H&M opnar í Smáralind í ágúst

Fyrsta verslun fatarisans sem opnar hérlendis mun verða 3.000 fermetrar, staðsett í Smáralind og selja allar fatalínur H&M.

Filip Ekvall, svæðisstjóri H&M í Noregi og á Íslandi.
Filip Ekvall, svæð­is­stjóri H&M í Noregi og á Íslandi.

Fyrsta H&M verslunin á Íslandi verður opnuð í Smáralind í ágúst. Frá þessu er greint í tilkynningu frá verslana­keðjunni. Þar er haft eftir Filip Ekvall svæðis­stjóra, H&M í Noregi og á Íslandi, að verslunar­keðjan hafi lengi vitað að beðið hafi verið eftir komu hennar hingað til lands. Hann segir í tilkynningu að fyrir­tækið hlakki mikið til að geta hrifið með sér þjóðina og staðið undir væntingum.

Búið er að ráða starfs­fólk í fyrir­hugaðar verslanir H&M á Íslandi og segir Ekvall að keðjan hafi fundið frábært teymi. Verslunin sem opnuð verður í Smáralind í ágúst mun bjóða upp á allar fatalínur H&M, þar á meðal dömu- og herra­fatnað, barnaföt, skó, aukahluti, undirföt og snyrti­vörur. Auk þess mun verslunin fá sérstakar línur í sölu eins og H&M Studio og Conscious Exclusive.

Alls er fyrir­hugað að opna þrjár H&M verslanir hérlendis. Hinar tvær verða annars vegar í Kringlunni og hins vegar á Hafnar­torgi í miðborg Reykja­víkur. Í Kringlunni verður opnuð í 2.600 fer­metra versl­un­ar­rými á annarri hæð í norð­ur­lenda Kringl­unnar seinni hluta árs 2017. Áratugum samanb hefur verið rekin Hag­kaups­verslun í rým­inu.

Þrátt fyrir að H&M, sem er ein stærsta fata­versl­un­­ar­keðja heims­ins, hafi aldrei rekið verslun hér á landi, þá hafa rann­­sóknir sýnt að mark­aðs­hlut­­deild fyr­ir­tæk­is­ins í fata­inn­­kaupum Íslend­inga er mikil og stöðug. 

Kjarn­inn fjall­aði um stöð­una eins og hún birt­ist hjá not­endum heim­il­is­fjár­­­mála­hug­­bún­­að­­ar­ins Meniga, fyrir árið 2013. Tæp 37 pró­­sent not­enda Meniga versl­aði í H&M. Tekju­hærri hópar versla mun oftar en þeir tekju­lægri. Þannig versl­uðu 26 pró­­sent tekju­lægsta hóps­ins í H&M í sam­an­­­burði við 47 pró­­sent þeirra tekju­hæstu.

Lít­ill sem eng­inn munur var á með­­­al­­­upp­­­hæð sem keypt var fyrir í hvert sinn eftir tekju­hóp­um, en hún var rúmar 15 þús­und krón­­ur. Sama má segja um heild­­­ar­­­upp­­­hæð sem þeir vörðu í H&M á árinu 2013, en hún nam að með­­­al­tali 32 þús­und krón­­um.

Sé litið til heild­­ar­innar þá var mark­aðs­hlut­­deild H&M 22 pró­­sent í fata­inn­­kaupum Íslend­inga, þrátt fyrir að engin verslun hafi til þess verið stað­­sett á land­inu. Lík­­­legt verður að telj­­ast að inn­­reið H&M hingað til lands geti haft veru­­leg áhrif á verslun hér á landi, sé mið tekið af þessum töl­­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár