Bankastjóri Landsbankans með 4,5 milljónir á mánuði í laun og mótframlag í lífeyrissjóð

Greiðslur til banka­stjóra og formanns bankaráðs Lands­bankans, sem er í eigu íslenska ríkisins, hækkuðu á milli ára. Bankinn skilaði 28,9 milljarða króna hagnaði á síðasta ári og ætlar að greiða eiganda sínum að minnsta kosti 14,4 milljarða króna í arð.

Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans.
Lilja Björk Ein­ars­dóttir, banka­stjóri Lands­bank­ans. Mynd: Landsbankinn

Laun Lilju Bjarkar Einars­dóttur, banka­stjóra Lands­bankans, hækkuðu um 3,2 milljónir króna í fyrra og voru 45,4 milljónir króna. Það þýðir að hún var með 3,8 milljónir króna í mánaðar­laun að meðaltali sem er um 263 þúsund krónum hærri laun á mánuði en hún hafði að meðaltali á mánuði á árinu 2020. Laun hennar hækkuðu því um sjö prósent milli ára.

Auk launa og hlunninda (sem í felast til að mynda afnot af bifreið í eigu bankans) fékk Lilja greitt mótframlag í lífeyris­sjóð upp á 8,7 milljónir króna, eða 725 þúsund krónur á mánuði að meðaltali. Mótframlags­greiðslur hennar hækkuðu um 8,8 prósent milli ára.

Samtals fékk Lilja því 54,4 milljónir króna í laun og mótframlag í lífeyris­sjóðs á síðasta ári, eða rúmlega 4,5 milljónir króna á mánuði.

Helga Björg Eiríks­dóttir, formaður bankaráðs bankans fékk alls 11,7 milljónir króna í laun og hlunnindi í fyrra og 1,5 milljónir króna í mótframlag í lífeyris­sjóð. Samtals námu greiðslur til hennar því 15,7 milljónum króna en þær voru alls 13,2 milljónir króna á árinu 2020. Greiðslur til formanns bankaráðs hækkuðu því 19 prósent milli ára og voru 1,3 milljónir króna að meðaltali á mánuði.

Þetta kemur fram í ársreikningi Lands­bankans vegna ársins 2021 sem birtur var í dag.

Lilja var með tæp­lega 2,1 milljón króna í laun á mán­uði þegar hún var ráðin í bankastjóra­starf­ið, en hún hóf störf 15. mars 2017.

Laun hennar voru skömmu síð­ar, eða um mitt ár 2017, hækkuð í 3,25 millj­ónir króna og á árinu 2018 upp í 3,8 millj­ónir króna. Laun Lilju höfðu því hækkað um 82 pró­sent.

Laun Lilju Bjarkar voru um 3,6 millj­ónir króna að með­al­tali á mán­uði árið 2019 og 2020 en hækkuðu, líkt og áður sagði, í fyrra upp í um 3,8 milljónir króna.

Lands­bankinn, sem er í eigu íslenska ríkisins, hagnaðist um 28,9 milljarða króna á síðasta ári. Það er 18,4 milljörðum krónum meiri hagnaður en bankinn skilaði á árin 2020. Því jókst hagnaðurinn um 175 prósent milli ára.

Vegna þessa árangurs mun bankaráð Lands­bankans leggja til við aðalfund að greiddur verði út 14,4 milljarðar króna í arð vegna ársins 2021. Verði þessi tillaga samþykkt munu arðgreiðslur bankans á árunum 2013-2022 samtals nema um 160,6 milljörðum króna. Bankaráð er jafnframt með til skoðunar að leggja til að greiddur verði út sérstakur arður á árinu 2022. Ekki er tilgreint hversu há sú greiðsla gæti orðið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár