Benedikt Bogason verður forseti Hæstaréttar

Benedikt Bogason hefur verið kjörinn forseti Hæstaréttar og Ingveldur Einars­dóttir vara­forseti, en kosning fram fór á fundi dómara réttarins í dag. Þau taka við embættum sínum 1. september næst­komandi.

Benedikt Bogason hefur verið kjörinn forseti Hæstaréttar og Ingveldur Einars­dóttir vara­forseti réttarins, en kosning fram fór á fundi dómara réttarins í dag. Taka þau við embættum sínum 1. september 2020 og verða í þeim út árið 2021 hið minnsta.

Þetta kemur fram í frétta­tilkynningu frá Hæstarétti. Benedikt Bogason er í dag vara­forseti réttarins, en forseti Hæstaréttar er Þorgeir Örlygsson, sem hefur beðist lausnar frá réttinum.

Benedikt Bogason hefur verið hæstaréttar­dómari frá árinu 2012, en Ingveldur var skipuð hæstaréttar­dómari í desember í fyrra.

Miklar breytingar hafa orðið á samsetningu Hæstaréttar Íslands undan­farin misseri og fleiri eru í farvatninu, en auk Þorgeirs Örlygs­sonar var greint frá því að Greta Baldurs­dóttir hefði beðist lausn frá dómara­embætti sínu í byrjun þessa mánaðar.

Auglýst hefur verið eftir tveimur dómurum í þeirra stað og þegar búið verður að skipa þá munu fjórir af sjö dómurum réttarins hafa verið skipaðir frá því í desember 2019, þar af þrír á árinu 2020.

Nýr forseti í málaferlum við Jón Steinar Gunnlaugsson

Benedikt Bogason hefur sem áður segir verið hæstaréttar­dómari frá árinu 2012 og vara­forseti réttarins frá því í maí. Hann hefur verið í fréttum und­an­farin miss­eri vegna þess að hann höfð­aði meið­yrða­mál á hendur Jóni Stein­ari Gunn­laugs­syni, fyrr­ver­andi hæsta­rétt­ar­dóm­ara, vegna ummæla sem birt­ust í bók Jóns Stein­ars „Með lognið í fangið – Um afglöp Hæsta­réttar eftir hrun“.

Þar taldi Bene­dikt að höf­undur bók­ar­innar hefði ætlað sér að hafa af ásetn­ingi kom­ist að rangri nið­ur­stöðu með þeim afleið­ingum að sak­laus mað­ur, Baldur Guð­laugs­son, hafi verið dæmdur í fang­elsi. Bene­dikt vildi meina að hug­takið dóms­morð væri æru­­meið­andi aðdróttun og með þeim hafi Jón Steinar full­yrt að Bene­dikt hafi af ásetn­ingi kom­ist að rangri nið­­ur­­­­stöðu í dóms­­­máli með þeim af­­­leið­ing­um að sak­­­laus maður hafi verið sak­­­felld­ur og dæmd­ur í fang­elsi.

Hér­­aðs­­dómur Reykja­­ness sýkn­aði Jón Steinar af tveggja millj­­óna króna kröfu Bene­dikts vegna meintra æru­­meið­inga á sínum tíma og í fyrra­haust stað­festi Lands­réttur þá nið­ur­stöð­u.

Í febr­úar sam­þykkti Hæsti­réttur hins vegar umsókn Bene­dikts um leyfi til að áfrýja dómi Lands­réttar í meið­yrða­mál­in­u.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár