Vildu merkja alla HIV-smitaða Íslendinga

Alið var á ofsa­hræðslu. Óttuðust að stór hluti ungs fólk smyndi smitast. Reyndin er sú að 40 hafa dáið á 20 árum. Smitaðir lifa eðilegu lífi.

Freddie Mercury
Freddie Mercury Söngvari Queen smit­að­ist af HIV-veirunni. Hann lést áður en lyf, sem halda sjúk­dómnum niðri, komu til sög­unnar.

Í júní árið 1985 var ríkjandi ótti um að stærstur hluti Íslendinga gæti smitast af eyðni. DV fjallaði um málið og ræddi við yfirlækni á Land­spítalanum sem taldi mikla ógn steðja að. 

„Mér þykir í sannleika sagt of lítið gert úr þeirri hættu er stafað gæti af alnæmi hér á landi. Menn verða að gera sér grein fyrir að mannkynið og þar með islenska þjóðin getur staðið frammi fyrir áður óþekktu ógnar­ástandi, hörmungum sem ekki verður séð fyrir endann á," sagði Þórður Harðarson, prófessor og yfir­læknir, við DV. 

Hann taldi fræði­legan möguleika vera á því að stór hluti ungs fólks smitaðist. „Fræðilega gætum við staðið frammi fyrir því að stór hluti ungs fólks væri smitaður af alnæmi eftir örfáa áratugi," sagði Þórður á þeim tíma.

Þegar þessi ótti var uppi hafði AIDS ekki verið greint í Íslendingi þótt mótefni hefði fundist í fjórum einstaklingum. Í frétt Eiríks Jónssonar blaða­manns í DV er sagt að það væri einungis spurning um tíma hvenær sjúk­dómurinn bærist til Íslands með þessum skelfi­legu afleiðingum. „Ég held að stúlkur sam hafa samfarir við útlendinga geri sér í 95 % tilfella ekki grein fyrir í hvaða hættu þær eru að stefna sjálfum sér,“  sagði Þórður. 

„Ég held að stúlkur sam hafa samfarir við útlendinga geri sér í 95 % tilfella ekki grein fyrir í hvaða hættu þær eru að stefna sjálfum sér.“

Varaði við sýktum vændiskonum 

Fram kom í greininni að ástandið væri einna verst í Danmörku. „Ekki kann ég neina skýringu á því hvers vegna Danir hafa farið svona illa út úr þessu en vera má að frjáls­lyndi þeirra í ástamálum á undan­förnum áratugum valdi þar einhverju,“ sagði Þórður yfir­læknir. Hann varaði sérstak­lega við sýktum vændis­konum sem gætu valdið ægilegu tjóni „séu þær iðnar við störf sín“.

Því er lýst í greininni að uppi hafi verið raddir um að setja smitaða einstaklinga í einangrun strax og greining liggur fyrir. Þá er því velt upp hvort mögulegt sé að lögbinda notkun á smokkum til að hefta útbreiðslu veirunnar. 

„Og hugsanlega ætti fólk alls ekki að hafa samfarir við aðila sem ekki hefur farið í blóðprufu,“ sagði Þórður. 

„Hugsanlega ætti fólk alls ekki að hafa samfarir við aðila sem ekki hefur farið í blóðprufu.“

Merki í nafnskírteini

Hann var spurður um það hvort ekki væri ráðlegt að taka blóðprufu af allri þjóðinni og taka upp einhvers konar skráningu. Og þá hvort ekki ætti að setja merki í nafn­skírteini manna. 

„Það getur komið að því að einhvers konar skráning verði nauðsynleg. Þetta 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Gamla fréttin

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár