Ekkert bendir til að kostnaður við Borgarlínu sé vanmetinn

Að und­an­förnu hafa ýmsir full­yrt að kostn­að­ur­inn við upp­bygg­ingu Borg­ar­línu verði mun meiri en kostn­að­ar­á­ætlun frá árinu 2017 segir til um. Ekkert bendir þó til þess, segja starfs­menn Verk­efna­stofu Borg­ar­línu sem Kjarninn ræddi við í vik­unni.

Íbúar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu ættu að byrja að sjá þess veru­leg merki að Borg­ar­lína sé á leið­inni á síð­ari hluta árs 2022, að sögn þeirra Hrafn­kels Á. Proppé og Lilju G. Karls­dóttur, sem starfa saman hjá Verk­efna­stofu Borg­ar­línu. Þau segja ekk­ert benda til þess að sú kostn­að­ar­á­ætlun sem gerð var fyrir borg­ar­línu­verk­efnið árið 2017 og hljóðar upp á 63-70 millj­arða króna stofn­kostnað við kerfið fram til árs­ins 2040, stand­ist ekki í stórum dráttum.

Kjarninn sett­ist niður með þeim í lið­inni viku og ræddi um stöðu og fram­gang borg­ar­línu­verk­efn­is­ins, sem hefur verið mikið í umræð­unni á und­an­förnum miss­erum. Mjög oft fara þær umræður fram á þeim for­sendum að kostn­að­ur­inn við verk­efnið verði svo mik­ill að hann muni sliga sjóði sveit­ar­fé­lag­anna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Hrafn­kell, sem er for­svars­maður Verk­efna­stofu Borg­ar­línu, segir þó að þau sem komi að verk­efn­inu telji sig geta staðið keik og sagt að í dag sé ekk­ert sem bendi til þess að kostn­að­ur­inn verði af annarri stærð­argráðu en lagt var upp með í önd­verðu.

Nýlega urðu kafla­skil í verk­efn­inu hvað aðkomu rík­is­ins varðar, en með sam­þykkt á Alþingi um stofnun nýs félags í sam­eigu sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og ríkis og vil­yrði í 15 ára sam­göngu­á­ætlun rík­is­ins um að verja tæpum 50 millj­örðum króna í fram­kvæmdir við almenn­ings­sam­göngur á höf­uð­borg­ar­svæð­inu fram til árs­ins 2034 eru áformin um Borg­ar­línu stað­reynd.

Það hefur þó ekki mikið farið fyrir því í opin­berri umræðu hvernig vinn­unni er að vinda fram. Það er kannski af því að umræðan um Borg­ar­lín­una hefur farið fram með tak­mark­aðri þátt­töku fag­fólks­ins sem lifir og hrær­ist í verk­efn­inu alla daga. Verk­efna­stofa Borg­ar­línu varð til snemma á árinu 2019 og það var í raun þá sem að hjólin fóru að snú­ast og fé fékkst til þess að byrja að vinna skipu­lags­vinn­una sem sam­göngu­fram­kvæmd af þess­ari stærð­argráðu fylgir fyrir alvöru.

Nú er farið að glitta í afurðir af þeirri vinnu, en til­laga að mats­á­ætlun vegna mats á umhverf­is­á­hrifum vegna fyrsta áfanga Borg­ar­línu er þessa dag­ana í kynn­ingu hjá Skipu­lags­stofnun. Frekari tíð­inda er svo að vænta á næst­unni, mögu­lega eftir mánuð eða svo, en þá verða frum­drög að hönnun fyrsta lotu Borg­ar­línu kynnt.

„Við byrj­uðum bara á und­ir­bún­ingnum og útfærsl­unni sjálfri síð­asta vor,“ segir Lilja, sem er sam­göngu­verk­fræð­ingur, og bætir við að á árunum þar á undan hafi verið búið að taka ákvarð­anir um það á vett­vangi Samtaka sveit­ar­fé­lag­anna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu (SSH) að ráð­ast í upp­bygg­ingu hágæða almenn­ings­sam­ganga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu til þess að tengja kjarna þess saman og þróa fram­tíð­ar­upp­bygg­ingu.

Þetta varð nið­ur­staðan, segir Hrafn­kell, eftir að sviðs­mynda­grein­ing á val­mögu­leikum varð­andi skipu­lag höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins til næstu ára­tuga sýndu glöggt fram á að það væri hag­kvæm­asti kost­ur­inn til þess að mæta auknum íbúa­fjölda án þess að álag á stofn­vega­kerfið yxi í sama mæli, með til­heyr­andi fjár­fest­ingu.

Fyrsti áfanginn verðmetinn á 17 milljarða

Sem áður segir telja þau Hrafn­kell og Lilja ekk­ert liggja fyrir sem bendi til þess að stofn­kostn­aður við Borg­ar­línu, bygg­ingu sér­rýmis fyrir stræt­is­vagna, hafi verið van­met­inn í þeim áætl­unum sem gerðar hafa verið til þessa.

Kostn­að­ur­inn er met­inn sam­kvæmt íslenskum verð­bönkum og mið­aður að fullu við þær aðstæður sem eru á fram­kvæmda­svæð­inu. Ráðist hefur verið í end­ur­mat á kostn­aði við fyrsta áfanga Borg­ar­línu í tengslum við vinnslu frum­draga­skýrslu sem nú er að klár­ast. Þar var kostn­að­ur­inn við fyrstu 13 kíló­metrana met­inn á um 17 millj­arða, segir Hrafn­kell.

„Ekkert í þeirri vinnu, sem er í allt annarri nákvæmni en fyrri kostn­að­ar­á­ætlun, dregur það fram að kostn­að­ur­inn hafi verið mis­á­ætl­aður í eldri áætlun. Við erum ennþá í stóru mynd­inni í kringum þessa 17 millj­arða sem gert var ráð fyrir að fyrsta lotan myndi kosta,“ segir Hrafn­kell. En það er samt ennþá óvissa, eins og er alltaf í öllum fram­kvæmdum sem eru ein­ungis komnar á þetta stig. Í dag er hún metin allt að 40 pró­sent.

„Við teljum okkur geta verið nokkuð keik og sagt að það er ekk­ert sem bendir til þess á þess­ari stundu að kostn­að­ur­inn verði af ein­hverri allt ann­ari stærð­argráðu en dreg­inn hefur verið fram“

„Svo kemstu í for­hönnun, þá minnkar óvissu­pró­sentan, svo kemur verk­hönnun og þá minnkar hún meira og þú vilt helst þegar þú ert kom­inn í fram­kvæmd­ina, vera kom­inn í kringum 10 pró­senta rólið,“ segir Lilja um óvissu­pró­sent­una.

„Við teljum okkur geta verið nokkuð keik og sagt að það er ekk­ert sem bendir til þess á þess­ari stundu að kostn­að­ur­inn verði af ein­hverri allt ann­ari stærð­argráðu en dreg­inn hefur verið fram,“ bætir Hrafn­kell við.

Viðbúið að umræða um annan kostnað fari af stað

Lilja grípur orðið og segir þó mik­il­vægt að hafa í huga að annar kostn­aður muni falla til í tengslum við borg­ar­línu­verk­efnið, þrátt fyrir að sá kostn­aður sé utan kostn­að­ar­ramma verk­efn­is­ins sem slíks. Borg­ar­lína snýst um að byggja sér­rými fyrir stræt­is­vagna og kostn­að­ar­á­ætl­unin felur það í sér, en svo eru aðrir hlutir sem verða gerðir sam­hliða, eins og það að byggja hjóla­stíga, laga gang­stéttir og fleira.

„Það er ekki inni í þessum kostn­að­ar­tölum sem hafa verið kynntar, en það er pakki fyrir það í sam­göngusátt­mál­anum,“ segir Lilja, en í sam­göngusátt­mála ríkis og sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu eru 8,2 millj­arðar áætl­aðir í gerð göngu- og hjóla­stíga, göngu­brúa og und­ir­ganga á næstu 15 árum.

„Síðan ef það er vilji hjá sveit­ar­fé­lög­unum til þess að breyta umhverf­inu og laga í kringum stórar stöðvar, eins og til dæmis á Lækj­ar­torgi, þá er hættan sú að það fari allir að tala um að nú sé kostn­að­ar­á­ætl­unin fyrir verk­efnið að blása út.“

Það segir Lilja að væri ekki rétt ályktað og Hrafn­kell tekur undir það.

„Þú sérð að Borg­ar­lína á að stoppa til dæmis við nýtt Hlemm­torg. Nýtt Hlemm­torg verður til hvort sem Borg­ar­lína verður til eða ekki. Það er ekki borg­ar­línu­kostn­aður, það er bara kostn­aður við að búa til nýtt almenn­ings­rými sem hefur miklu, miklu víð­ari til­gang en spilar auð­vitað ofsa­lega vel með góðum almenn­ings­sam­göngum,“ segir Hrafn­kell.

Hlemmtorg mun taka stakkaskiptum, óháð því hvort borgarlínuleiðir aki þar um eða ekki.
Hlemm­torg mun taka stakka­skiptum, óháð því hvort borg­ar­línu­leiðir aki þar um eða ekki.

„Það er eig­in­lega alveg gefið að þessi umræða fari af stað,“ segir Lilja. Hún bætir við að sam­bæri­leg umræða hafi verið í mörgum borgum sem séu að þróa sam­bæri­leg sam­göngu­kerfi. Þessi umræða hafi til dæmis verið hávær í Stafangri í Noregi, en mik­ill kostn­aður við hrað­vagna­kerfi sem þar var byggt hefur verið settur í sam­hengi við borg­ar­línu­verk­efnið af hálfu sumra þeirra sem hafa áhyggjur af því að það sama ger­ist hér.

Lilja segir að í Stafangri sé verið að fara í gegnum mikið eldri, þrengri og þétt­ari bæj­ar­kjarna en gert verður á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og að Norð­menn­irnir hafi ekki hikað við að kaupa upp fast­eignir og lóðir, sem hafi orðið umtals­verður hluti kostn­að­ar­ins þar þegar upp var staðið.

Hún nefnir dæmi um lít­inn pít­sa­stað þar í borg, sem hafn­aði því að nokkur bíla­stæði fyrir framan stað­inn yrðu fjar­lægð til þess að koma hrað­vagna­kerf­inu fyrir. Norska svarið við því var að kaupa húsið fyrir aftan, rífa það og skaffa flat­böku­staðnum bíla­stæði þar. „Þá blæs kostn­að­ur­inn af verk­efn­inu nátt­úr­lega út,“ segir Lilja.

Hrafn­kell segir að almennt sníði Íslend­ingar sér þrengri stakk þegar kemur að sam­göngu­innviðum en Norðmenn og það eigi við í til­felli Borg­ar­línu rétt eins og varð­andi gerð hjóla­stíga, jarð­ganga og vega.

Einkabíllinn mun þurfa að gefa eftir pláss

Borgir víða um heim eru að leita lausna til þess að draga úr vægi einka­bíls­ins, sem margar þeirra voru hrein­lega hann­aðar til þess að þjóna. Höf­uð­borg­ar­svæðið er dæmi um slíkt skipu­lag, en yfir­lýst mark­mið sveit­ar­fé­lag­anna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu er að reyna að breyta því hvernig borgin er að þró­ast og hætta að brjóta nýtt land undir byggð, þar sem byggðin inni á núver­andi borg­ar­svæði er fremur gisin. Höf­uð­borg­ar­svæðið er ekki eina borg­ar­svæðið sem er að reyna að auka hlut hágæða almenn­ings­sam­gangna af sam­bæri­legum ástæðum.

„Ég hef ekki fundið eina ein­ustu borg og lagt á mig tals­vert til að reyna að finna, sem er ekki með ein­hver áform í lík­ingu við Borg­ar­lín­una. Í sumum, stærri borgum, eru þetta allar týpur, frá „metro“ yfir í betra stræt­is­vagna­kerfi og allt þar á milli, en allar borgir eru að vinna að því að auka það rými sem vist­vænir ferða­mátar fá. Þegar við stöndum frammi fyrir því að rými er tak­markað og einn sam­göngu­máti er ráð­andi, þá ger­ist auð­vitað það að þarf að taka pláss í ein­hverjum til­vikum af þeim sam­göngu­máta, sem er bíll­inn. Það er alveg það sama að ger­ast hér og alls­staðar ann­ars­staðar,“ segir Hrafn­kell.

Mögulegar breytingar á umferðarskipulagi, eins og þær eru settar fram í tillögu að matsáætlun vegna fyrsta áfanga Borgarlínu.
Mögu­legar breyt­ingar á umferð­ar­skipu­lagi, eins og þær eru settar fram í til­lögu að mats­á­ætlun vegna fyrsta áfanga Borg­ar­línu.

Hann nefnir svo París, Ósló og New York sem dæmi um borgir þar sem einka­bílum hefur hrein­lega verið úthýst af mörgum svæðum, en Lilja grípur inn í og segir að það séu ekki bara stóru borg­irnar sem séu að auka hlut vist­vænna ferða­máta.

„Það er jú oft gagn­rýni sem maður heyrir oft, að við séum ekki New York og við séum ekki Kaup­manna­höfn,“ segir Lilja og telur síðan upp borgir sem hafðar hafa verið til hlið­sjónar við borg­ar­línu­vinn­una, Árósa, Óðinsvé og Malmö, auk borga í Þýska­landi. „Já og Þránd­heimur, Álaborg, minni borgir,“ bætir Hrafn­kell við.

Dýrara að byggja meira fyrir bílinn eingöngu

„Við erum að tala um að eyða tæpum 50 millj­örðum í almenn­ings­sam­göngur á 15 ára tíma­bili. Það er mikið, en ekki sér­lega mikið þegar það er sett í stóra sam­hengið. Við náum ekki hlut­falls­lega að jafna áherslur Kaup­manna­hafnar, til dæmis,“ segir Hrafn­kell og minnir um leið á ástæður þess að sveit­ar­fé­lögin fóru að skoða þá upp­bygg­ingu á hágæða almenn­ings­sam­göngum sem nú stendur fyrir dyrum, um miðjan ára­tug­inn.

„Við sviðs­mynda­grein­ingu á því hvaða leiðir væru væn­legar í fjár­fest­ingum í sam­göngum hérna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þá kom mjög skýrt fram að það að fjár­festa ein­göngu áfram í bíla­sam­göngum eins og gert hafði verið ára­tug­unum áður myndi skila okkur bæði meiri umferð og meiri umferð­artöfum – og vera dýr­ara. Það var á þessum grunni sem öll þessi ólíku sveit­ar­fé­lög sam­mæl­ast um þessa stefnu. Svo er þetta bara svo­lítið lang­hlaup,“ segir Hrafn­kell.

Lilja tekur við: „Þetta var árið 2015 og það er ofboðs­lega mikið sem er búið að ger­ast síðan þá í umræðu um lofts­lags­mál og umhverf­is­mál, sem þetta verk­efni tikkar í öll boxin hjá líka.“

Hrafn­kell minnir á að í sam­göngu­á­ætlun til fimmtán ára sé áætlað að verja 900 millj­örðum til sam­göngu­fram­kvæmda á land­inu öllu. „Markmið rík­is­stjórn­ar­innar, mark­mið allra sveit­ar­fé­lag­anna hérna, þar sem tveir þriðju hlutar íbúa lands­ins búa, er að fjölga not­endum í vist­vænum sam­göngu­mátum,“ segir Hrafn­kell og bendir á að þeir tæpu 50 millj­arðar sem eyrna­merktir almenn­ings­sam­göngum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu séu ein­ungis um 5-6 pró­sent af heild­ar­pakk­anum.

„Ég ætla ekk­ert að gera lítið úr því að 50 millj­arðar eru há upp­hæð, en í þessu sam­hengi er þetta ekki stór biti. Sam­göngu­fram­kvæmdir eru dýrar, þetta er alltaf dýr­asti og veiga­mesti þátt­ur­inn í fram­kvæmdum rík­is­ins og ef við meinum eitt­hvað með því sem þjóð að fjölga fólki sem er að nota virka ferða­máta þá þarf að gefa þessum sam­göngu­mátum meira rými og það þarf að verja til þess pen­ingum. Hingað til höfum við varið ein­hverjum örfáum pró­sentum í sér­staka inn­viði fyrir almenn­ings­sam­göngur á höf­uð­borg­ar­svæð­inu af öllu því fram­kvæmdafé sem við höfum nýtt und­an­farna ára­tugi,“ segir Hrafn­kell.

„Þetta er alltaf spurn­ing um í hvaða sam­hengi þú setur hlut­ina,“ segir Lilja. „Ef við veltum því fyrir okkur að þetta eru 50 millj­arðar af 900 millj­örðum, þá sjáum við að bróð­ur­part­ur­inn af þessum 900 millj­örðum eru í vega­fram­kvæmdir,“ segir Lilja.

Rekstrarkostnaður eykst með nýju leiðaneti og Borgarlínu

Stofn­kostn­að­ur­inn við Borg­ar­lín­una, gerð sér­rým­is­ins, er ekki það eina sem talað er um, heldur hefur væntur auk­inn rekstr­ar­kostn­aður almenn­ings­sam­gangna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu einnig verið nokkuð til umræðu. Það er dýr­ara að reka hrað­vagna­kerfi með auk­inni ferða­tíðni. Lilja segir að þar sem aldrei hafi verið rekið BRT-kerfi á Íslandi séu áætl­anir byggðar á athug­unum frá Norð­ur­löndum þar sem reiknað er út hversu hlut­falls­lega dýrt sé að reka hrað­vagna­kerfi umfram venju­legt stræt­is­vagna­kerfi.

Útreikn­ingar sem gerðir hafa verið í sam­starfi við Strætó sýna fram á að árið 2024, þegar fyrsti áfangi Borg­ar­línu á að verða kom­inn í notkun, verði rekstr­ar­kostn­aður almenn­ings­sam­gangna í heild sinni tæpum 34 pró­sentum hærri en hann er í dag, eða 7,9 mill­lj­arðar á ári í stað 5,9 millj­arða í dag.

Hrafn­kell segir að ekki megi gleym­ast að við það að fara að reka Borg­ar­línu þá drag­ist rekstr­ar­kostn­aður núver­andi stræt­is­vagn­kerfis saman. „Með því að fara að reka Borg­ar­línu munu detta út leiðir hjá Strætó og þetta þarf alltaf að vinn­ast í mjög góðri sam­vinnu við leiða­kerfi Strætó. Þetta er í raun upp­færsla á því og lang­tíma­þróun á leiða­kerf­inu. Hug­myndin er að með því að gera eina stærri breyt­ingu muni fram­tíð­ar­stofn­leið­irnar í því smám saman breyt­ast í borg­ar­línu­leiðir á þessu tíma­bili sem við erum að fram­kvæma,“ segir Hrafn­kell.

Samhliða því sem Borgarlínan verður til er stefnt að því að breyta leiðaneti Strætó og auka þjónustustigið.
Samhliða því sem Borg­ar­línan verður til er stefnt að því að breyta leiða­neti Strætó og auka þjón­ustu­stigið.

„En auð­vitað hækkar rekstr­ar­kostn­að­ur­inn. Þegar þú ert að bæta þjón­ustu þá hækkar rekstr­ar­kostn­að­ur­inn,“ segir Lilja. „Það að breyta þessu leiða­kerfi og auka þjón­ust­una alveg um heilan hell­ing, fara í 7 og hálfrar mín­útu tíðni, eykur kostn­að­inn um 34 pró­sent árið 2024 miðað við það hann er í dag.“ Hún bætir við að kostn­aður við aukna tíðni í leiða­net­inu almennt, eins og stefnt er að, sé um helm­ingur þessa og beinn kostn­aður við rekstur Borg­ar­línu tvær skýri um helm­ing kostn­að­ar­aukans á móti.

En fyr­ir­séð er að tekj­urnar af almenn­ings­sam­göngum muni einnig aukast á móti: „Þarna er bara verið að draga fram útgjalda­lið­inn. Svo erum við núna að bíða eftir fyrstu skýrsl­unni úr nýju umferð­ar­lík­ani sem er að koma með far­þeg­a­spánna á móti, sem er þá tekju­hliðin. Þó að útgjalda­lið­ur­inn hækki hækkar tekju­lið­ur­inn líka með auk­inni notkun, því það er sam­hengi á milli þjón­ustu­stigs og notk­unar. Það á svo eftir að klára end­an­lega rekstr­ar­á­ætlun, með þetta allt saman,“ segir Hrafn­kell.

Nánar verður fjallað um Borg­ar­lín­una í Kjarn­anum í vik­unni, en blaða­maður ræddi við Hrafnkel og Lilju um ýmis­legt annað en ein­ungis kostn­að­inn við fram­kvæmd­ina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Borgarlína

ViðtalBorgarlína

Fyrst til að bjóða Betri sam­göngum í kaffi

Bergþóra Þor­kels­dóttir for­stjóri Vega­gerð­ar­innar segir það vera gamla klisju að tala um að Vega­gerðin sé gam­al­dags stofnun. Öllum lyk­il­stjórn­endum hafi verið skipt út frá árinu 2018 og mikil end­ur­nýjun hafi orðið í starfs­manna­hópnum. Hún og Bryndís Frið­riks­dóttir sam­göngu­verk­fræð­ingur sett­ust niður með blaða­manni og ræddu um verk­efni sam­göngusátt­mál­ans. Bergþóra hafnar því að yfir­stjórn Vega­gerð­ar­innar hafi verið ósátt með stofnun félags­ins Betri sam­gangna.

8 mín. lestur

ÚttektBorgarlína

Gam­al­dags Vegagerð sem vill vera aðal

Heim­ildin leit­aði til nokk­urra ein­stak­linga sem hafa með einum eða öðrum hætti komið að verk­efnum sem tengj­ast sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og ræddi við þau um Borg­ar­línu, vinnslu verk­efna sátt­mál­ans, fjár­mögnun þeirra og fram­hald. Í sam­töl­unum kom nokkur gagn­rýni kom fram á Vega­gerð­ina fyrir gam­al­dags stofn­anakúltúr og langar boð­leiðir, for­stjór­inn er sagður vilja hafa „putt­ana í öllu“. Yfir­stjórn Vega­gerð­ar­innar er sögð hafa átt erfitt með að sætta sig við að félagið Betri sam­göngur hafi verið stofnað til að halda utan um verk­efni sátt­mál­ans.

8 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár