Oft verið að ræða allt aðra hluti en þriðja orkupakkann

Guðlaugur Þór Þórðarson telur það afskaplega óskynsamlegt ef Ísland myndi ganga út úr samstarfinu um EES-samninginn. Hann segir að útsendarar frá norska Miðflokknum, sem hafi þá stefnu að ganga út úr EES, séu eins og gráir kettir á Íslandi.

„Þegar það kemur gagnrýni á eitthvað eins og þriðja orku­pakkann þá tek ég það mjög alvarlega. Við sögðum að við ætluðum að skoða þetta jafnvel og mögulegt er. Það er það sem við erum að gera. Hins vegar liggur það alveg fyrir að það er alveg ljóst að menn eru oft að tala um allt aðra hluti heldur en þriðja orku­pakkann þegar menn eru að ræða þessa hluti[...]Þetta er eitthvað sem við erum að fá frá Noregi, enda eru norskir útsendarar sem eru bara hér eins og gráir kettir frá norska Miðflokknum sem að hafa það á stefnu­skrá sinni að ganga út úr EES.“

Þetta segir Guðlaugur Þór Þórðarson utan­ríkis­ráðherra í viðtali við Þórð Snæ Júlíusson, ritstjóra Kjarnans, í sjónvarps­þættinum 21 á Hringbraut sem frum­sýndur verður klukkan 21 í kvöld. Þar ræðir hann meðal annars samninginn um Evrópska efnahags­svæðið (EES), norðurslóðamál, þriðja orku­pakkann og Brexit, svo fátt eitt sé nefnt.

Hægt er að sjá stiklu úr þættinum hér að neðan.

Guðlaugur Þór segir í þætti kvöldsins að það sé kaldhæðnislegt að öfga­fylkingar úr báðum áttum í Evrópu­umræðunni virðist nota sömu rökin fyrir afstöðu sinni. „Þeir sem vilja fara í ESB hafa sagt það að við tökum 90 prósent af gerðunum og þess vegna ættum við að fara inn. Nú koma hinir sem vilja fara út úr EES og segja að við tökum upp 90 prósent af gerðunum, þetta er algjör­lega óásættanlegt, við þurfum að fara út úr EES.

Þetta er náttúru­lega ekki rétt. Ef menn komast að þeirri niður­stöðu, sem ég held að væri afskaplega óskynsamlegt, að við vildum fara út úr EES, þá skulum við undir­byggja það mjög vel.“

Utan­ríkis­ráðherrann skipaði starfshóp til að fara yfir aðild Íslands að EES í ágúst síðastliðnum. Hópurinn, sem Björn Bjarnason leiðir, hefur tólf mánuði til að klára vinnu sína og á þá að skila ráðuneytinu skýrslu.

Guðlaugur Þór segir það gríðar­lega mikilvægt fyrir Ísland að hafa aðgang að þeim stóra markaði sem innri markaður Evrópu­sambandsins sé. Þá geti litlu fyrir­tækin á litla Íslandi keppt á jafnréttis­grunni við fyrir­tækin á megin­landinu. „Þau tækifæri eru nokkuð sem við verðum þá að vera viss um að fá með öðrum hætti, ef við ætlum að fara út úr EES. En ég tel mjög mikilvægt að taka þessa umræðu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár