H&M selt föt á Íslandi fyrir meira en 2,5 milljarða

Upplýsingar um sölu sænska verslunar­risans á tíma­bilinu mars til maí birtust í fjórðungs­uppgjöri keðjunnar í síðustu viku. Salan hefur dregist saman frá opnun.

Sænska verslana­keðjan H&M seldi fatnað fyrir ríflega 2,5 milljarða króna hér á landi frá því að keðjan opnaði fyrstu verslun sína á landinu í lok ágúst í fyrra til loka maímánaðar. Þetta kemur fram í Frétta­blaðinu í dag.

H&M opnaði fyrstu verslun sína hér á landi í Smáralind í lok ágúst­mánaðar en önnur verslun keðjunnar var opnuð í Kringlunni um mánuði síðar. Stefnt er að opnun þriðju H&M verslunarinnar hér á landi á Hafnar­torgi í miðbæ Reykja­víkur.

Upplýsingar um sölu sænska verslunar­risans á tíma­bilinu mars til maí birtust í fjórðungs­uppgjöri keðjunnar í síðustu viku. Salan hefur dregist saman frá opnun en hún nam tæplega 670 milljónum króna á fyrsta fjórðungi yfir­standandi rekstrarárs H&M, frá byrjun mars til loka maí síðastliðins, borið saman við 965 milljóna króna veltu frá byrjun september til loka nóvember í fyrra. Salan í verslununum tveimur á því tímabili nam um 56 milljónum sænskra króna sem jafn­gildir tæplega 670 milljónum íslenskra króna. Það samsvarar um 3,6 milljónum króna á verslun á dag.

Dróst salan saman um 6,7 prósent frá fyrri fjórðungi, sem náði frá 1. desember til 28. febrúar, en þá seldi H&M fatnað fyrir alls 715 milljónir króna. Alls seldi H&M föt fyrir ríflega 2.500 milljónir króna hér á landi frá opnun 26. ágúst í fyrra til 31. maí. Hefur meðal­velta á verslun á dag því verið um 4,5 milljónir króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár