Ráðamönnum gengið erfiðlega að finna nýja bandamenn eftir að þeir gömlu hurfu á braut

Staða Íslands hefur gjörbreyst í alþjóða­samhengi, að því er fram kemur í Völundar­húsi utan­ríkismála, og segja má að ráða­mönnum hafi gengið erfiðlega að finna nýja bandamenn eftir að þeir gömlu hurfu á braut eða að endurnýja tengslin við þá gömlu.

Hvernig tryggir Ísland best fram­tíðarhag­muni sína í alþjóða­samfélaginu er umfjöllunar­efnið í lokaþætti Völundar­húss utan­ríkismála Íslands. Í þættinum ræðir Baldur Þórhallsson þátta­stjórnandi og prófessor í stjórnmála­fræði við Háskóla Íslands við þau Höllu Hrund Loga­dóttur orkumála­stjóra og aðjúnkt við Harvard háskóla og Björn Bjarnason fyrr­verandi ráðherra og höfund ítarlegrar skýrsla um utan­ríkismál Íslands.

Í þættinum er meðal annars rætt um helstu áskoranir og tækifæri sem Ísland stendur frammi fyrir í alþjóða­málum, hvernig íslenskum ráða­mönnum hafi gengið að feta sig í alþjóða­samfélaginu frá lokum kalda stríðsins og hvort Ísland hafi tryggt sér bandamenn sem geta aðstoðað við að tryggja hagsmuni sína.

Ríkir óvissa um utanríkisstefnuna?

Fram kemur að allt frá lýðveldis­stofnun til loka kalda stríðsins hafi utan­ríkisstefna Íslands þrjú skýr megin­markmið. Þau hafi falið í sér stækkun land­helginnar, þátttöku í varnar­samvinnu Vestur­landa og bættan markaðs­aðgang fyrir sjávar­afurðir á erlenda markaði – einkum á markaði í Evrópu.

Auk þessa hafi Ísland tekið þátt í norrænni samvinnu, verið í nánum efnahags- og viðskipta­tengslum við Banda­ríkin og gengið til liðs við flestar alþjóða­stofnanir sem settar voru á fót á eftir­stríðs­árunum – án þess þó að taka virkan þátt í þeim. Segja má að þessi skýru markmið utan­ríkis­stefnunnar hafi reynst Íslendingum farsæl. Nú sé hins vegar spurningin hvort óvissa ríki um utan­ríkis­stefnuna og hvort íslenskir ráðamenn hafi náð að fóta sig í breyttri heimsmynd.

Í þættinum kemur jafnframt fram að staða Íslands hafi gjörbreyst og megi jafnvel segja að ráða­mönnum hafi gengið erfiðlega að finna nýja bandamenn eftir að þeir gömlu hurfu á braut eða að endurnýja tengslin við þá gömlu. Deilt sé um hvort leggja beri áherslu á tvíhliða samvinnu við einstök ríki, eins og Banda­ríkin, Kína og Rússland, eða fjölþjóða­samvinnu innan alþjóða­stofnana, eins og við Evrópu­sambandið og þátttöku öryggis­ráði Sameinuðu þjóðanna. Einnig séu mjög skiptar skoðanir uppi um það hvort Ísland geti staðið eitt og sér í alþjóða­samfélaginu eða þurfi á skjóli alþjóða­stofnana eða einstakra ríkja að halda.

Ísland stendur frammi fyrir nýjum áskorunum

Ágrein­ingur kemur fram í þættinum um stöðu Íslands gagnvart Evrópu­sambandinu – mikil­vægasta markaðs­svæði landsins – og að samskiptin við Banda­ríkin virðist fyrst og fremst taka mið að samkeppni Banda­ríkjanna við Kína og Rússland. Banda­ríkin veiti Íslandi ekki lengur efnahagslegt skjól og diplómatíska aðstoð eða skjól í samfélagi þjóðanna.

Þá standi Ísland einnig frammi fyrir nýjum áskorunum í alþjóða­samfélaginu eins og loftslags­vánni, netárásum, upplýsinga­óreiðu og vaxandi flóttamanna­straumi. Áskorunum sem verði að taka afstöðu til. Fyrir utan þetta sé svo spurningin hvaða mála­flokkum Ísland vilji forgangs­raða og hafa áhrif á í samfélagi þjóðanna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár