undan­förnum árum, með tilheyrandi kostnaði. Þessi aukna þjónusta helst í hendur við sístækkandi hóp aldraðra. Í Danmörku hefur á undan­förnum árum farið fram mikil umræða um þessi mál.

Margir vildu taka að sér þjónustuna

Árið 2013 var einka­fyrirtækjum gert kleift að taka að sér heima­þjónustuna, eftir útboð. Fjölmörg fyrirtæki, stór og smá, sýndu þessari starfsemi áhuga. Sum urðu til í tengslum við útboðin, önnur höfðu sinnt skyldum verkefnum. Mörg sveitar­félög gengu til samninga við einka­fyrirtæki um heima­þjónustuna. Í flestum tilvikum var gengið til samninga við fyrirtæki sem best höfðu boðið, það er lægsta verðið, enda var yfir­lýstur tilgangur útboðanna sparnaður og hagkvæmni.

Ánægja og efasemdir

Margir stjórn­málamenn lýstu mikilli ánægju með að hægt væri að nýta betur takmarkaða fjármuni, meðal annars þáverandi þing­flokks­formaður Venstre og núverandi utan­ríkis­ráðherra, Kristian Jensen.


Ekki voru allir jafn ánægðir og meðal annars lýsti Einingar­listinn sig algjör­lega mótfallinn útboðs­leiðinni. Talsmaður flokksins, Johanne Schmidt-Nielsen, sagði í viðtölum að rétt væri að stíga varlega til jarðar, alltof margir væru með gróða­glýju í augum. Hún benti að á Svíar hefðu slæma reynslu af einka­rekstri í þjónustu við eldri borgara, mörg fyrirtæki hefðu komist í þrot en eigendurnir áður verið búnir að koma miklu fé undan. Útkoman einfald­lega lakari þjónusta, aukinn kostnaður og óvissa.

Erfiður rekstur og mörg fyrirtæki í þrot

Ekki voru liðnir margir mánuðir frá því að einka­fyrirtækin tóku að sinna heima­þjónustunni þangað til í ljós kom að hjá mörgum þeirra gekk ekki allt sem skyldi. Mörg stóðu á afar veikum fjárhags­legum grunni og höfðu algjör­lega vanmetið kostnaðinn sem starfseminni fylgdi, óveðurs­skýin hrönnuðust upp eins og það er orðað. Strax árið 2013 (sama árið og einka­reksturinn hófst) urðu nokkur fyrirtæki gjald­þrota og nú hafa tæplega tuttugu fyrirtæki sem sinnt hafa einka­þjónustunni komist í þrot og mörg önnur standa tæpt.

Sveitarfélögin sitja uppi með vandann

Á undan­förnum vikum hafa þrjú tiltölu­lega stór fyrirtæki sem sinna heima­þjónustu orðið gjald­þrota. Þetta hefur beint athygli fjölmiðla að rekstrinum og Sophie Löhde heilbrigðis­ráðherra, sem jafnframt fer með málefni aldraðra, hefur sagt í viðtölum að þessi mál séu afar snúin og vandmeðfarin. „Mér virðist augljóst að mörg sveitar­félög hafi ekki vandað valið á fyrir­tækjunum nægilega vel og ekki gengið úr skugga um hvort þau hefðu burði til að sinna þjónustunni“ sagði ráðherrann í viðtali við Danska sjón­varpið.

Ekki búið að reikna út hagkvæmnina

Komið hefur í ljós að þegar sveitar­félögunum var heimilað að bjóða út heima­þjónustuna var ekki búið að reikna út hvort útboðs­leiðin væri í raun hagkvæmari. Þeir sem gagnrýndu útboðin héldu því fram að sveitar­félögin væru best til fallin að annast þjónustuna og ekki væri mögulegt að gera hlutina með ódýrari hætti. Nú er komið í ljós að gagn­rýnendur höfðu ýmislegt til síns máls. Þótt einka­fyrirtæki byðu þjónustuna fyrir, í mörgum tilvikum, lítið lægri upphæð en sveitar­félögin hafa gjald­þrotin orðið til þess að kostnaðurinn verður nú mun hærri en áður. Ástæðurnar eru þær að sveitar­félögin hafa orðið að grípa til alls kyns skyndi­lausna til að bjarga málum þegar allt hefur verið komið í óefni.

Tillögur

Eins og áður sagði standa mörg fyrirtæki sem sinna einka­þjónustu við aldraða tæpt og heilbrigðis­ráðherrann hefur sagt að þeim fyrir­tækjum muni líklega fjölga á næstu mánuðum. Nauðsynlegt sé að móta stefnu um hvernig skuli bregðast við. Fyrst og fremst vegna fólksins. Þeir sem komnir eru á efri ár setji öryggi og festu framar öllu öðru. Það eigi samfélagið að tryggja. Til að svo megi verða hefur embætti ríkis­lögmanns (kammeradvokaten, einka­fyrirtæki sem vinnur fyrir ríkið) samið leið­beiningar og ráðleggingar um hvernig staðið skuli að útboðum, hvaða atriða þurfi að líta til við slík útboð til að reyna að tryggja að ekkert fari úrskeiðis. Leið­beiningarnar eru ítarlegar (36 blaðsíður) en hvort þær muni duga er of snemmt að segja til um. Hinu má slá föstu: öldruðum Dönum fjölgar ört. Það er reyndar sama sagan í mörgum öðrum Evrópu­ríkjum. Fyrr­verandi ráðherra í Danmörku sagði um þetta mál að ekki sværi seinna vænna að leita lausna, fjölgun aldraðra væri ein mesta áskorun sem landið hefði staðið frammi fyrir. Eins og mörg önnur lönd. Undir þetta geta eflaust margir tekið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár