Súrrealískur Tyrfingur – djarfur og áleitinn!

Leiklistar­gagnrýnandi Kjarnans fjallar um Helgi Þór rofnar eftir Tyrfing Tyrfingsson.

Borgarleikhúsið: Helgi Þór rofnar

Höfundur: Tyrfingur Tyrfingsson

Leik­stjóri: Stefán Jónsson

Leikmynd: Grétar Reynisson

Búningar: Stefanía Adolfs­dóttir

Lýsing: Pálmi Jónsson

Tónlist: Magnús Jóhann Ragnarsson

Myndband: Elmar Þórarinsson

Leikgervi: Margrét Benedikts­dóttir

Hljóðmynd: Garðar Borgþórsson

Leikendur: Hilmar Guðjónsson, Þuríður Blær Jóhanns­dóttir, Bergur Þór Ingólfsson, Hjörtur Jóhann Jónsson, Erlen Isabella Einars­dóttir, Kári Gíslason.

Enn og aftur má segja að Tyrfingur Tyrfingsson hafi komið, séð og sigrað. Enn og aftur lætur hann frá sér fara sögu sem er stærri en söguefnið; Helgi Þór rofnar er kómísk tragedía – kómísk af því Tyrfingi tekst að bregða ljósi fárán­leikans á persónur sínar, tragísk af því hann lætur þær mæta örlögum sínum, taka afleiðingum af fortíðinni og vera of máttvana til að bregða útaf viðjum vanans, sem iðulega snýst um undanlátssemi og meðvirkni. Þetta gerir Tyrfingur fremur áreynslu­laust, saga hans rennur liðlega að ósi og flest ef ekki allt er rökrétt og skiljanlegt, áhugavert, kitlandi, ögrandi. Þótt Tyrfingur ýti persónum sínum út á ystu nöf þá þykir honum vænt um þær, mannssýn hans er húmanísk og uppfull af skilningi. Það er ekki lítils virði fyrir íslenska leikritun og leiklistar­menningu að hafa fengið slíkan liðsmann sem Tyrfing!

Helgi Þór rofnar er fimmta verk Tyrfings Tyrfings­sonar sem sýnt er í Borgar­leikhúsinu; hin fyrri voru Skúrinn á sléttunni, Bláskjár, Auglýsing ársins og Kartöflu­æturnar. Það er svo einnig ánægju­efni að þessi verk eru óðum að rata á leiksvið hér og þar í Evrópu; útrás íslenskra leik­skálda er að komast í endurnýjun lífdaga í samræmi við það sem áður var, þegar Jóhann Sigurjónsson og Guðmundur Kamban voru uppá sitt besta. Seint verður þó Tyrfingur sakaður um að líkjast þeim sem skáld, hvað þá að heimssýn – Tyrfingur er barn okkar tíma og hikar ekki við að rýna í það myrkur sem við okkur blasir þegar við lyftum brúnum og lítum okkar heims­kringlu. Helgi Þór rofnar er síst undan­tekning frá því.

Sjálf leik­myndin verður að áhrifa­ríkri yrðingu – hér er sitt hvoru megin á sviðinu líkbrennslan til vinstra, og bakaríið til hægri. Tveir ofnar líkt og loka fyrir sviðs­rýmið hvor sínu megin, líkbrennslu­ofninn og bakara­ofninn, þar sem annar táknar dauða, hinn líf. Skemmtilegar andstæður og skarpari gerast þær varla. Grétar Reynisson hefur hannað haganlega og vel nýtanlega leikmynd þar sem allt gerist innan ramma, sem umlykur sviðið á milli sviðs og áhorfenda. Bakveggurinn er svo ekki allur þar sem hann er séður; þegar honum er hnikað til verður rýmið órætt og persónurnar geta átt inn- og útkomur eftir þörfum. Lýsing er hugvit­samleg og í samræmi við söguna; hið sama gildir um búninga og gervi. Það er í raun sama hvert litið er, Stefán Jónsson leik­stjóri hefur unnið sitt verk af vandvirkni og listrænni smekkvísi og úr verður ákaflega heil­steypt og vönduð sýning sem allir aðstand­endur mega vera stoltir af.

Sagan snýst um Helga Þór, sem starfar í líkbrennslu- og líksnyrti­stofu föður síns. Hann er í upphafi leiks að stússa yfir líki sem stendur til að jarða þegar dóttir líksins, Katrín, birtist til að kynnast þessum föður sínum, sem hún hefur reyndar mátulegan áhuga á þegar allt kemur til alls. Hins vegar kvikna tilfinningar milli Helga Þórs og Katrínar, þau hafa hist áður og farið vel á með þeim. En Helgi Þór í allt annars konar sambandi við föður sinn, það byggir á kúgun og andlegu ofbeldi sem lýsir sér meðal annars í því þegar faðirinn birtist og spúir hryllilegum spádómum yfir þau skötuhjúin.

Þetta er súrrealískt eins og vænta má af Tyrfingi og hér er teflt saman andstæðum af alls konar tagi – en fyrst og fremst eru það andstæður lífs og dauða. Persónur verksins lúta örlögum sínum og fá þau ekki umflúið. Þetta er rétt eins og í klassískum grískum harmleik, nema þessi gerist í iðnaðar­hverfi í Kópavogi, þar sem sameinast um húsnæðið líkbrennsla og líksnyrti­stofa Jóns, föður Helga Þórs, og bakarí hins nafnlausa bakara – en reynist vera hvort tveggja, fyrrum ástmaður Helga Þórs og elskhugi móður hans. Þetta er auðvitað bæði súrrealískt og bráð­fyndið og má skoða eins táknrænum skilningi og vill – en auðvitað gæti enginn nema Tyrfingur látið sér detta í hug að bakari og líksnyrtir gætu verið slíkt par sem hefði eitthvað að segja áhorfanda um lífið og veru­leikann. En þannig er það í hugar­heimi Tyrfings – Kópavogur er hin fasta stærð, allt annað er reikult, óvænt og óviðjafnanlegt.

Helgi Þór er leikinn af Hilmari Guðjóns­syni, sem sannar hér enn og aftur hvílíkt vald hann hefur á gamanleik sem ber öll merki traustrar hefðar en hefur engu að síður það yfirbragð sem Hilmar einn býr yfir. Hann er, eins og flestir bestu gaman­leikarar sögunnar, full­kominn „underdog“ eða minni­pokamaður – hann er sá, sem öllum leyfist að lúskra á og kúga, hvort sem það er faðirinn eða ástmaðurinn fyrr­verandi, og hann á sér engrar viðreisnar von fyrr en eitthvað það gerist í lífi hans sem hann hefur aðeins þorað að dreyma um. Hér er það Katrín, leikin af Þuríði Blæ Jóhanns­dóttur, sem kveikir þá von að draumurinn geti ræst; hún er stúlkan sem Helgi Þór hitti fyrir nokkru og þau áttu sér eins konar hamingju­stund sem birtist okkur í formi myndbands. Nú birtist hún á líkbrennslu­stofunni, full af lífi, fjöri og seiðandi þokka til að líta á föður sinn látinn, sem Helgi Þór er að snyrta fyrir jarðar­förina. Og Helgi Þór lifnar við; atriðin milli þeirra tveggja einkennast af fegurð og von – en eins og í klassískum ástar­sögum er þessum fallegu elskendum ekki skapað nema að skilja.

Adam var nefnilega ekki lengi í Paradís og svipað má segja um Helga Þór blessaðan. Faðir hans læðist að honum rétt eins og ormurinn forðum og kveður gleði hans niður með voveiflegum spádómi. Og spádómurinn nær tökum á Helga Þór og verður eins og spádómar gjarnan verða – að áhrínsorðum. Meira skal ekki sagt um það, en vissulega er ekki annað hægt en fylgjast með Helga Þór mæta örlögum sínum með spenningi.

Helgi Þór verður í meðförum Hilmars að áhuga­verðri persónu – Hilmar tengir saman á rökréttan og trúverðugan hátt þá kúgun sem hann býr við af hendi föðurins og þann lífskraft sem með honum vaknar í samskiptum hans við hina tilfinninga­lega firrtu Katrínu. Þegar þess er gætt að texti Tyrfings er næsta súrrealískur og á köflum ekki nema tæpt á hvað hugsast getur verið orsök og afleiðing í karakter Helga Þórs, verður afrek Hilmars þeim mun magnaðra og óhætt að segja að hann vinni hér frækilegan leiksigur. Það hlýtur að vera óhætt að ljóstri því upp hér að aldrei hefur slagarinn vinsæli, sem tröllreið óskalögum sjúklinga og sjómanna um langa hríð á öldinni sem leið, verið fluttur jafn eftir­minnilega og Hilmar gerir í hlutverki Helga Þórs. Það atriði eitt er gullkorn sem lifir.

Þuríður Blær fylgir Hilmari fast á eftir og svipað má segja um bakarann, sem í meðförum Hjartar Jóhanns verður bæði ísmeygilegur og andstyggilegur – og alveg ómótstæðilegur! Faðirinn, kúgarinn og andlegi ofbeldis­maðurinn er leikinn af Bergi Þór Ingólfs­syni sem mætti draga úr mestu látunum – það hefur einatt verið sagt um vonskuna og grimmdina að þegar hún er á lágu nótunum er hún hvað hættulegust og spurning hvort ekki hefði farið betur á því hér. Erlen Isabella Einars­dóttir birtist sem hávaðasöm stúlka í tveimur innkomum og gerir það vel, samkvæm sjálfri sér í frekjunni og yfir­ganginum.

Það er full ástæða til að hvetja fólk að sjá verk Tyrfings Tyrfings­sonar, Helgi Þór rofnar. Það er djarft, áleitið og vel skrifað, sýningin öll hin haganlegasta undir styrkri stjórn Stefáns Jónssonar og leik­hópurinn skilar þessari sögu um tengingu nútíma­mannsins við sjálfan sig og aðra. Hér er ekkert dregið undan og það má vel skoða verkið sem spéspegil um okkur, sem sitjum í salnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár