Jón Steinar reyndi að hafa áhrif á dómara í máli Baldurs

Benedikt Bogason Hæstaréttar­dómari hefur stefnt Jóni Steinari Gunnlaugs­syni hrl. fyrir meiðyrði. Í stefnunni sjálfri er fjallað um það hvernig Jón Steinar hagaði sér innan dóms­kerfisins þegar mál Baldurs Guðlaugs­sonar var til meðferðar.

Jón Steinar Gunnlaugsson hrl. og fyrr­verandi dómari við Hæstarétt, gengst við því að hafa beitt samdómara sína þrýstingi þegar mál Baldurs Guðlaugs­sonar var til umfjöllunar í Hæstarétti.

Jón Steinar var vanhæfur í málinu vegna vináttu við Baldur.

Í stefnu Benedikts Bogasonar hæstaréttar­dómara á hendur Jóni Steinari eru þessi afskipti sögð brot á lögum um dómstóla.

Þetta kom fram í fréttum RÚV í kvöld, en umfjöllun um þessi mál verður í frétta­skýringa­þættinum Kveik í kvöld.

Í stefnu Benedikts segir að á meðan mál Baldurs var til meðferðar í Hæstarétti; einkum frá því að málflutningi lauk og þar til dómur féll, hafi Jón Steinar ítrekað gert sér ferð inn á skrif­stofur dómaranna í málinu þar sem hann „leitaðist við að hafa áhrif á hvernig þeir myndu dæma málið efnislega,“ að því er fram kom í frétt RÚV, og er það vitnað beint í stefnu Benedikts.

Jón Steinar full­yrðir í nýrri bók, Með lognið í fang­ið, að Hæsti­réttur hafi framið dóms­morð á Baldri Guð­laugs­syni, fyrr­ver­andi ráðu­neyt­is­stjóra í fjár­mála­ráðu­neyt­inu, en hann var dæmdur fyrir inn­herja­svik í tengslum við sölu hans á hluta­bréfum í Lands­bank­an­um.

Hæstirétt­ur stað­festi tveggja ára fang­els­is­­dóm yfir Baldri vegna inn­­herj­a­svika og brota í op­in­beru starfi. Einn hæsta­rétt­­ar­­dóm­­ari, Ólaf­ur Börk­ur Þor­­valds­­son, skil­aði sér­á­liti og vildi láta vísa mál­inu frá.

Bald­ur var ákærður fyr­ir inn­­herj­a­­svik og brot í op­in­beru starf­i þegar hann seldi hluta­bréf í Lands­­bank­an­um 17. og 18. sept­­em­ber 2008. Bald­ur var þá ráðu­neyt­is­­stjóri, eins og áður seg­ir, og sat í sam­ráðs­hópi ís­­lenskra stjórn­­­valda um fjár­­­mála­­stöðug­­leika. Sölu­and­virði bréfanna, 192 millj­ónir króna, var einnig gert upp­tækt.

Bene­dikt krefst þess að fimm ummæli í bók­inni verði dæmd dauð og ómerk, að því er fram kemur í frétt RÚV, en þau snúa að full­yrð­ingum Jóns Stein­ars um að dóms­morð hafi verið framið. „Dóms­morð er... dráp af ásettu ráði, þar sem rétt­ar­farið verður að morð­tól­in­u,“ ­skrifar Jón Steinar í bók sinni og vísar þar til gam­allar skil­grein­ingar á hug­tak­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár