Rúm milljón kvenna og stúlkna hefur misst aðgang að mannúðaraðstoð

„Kvenna­sam­tökin sem eiga í hættu á að verða lokað eru í fremstu víg­línu alvar­leg­ustu mann­úð­ar­kreppu heims,“ segir yfir­maður mann­úð­ar­starfs hjá UN Women. Níutíu pró­sent kvenna­sam­tak­anna segj­ast ekki geta sinnt þjón­ustu sinni. Kyn­ferð­is­of­beldi á átaka­svæðum hefur tvö­fald­ast og færri stúlkur fara í skóla.

Færri konur og stúlkur fá mannúðaraðstoð
Færri konur og stúlkur fá mann­úð­ar­að­stoð Nið­ur­skurður í fjár­veit­ingum hefur haft gíf­ur­lega nei­kvæð áhrif á þjón­ustu­getu kvenna­sam­taka. Mynd: Bashar Taleb/AFP

Að minnsta kosti ein milljón kvenna og stúlkna hefur misst aðgang að mik­il­vægri mann­úð­ar­að­stoð frá kvenna­sam­tökum síðan í jan­úar 2025. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu UN Women. Um 120 millj­ónir kvenna og stúlkna um allan heim þurfa á mann­úð­ar­að­stoð og vernd að halda og hafa 84 pró­sent af kvenna­sam­tökum séð að aukin þörf er á þjón­ustu þeirra. Samkvæmt skýrsl­unni segja þó níu­tíu pró­sent sam­tak­anna að þau hafi ekki getu til að mæta þjón­ustu­þörf­inni. Tvö af fimm sam­tökum búast við því að þurfa að hætta starf­semi sinni tíma­bundið eða var­an­lega innan árs.

Skýrslan skoðar þol­mörk er varða nið­ur­skurð fjár­veit­inga til sam­taka sem sinna konum og stúlkum. Hún byggir á svörum frá 855 sam­tökum sem stýrt er af konum sem og kven­rétt­inda­sam­tökum á krísu- og átaka­svæðum í 52 löndum.

„Kvenna­sam­tökin sem eiga í hættu á að verða lokað eru í fremstu víg­línu alvar­leg­ustu mann­úð­ar­kreppu heims,“ segir Sofia Calltorp, …

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Svona lítur heimur gamalla sjálfhverfra karla og þeirra gilda út.
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár