Jón Steinar sýknaður í Héraðsdómi

Jón Steinar Gunnlaugsson var sýknaður af kröfum Benedikts Bogasonar vegna meintra meiðyrða í héraðs­dómi Reykjaness.

Jón Steinar Gunnlaugsson, hrl.
Jón Steinar Gunn­laugs­son, hrl.

Héraðs­dómur Reykjaness sýknaði fyrr í dag Jón Steinar Gunnlaugsson af tveggja milljóna króna kröfu Benedikts Bogasonar vegna meintrar ærumeiðingar. Samkvæmt dómnum voru orð Jóns Seinars notuð í óeiginlegri eða yfir­færðri merkingu og því ekki refsiverð. Dóminn má nálgast hér.

Málið snerist um ummæli Jóns Steinars í nýrri bók sinni, „Með lognið í fangið,“ en í henni skrifar Jón Steinar að Hæstiréttur hafi framið dómsmorð á Baldri Guðlaugs­syni, fyrr­verandi ráðuneytis­stjóra í fjármála­ráðuneytinu. Hæstiréttur staðfesti tveggja ára fangelsisdóm yfir Baldri vegna innherja­svika og brota í opinberu starfi í tengslum við sölu hans á hluta­bréfum í Lands­bankanum.

Benedikt krafðist þess að fimm ummæli í bók Jóns Steinars yrðu dæmd dauð og ómerk, auk þess sem miskabóta var krafist að fjárhæð tveggja milljóna króna. Öll ummælin sem um ræðir sneru að full­yrðingum Jóns um að dómsmorð hafi verið framið. „Dómsmorð er.. dráp af ásettu ráði, þar sem réttar­farið verður að morð­tólinu,“ skrifar Jón Steinar meðal annars í bók sinni og vísar þar til gamallar skilgreiningar á hugtakinu.

Í dómi Héraðs­dóms segir að stefnandi og öðrum hæstarréttardómurum séu hvergi sakaðir um refsiverða háttsemi. Jón hafi stundum tekið sterkt til orða sinna í gagnrýni sinni á Hæstarétt en þegar umfjöllun hans sé virt í heild verður talið að hann hafi notað hugtakið dómsmorð í óeiginlegri eða yfir­færðri merkingu, aðallega til þess að leggja áherslu á orð sín. Ummælin verði því ekki dæmt ómerk og Jón sýknaður af öllum kröfum Benedikts.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár