Lúsmýið virðist hafa náð fótfestu á Norðurlandi í sumar

Áttunda sumarið í röð herjaði lúsmýið á landann. Nærri þrefalt fleiri landsmenn telja sig hafa verið bitna af lúsmýi í sumar, tvöfalt fleiri en fyrir þremur árum. Mest var aukningin á Norður­landi.

Fleiri íbúar landsbyggðarinnar en höfuðborgarsvæðisins telja sig hafa verið bitna af lúsmýi og mest er aukningin á Norðurlandi.
Fleiri íbúar lands­byggð­ar­innar en höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins telja sig hafa verið bitna af lús­mýi og mest er aukn­ingin á Norð­ur­landi. Mynd: Náttúrufræðistofnun Íslands/Erling Ólafsson

Nærri þrír af hverjum tíu full­orðnum lands­mönnum telja sig hafa verið bitna af lúsmýi á Íslandi í sumar. Það eru tvöfalt fleiri en fyrir þremur árum. Fleiri íbúar lands­byggðarinnar en höfuð­borgar­svæðisins telja sig hafa verið bitna af lúsmýi og mest er aukningin á Norður­landi.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýjum þjóðar­púlsi Gallup þar sem upplifum lands­manna af lúsmý þetta sumarið er tekin saman.

Lúsmý, sem sækir í mannablóð, nam hér land sumarið 2015 og er orðinn órjúfanlegur hluti af sumar­leyfum lands­manna. Í frétt sem birtist á vef Náttúru­fræði­stofnunar í lok júní 2015 sagði meðal annars:

„Und­ar­leg atvik urðu um síð­ast­liðna helgi þegar lúsmý tók að herja á íbúa sum­ar­húsa beggja vegna Hval­fjarð­ar. Ekki er vitað til að slíkar atlögur hafi átt sér stað áður hér á landi. Lúsmý er ætt örsmárra mýflugna sem lang­flest sjúga blóð úr öðrum dýrum, allt frá skor­dýrum til mann­skepna. Þeir sem fyrir atlög­unum urðu voru flestir illa útleikn­ir.“

Tvöfalt fleiri telja sig hafa verið bitna í sumar en sumarið 2019

Samkvæmt niður­stöðum könnunarinnar telja 29 prósent full­orðinna lands­manna sig hafa verið bitna af lúsmýi í sumar eða um tvöfalt fleiri en þegar spurt var fyrir þremur árum. Þá var hlut­fallið 14 prósent.

Fleiri íbúar lands­byggðarinnar en höfuð­borgar­svæðisins telja sig hafa verið bitna af lúsmýi í sumar, 26 prósent höfuð­borgarbúa telja sig hafa verið bitna en 33 prósent íbúa lands­byggðarinnar telja sig hafa verið bitna. Þetta er breyting frá því fyrir þremur árum þegar bitin voru tvöfalt algengari á höfuð­borgar­svæðinu en á lands­byggðinni.

Aukningin er mest á Norður­landi. Ef dreifingin er skoðuð eftir kjördæmum má sjá að hlutfall þeirra se, telja sig hafa verið bitna af lúsmýi hækkar um 28 prósentu­stig í Norðvestur­kjördæmi og 25 prósentu­stig í Norðaustur­kjördæmi.

Úr einu prósenti í 26 prósent

Fyrir þremur árum taldi aðeins eitt prósent íbúa í Norðaustur­kjördæmi sig hafa verið bitinn af lúsmýi en nú er hlut­fallið 26 prósent. Á sama tíma hefur þeim sem telja sig hafa verið bitnir í Norðvestur­kjördæmi fjölgað úr átta prósentum í 36 prósent.

Hlut­fallið hefur í raun aukist í öllum lands­hlutum. Þannig hefur þeim sem telja sig hafa verið bitnir af lúsmýi í Suður­kjördæmi aukist úr 16 prósentum í 36 prósent. Aukningin nemur níu prósentum í Suðvestur­kjördæmi og tíu prósentu­stig á höfuð­borgar­svæðinu.

Þó sumarið sé búið og langt í næsta skammt af lúsmýarbitum er ágætt að viðhalda þekkingunni á vágestinum og hvernig bregðast má við honum.

Niður­stöður könnunarinnar byggja á netkönnun sem Gallup gerði dagana 1. til 11. september. Heildar­úrtakið var 1.694 og þátttöku­hlutfall var 49,6 prósent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár