Benedikt stefnir Jóni Steinari

Hæstaréttar­dómari hefur stefnt Jóni Steinari Gunnlaugsson hrl. og fyrr­verandi Hæstaréttar­dómara.

Benedikt Bogason hæstaréttar­dómari, hefur stefnt Jóni Steinari Gunnlaugs­syni hrl. og fyrr­verandi dómara við Hæstarétt, fyrir meiðyrði. Frá þessu greindi RÚV í kvöld, en ummælin sem málið byggir á tengjast dómi um innherja­svik og brot í opinberu starfi.

Jón Steinar fullyrðir í nýrri bók, Með lognið í fangið, að Hæstiréttur hafi framið dómsmorð á Baldri Guðlaugs­syni, fyrr­verandi ráðuneytis­stjóra í fjármála­ráðuneytinu, en hann dæmdur fyrir innherja­svik í tengslum við sölu hans á hluta­bréfum í Lands­bankanum.

Hæstirétt­ur staðfesti tveggja ára fang­els­is­dóm yfir Baldri vegna inn­herja­svika og brota í op­in­beru starfi. Einn hæsta­rétt­ar­dóm­ari, Ólaf­ur Börk­ur Þor­valds­son, skilaði séráliti og vildi láta vísa mál­inu frá.

Bald­ur var ákærður fyr­ir inn­herja­svik og brot í op­in­beru starfi þegar hann seldi hluta­bréf í Lands­bank­an­um 17. og 18. sept­em­ber 2008. Bald­ur var þá ráðuneyt­is­stjóri, eins og áður segir, og sat í sam­ráðshópi ís­lenskra stjórn­valda um fjár­mála­stöðug­leika. Sölu­andvirði bréfann, 192 milljónir króna, var einnig gert upptækt.

Benedikt krefst þess að fimm ummæli í bókinni verði dæmd dauð og ómerk, að því er fram kemur í frétt RÚV, en þau snúa að full­yrðingum Jóns Steinars um að dómsmorð hafi verið framið. „Dómsmorð er... dráp af ásettu ráði, þar sem réttar­farið verður að morð­tólinu,“ skrifar Jón Steinar í bók sinni og vísar þar til gamallar skilgreiningar á hugtakinu, eins og það er orðað í frétt RÚV. Með þessu segir hann að dómarar hafi viljandi, gegn betri vitund, komist að niður­stöðu um að dæma Baldur sekan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár