Sviðslistanemendur LHÍ fara í skólagjaldaverkfall

Nemendur sviðs­lista­deildar Lista­háskóla Íslands ætla ekki að greiða skóla­gjöld vorannar í ár vegna bágrar aðstöðu og þjónustu. Myglað, lekandi og óeinangrað húsnæði meðal umkvörtunar­efna.

Fríða Björk Ingvarsdóttir er rektor Listaháskóla Íslands.
Fríða Björk Ingv­ars­dóttir er rektor Lista­há­skóla Íslands. Mynd: Flickr.

Nemendur sviðs­lista­deildar Lista­háskóla Íslands ætla ekki að greiða skóla­gjöld vorannar 2018. Í tilkynningu frá nemendunum kemur fram að slæm aðstaða deildarinnar og síversnandi þjónusta við nemendur hennar komi í veg fyrir að þau geti stundað nám í list­greinum sínum eins og lagt var upp með þegar skóla­ganga þeirra við Lista­háskóla Íslands hófst.

„Við teljum okkur hafa verið svikin um þá þjónustu og aðstöðu til náms sem okkur var lofað. Þessi aðgerð er því ekki aðeins gerð í mótmæla­skyni til að hreyfa við stjórn og stjórn­endum skólans, heldur á grund­velli þess að algjör forsendu­brestur hafi orðið í viðskipta­sambandi okkar við skólann,“ segir í tilkynningunni.

Þau segjast árum saman hafa kvartað yfir slæmum aðbúnaði og þjónustu við sig án þess að komið hafi verið til móts við þau með fullnægjandi hætti. Þvert á móti hafa aðstæður nemenda deildarinnar versnað samhliða því að skóla­gjöld hækka með hverju ári sem líður.

„Þolinmæði okkar er á þrotum. Okkur er því sá einn kostur fær að halda eftir skóla­gjöldum þessarar annar enda um alvarlegan forsendu­brest að ræða af hálfu skólans.“

Þau hyggjast auk þess ganga út úr skólanum eftir hádegi á afhendingar­degi bréfsins, í dag, og mæta ekki í skólann eftir hádegi í mótmæla­skyni. Biðja þau stjórn skólans að taka afstöðu til kröfunnar og birta rökstudda ákvörðun sína fyrir mánudaginn 5. febrúar.

Í forsendu­brestinum felst meðal annars að húsnæði Lista­háskólans við Sölvhólsgötu 13 henti hvorki til reksturs háskóla né iðkunar sviðs­lista. Þar sé ekki aðgengi fyrir fatlaða sem er brot á lögum, húsnæðið sé sýkt af myglu sem og í niður­níðslu. Svo dæmi sé tekið sé það daglegt brauð að leki úr skólp­rörum og úr lofti í rýmum skólans. Engin les- eða vinnu­aðstaða sé til staðar, ekkert mötuneyti né bókasafn og önnur rými sem nemendur hafa til notkunar í list­sköpun sinni henta ekki við iðkun sviðs­lista. Sem dæmi um þetta er að dans­stúdíó skólans er óeinangraður skúr.

Nemendurnir kvarta einnig yfir því að utan­aðkomandi aðilar fái ítrekað aðgang að rýmum sem þau eigi að hafa til umráða og greiði fyrir með skóla­gjöldum sínum. Þá sé aðeins einn tækni­maður við störf sem þjónustar tæplega 50 nemendur deildarinnar sem eru allir að vinna að sýningum á sama tíma, auk annarra umkvörtunar­efna.

Hægt er að lesa bréfið í heild sinni hér.

Þau segja sig hafa verið svikin um bæði þjónustu og aðstöðu til náms sem þeim var lofað. Öll hafi þau ástríðu fyrir námi sínu og vilji gera allt til að stunda það af metnaði, en óviðunandi aðstæður geri þeim það nær ómögulegt. „Lista­háskólinn er eini skólinn á Íslandi sem kennir sviðs­listir á háskóla­stigi og hafa metnaðar­fullir nemendur því neyðst til að stætta sig við aðstæðurnar allt of lengi.“

Nemendurnir segjast inna af hendi greiðslu skóla­gjalda gegn því að háskóla­stofnunin uppfylli skilyrði til náms samkvæmt 3. grein laga um háskóla. Núverandi ástandi verði ekki lýst með þeim hætti að LHÍ hafi staðið við skuld­bindingu samkvæmt slíkum samningi samkvæmt lögunum.

Undir tilkynninguna rita allir nemendur sviðs­lista­deildar, auk þess sem nemendur annarra deilda skólans leggja stuðning sinn við bréfið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár