Hraðbraut yfir sundin er „byggð á einhverri fortíðarþrá“

Varað er við því að draga upp „gömul og rykfallin“ plön til að skapa atvinnu vegna COVID. Sunda­braut sem hraðbraut er slíkt plan, segir borgar­fulltrúi Pírata. Oddviti sjálfstæðis­manna segir það gleymast að Reykjavík sé borgin við sundin sem þarfnist brúa.

Sigurborg Ósk Haraldsdóttir og Eyþór Arnalds ræddu Sundabraut í Silfrinu á RÚV í morgun.
Sig­ur­borg Ósk Har­alds­dóttir og Eyþór Arnalds ræddu Sunda­braut í Silfrinu á RÚV í morgun.

Sunda­braut er hagsmunamál allra lands­manna, sagði Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðis­flokksins í borgar­stjórn í Silfrinu á RÚV í morgun þar sem farið var yfir ýmsa þætti borgar­málanna. Sigurborg Ósk Haralds­dóttir, formaður skipulags- og samgöngu­ráðs og fulltrúi Pírata í borgar­stjórn, sagði Sunda­braut ekki slæman valkost en þó aðeins ef hún yrði ekki hraðbraut sem myndi rýra loftgæði og kljúfa hverfi.

Sunda­braut er nú enn einu sinni komin inn í umræðuna. Leiðin sem hefur verið á teikniborðinu í marga áratugi. Markmið Sunda­brautar hefur m.a. verið það að tengja hverfi borgarinnar betur saman en einnig að létta á umferð á öðrum stofn­brautum.

En frá því að Sunda­braut var fyrst nefnd til sögunnar hefur ýmislegt breyst í straumum og stefnum skipulags­mála og áhersla síðustu ára hjá Reykja­víkurborg hefur legið í því að bæta almennings­samgöngur og aðgengi hjólandi og gangandi vegfarenda. Nú er nefnd að störfum sem á að skoða fýsileika tveggja valkosta við Sunda­braut: Að hafa hana í brú eða jarð­göngum.

Sigurborg sagði við skoðun á Sunda­braut yrði að taka með í reikninginn hvaða áhrif hún myndi hafa á borgarbúa. „Ef við ætlum að byggja Sunda­braut sem hraðbraut þá mun hún kosta okkur mörg mislæg gatnamót og hún mun skera Grafar­voginn og Vogabyggð og byggðina þar í kring mjög mikið. Og hún mun hafa mjög neikvæð áhrif á loftgæði, neikvæð áhrif á umferð og hún mun skapa aukna [bíla]umferð.“

Í Evrópu hefur að sögn Sigur­borgar ítrekað verið bent á að ríkis­stjórnir „megi ekki draga upp gömul og rykfallin plön og skella þeim fram eftir COVID til að skapa atvinnu ef að þessi sömu plön vinna gegn loftslags­málum. Og það er einmitt það sem Sunda­brautin mun gera ef hún verður hraðbraut.“

Hún sagði Sunda­braut í sjálfu sér ekki slæman valmöguleika en hún yrði þá að vera hugsuð fyrir alla samgöngu­máta. Þá myndi hún ekki hafa jafn neikvæð áhrif á borgarbúa og ef hún yrði gerð að hraðbraut fyrir bíla.

Þurfum tengingar og brýr

„Það gleymist stundum að við erum borgin við sundin,“ sagði Eyþór. „Við erum með takmarkaðar tengingar. Við, eins og Stokk­hólmur og San Francisco, erum þannig að við þurfum brýr. Við þurfum tengingar og brautir sem tengja svæðin saman. Sunda­brautin tengir ekki bara Reykjavík heldur höfuð­borgina við Vestur­land og Norður­land. Þetta er hagsmunamál alls landsins og órjúfanlegur hluti samgöngu­sáttmálans. Sunda­braut er ekki bara einhver hugmynd inni í sátt­málanum, hún er hluti sátt­málans. Borgin þarf að klára þessi skipulagsmál.“

Sagði hann því skjóta skökku við að verið væri að byggja hverfi þar sem bíllaus lífsstíll yrði í hávegum hafður „þvert á vegstæði Sunda­brautar“ á sama tíma og borgar­stjóri hafi boðað að Sunda­brautin ætti ekki að vera við hliðina á íbúabyggð. „Það er ákveðin vanvirðing við verkefnið.“

Sagðist hann sammála seðla­bankastjóra um að klára hefði átt Sunda­braut fyrir löngu. „Ef við skipuleggjum ekki fram­tíðina þá verður hún klúður. Og við erum búin að sjá of mörg klúður.“ Fleiri stofnæðar í borginni væru nauðsynlegar.

Peningar til fyrir skynsamleg verkefni

Sigurborg sagði það ekki þannig að með uppbyggingu nýrra hverfa væri verið að koma í veg fyrir að Sunda­braut verði möguleg. Í Gufunesi væri að hefjast uppbygging íbúða­byggðar sem vissulega væri nálægt því vegstæði sem nefnt hafi verið fyrir Sunda­braut í fjóra áratugi. Uppbygging Voga­byggðar, „þar sem Sjálfstæðis­flokkurinn hefur barist fyrir því að Sunda­braut ætti að liggja,“ er svo þegar hafin. „Ég held að íbúar Reykja­víkur vilji frekar fá íbúðir fyrir almennan markað og fyrir fjöl­breyttan hóp fólks heldur en hraðbraut á þennan stað.“

Sagði hún það „galna röksemda­færslu“ halda því fram að ekki væru til 100 milljarðar fyrir nýjan flugvöll og þess vegna yrði að byggja upp í Keldna­landi og Örfirisey og leggja Sunda­braut, framkvæmd upp á 70 milljarða. „Þá ertu ekki að taka ákvörðun sem er best fyrir íbúana, ekki að taka ákvörðun sem er best fyrir lofts­lagið og þetta er furðuleg ákvörðun sem er byggð á einhverri fortíðarþrá.“

Eyþór benti á að það væri borgin sjálf sem hefði samþykkt að flug­völlurinn yrði áfram í Vatnsmýri þar til annar kostur kæmi fram. „Sunda­braut er huguð sem sjálfbær framkvæmd þar sem þeir borga sem nota. Það liggur ekki fyrir að innan­landsflugið geti borgað 100 milljarða framkvæmd, þvert á móti þá er núna verið að tala um neyðar­ráðstafanir til að halda því uppi. Þannig að það eru ekki til peningar til að flytja flug­völlinn.“

Sigurborg sagðist ekki vilja trúa því að ekki væru til peningar til að byggja borg fyrir fólk en að það væru til fjarmunir til að breyta borginni „í umferðar­eyju“.

„Peningar eru til í þau verkefni sem menn telja skyn­samleg,“ svaraði Eyþór þá. „Ef borgar­línan væri góður kostur í framkvæmd þá tel ég að það væri best að þið mynduð bjóða verkefnið út og að lífeyris­sjóðir og aðrir gætu tekið að sér framkvæmdina. Sunda­braut er talin vera kostur sem gengur upp fjárhags­lega.“

Þetta viðhorf Eyþórs fannst Sigurborgu sýna að hann hefði ekki grundvallar­skilning á því hvernig almennings­samgöngur virka. „Hið opinbera þarf alltaf að styðja við almennings­samgöngur og þær hafa miklu betri áhrif á samfélagið í heild sinni, þær hafa alltaf það jákvæð áhrif að það borgar sig fyrir opinbera aðila að styðja við almennings­samgöngur.“

Benti hún svo á að framkvæmdir við borgar­línu væru þegar komnar af stað að vissu leyti, við nýja meðferðar­kjarna Land­spítalans og í Valla­hverfi í Hafnar­firði. Þær færu svo af stað af þunga á næsta og þarnæsta ári. „Þannig að þetta er bara handan við hornið“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár