Tveir dómarar við Hæstarétt óska lausnar

Fimm dómarar við Hæstarétt hafa óskað lausnar úr starfi á innan við einu ári. Samsetning réttarins hefur því breyst gríðar­lega mikið á skömmum tíma. Af þeim sjö sem munu mynda réttinn í nánustu framtíð munu fjórir hafa verið skipaðir frá því í desember.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir tók við sem dómsmálaráðherra í september í fyrra. Líkur eru á að hún muni hafa skipað fjóra nýja dómara við Hæstarétt á fyrsta ári sínu sem ráðherra.
Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir tók við sem dóms­mála­ráð­herra í sept­em­ber í fyrra. Líkur eru á að hún muni hafa skipað fjóra nýja dóm­ara við Hæsta­rétt á fyrsta ári sínu sem ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Á fundi ríkisstjórnar Íslands í morgun var fjallað um, að frumkvæði Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra, lausn tveggja dómara við Hæstarétt Íslands frá embættum sínum. Um er að ræða Gretu Baldursdóttur og Þorgeir Örlygsson, sem er sitjandi forseti Hæstaréttar Íslands.

Þetta þýðir að á innan við ári munu fimm dómarar við Hæstarétt hafa hætt störfum, og fjórir nýir verða skipaðir í þeirra stað.

í ágúst í fyrra var greint frá því að Markús Sig­ur­björns­son og Viðar Már Matth­í­as­son hefðu óskað eftir lausn frá embætti og myndu hætta frá og með 1. október 2019. Samhliða yrði dómurum fækkað úr átta í sjö, líkt og staðið hafði til frá því að nýju milli­dóm­stígi, Lands­rétti, var komið á. Eitt emb­ætti dóm­ara við Hæsta­rétt var í kjölfarið auglýst og í desember í fyrra var Ingveldur Einarsdóttir skipuð í það af Áslaugu Örnu.

Reynslumestu dómararnir horfnir á braut

Markús hafði verið dóm­ari við Hæsta­rétt Íslands frá árinu 1994, eða í 25 ár. Hann var vara­for­seti Hæsta­réttar 2002 og 2003 og for­seti Hæsta­réttar 2004 og 2005 og frá 01. jan­úar 2012 til loka árs 2016. Áður en að Markús var skip­aður dóm­ari var hann meðal ann­ars pró­fessor í rétt­ar­fari við laga­deild Háskóla Íslands 1988 -1994. Eng­inn dóm­ara við Hæsta­rétt komst á þeim tíma sem hann tilkynnti um starfslok sín nálægt því að hafa setið þar jafn lengi og Mark­ús. Sá sem komst næst því er Ólafur Börkur Þor­valds­son sem var skip­aður í emb­ætti árið 2003.

Þar á eftir kom Viðar Már sem var skip­aður 2010. Hann var vara­for­seti Hæsta­réttar Íslands frá byrjun árs 2012 og út árið 2016. Viðar Már var pró­fessor í skaða­bóta­rétti við laga­deild Háskóla Íslands 1996 – 2010 og var auk þess settur hæsta­rétt­ar­dóm­ari í aðdrag­anda þess að hann var skip­aður í emb­ætt­ið, eða á árunum 2009 til 2010.

Kúvending á samsetningu réttarins á innan við ári

Í janúar síðastliðnum óskaði svo Helgi I. Jónsson eftir lausn frá embætti hæstaréttar­dómara. Hann var þá vara­forseti réttarins og hafði setið í honum frá 2012. Í apríl var Sigurður Tómas Magnússon, þá dómari við Landsrétt, skipaður í embættið.

Nú bætast þau Greta og Þorgeir, sem bæði voru skipuð dómarar við Hæstarétt í september 2011, við hóp þeirra hæstaréttar­dómara sem hafa hætt störfum á skömmum tíma.

Þeir þrír dómarar sem munu sitja áfram í embætti, og voru hluti af Hæstarétti síðasta sumar líka, eru áður­nefndur Ólafur Börkur (skipaður 2003) , Benedikt Bogason vara­forseti Hæstaréttar (skipaður 2012) og Karl Axelsson (skipaður 2015).

Þegar búið verður að skipa í stað þeirra Gretu og Þorgeirs munu því fjórir af sjö dómurum Hæstaréttar Íslands hafa verið skipaðir frá því í desember 2019, og þrír þeirra á árinu 2020. Allir fjórir munu hafa verið skipaðir af Áslaugu Örnu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár