Magnús Geir verður áfram útvarpsstjóri næstu fimm árin

Fimm ár eru liðin síðar í þessum mán­uði frá því að stjórn RÚV ákvað að ráða Magnús Geir Þórð­ar­son sem útvarps­stjóra, en ráðn­ing­ar­tíma­bilið er fimm ár. Stjórn­ar­for­maður RÚV segir að Magnús Geir muni sitja áfram í emb­ætt­inu næstu fimm árin.

Magnús Geir Þórð­ar­son, sem verið hefur útvarps­stjóri RÚV frá því í mars 2014, mun verða það áfram næstu fimm árin. Þetta stað­festir Kári Jónasson, stjórn­ar­for­maður RÚV, í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Kári segir að það séu engin áform um að aug­lýsa starfið þótt fimm ára ráðn­ing­ar­tíma­bili Magnúsar Geirs ljúki bráð­lega. Hann muni sitja áfram í emb­ætt­inu til árs­ins 2024.

Kári segir að Magnús Geir sé öfl­ugur útvarps­stjóri, það sé mikið um að vera í Efsta­leiti og að lands­menn verði varir við það á hverjum degi. „Stjórnin og hann stefna saman að því marki nú eins og áður að senda út öfl­uga dag­skrá í öllum miðlum Rík­is­út­varps­ins og það er ýmis­legt í far­vatn­inu á nýju ári.“

Tilkynnt var um ráðn­ingu Magnúsar Geirs sem útvarps­stjóra í jan­úar 2014. Hann tók svo form­lega við emb­ætt­inu 1. mars sama ár. Magnús Geir hafði áður verið leik­hús­stjóri Borg­ar­leik­húss­ins.

Staða útvarps­stjóra hafði verið aug­lýst laus til umsóknar í des­em­ber 2013, eftir að Páll Magn­ús­son lét af störfum. Alls sóttu 39 ein­stak­lingar um stöð­una.

Samkvæmt lögum um Rík­is­út­varpið, fjöl­mið­ils í almanna­þágu, er útvarps­stjóri ráð­inn til fimm ára í senn. Hann er fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins, sem er lang­um­svifa­mesta fjöl­miðla­fyr­ir­tæki lands­ins, og æðsti yfir­maður allrar dag­skrár­gerðar. Samkvæmt lög­unum er heim­ilt að end­ur­ráða útvarps­stjóra einu sinni. Stjórn RÚV hefur ákveðið að gera það.

Tekjur fara yfir sjö milljarða

RÚV nýtur þeirrar sér­stöðu á íslenskum fjöl­miðla­mark­aði að vera bæði fjár­magnað úr rík­is­sjóði og geta keppt á sam­keppn­is­mark­aði um tekjur við aðra fjöl­miðla. Á fjár­lögum árs­ins 2018 fékk RÚV til að mynda úthlutað 4,2 millj­örðum króna úr rík­is­sjóði og gera má ráð fyrir því að sam­keppn­i­s­tekjur fyr­ir­tæk­is­ins, sem fel­ast fyrst og síð­ast í sölu aug­lýs­inga og kost­un­ar,hafi verið nálægt 2,5 millj­örðum króna í fyrra, ef miðað er við að fyr­ir­tækið hafi haft sömu tekjur af þeirri starf­semi og árið 2017 að við­bættum 200 millj­óna króna við­bót­ar­tekjum vegna HM í knatt­spyrnu, sem sýnt var á RÚV í fyrra­sum­ar. Alls vinna á annan tug manns í fullu starfi hjá RÚV við að sinna sölu á aug­lýs­ing­um, sölu á efni og leigu á dreifi­kerfi.

Til við­bótar við ofan­greindar tekjur fékk RÚV 222 millj­óna króna fram­lag á fjár­auka­lögum árs­ins 2018.

Í skýr­ingum á fram­lag­inu í frum­varpi til fjár­auka­laga sagði að þetta sé til sam­ræmis við tekju­á­ætlun um inn­heimtar tekjur af útvarps­gjaldi. „Um er að ræða leið­rétt­ingu á lög­bundnu fram­lagi til RÚV en í fjár­lögum árs­ins 2018 var fjár­veit­ing 222 m.kr. lægri en tekju­á­ætlun um inn­heimtar tekjur af útvarps­gjaldi gerði ráð fyr­ir.“

Í fjár­lögum árs­ins 2019 er gengið út frá því að fram­lag rík­is­sjóðs til fjöl­miðl­unar muni hækka um 534 millj­­ónir króna á milli ára, eða um 12,8 pró­­sent. Breyt­ing­una má rekja til 175 milljón króna hækk­­unar á fram­lagi til RÚV vegna sjóðs sem ætlað er að kaupa efni frá sjálf­­stæðum fram­­leið­endum hér­­­lendis og 360 milljón króna hækk­­unar á fram­lagi til RÚV „í sam­ræmi við tekju­á­ætlun um inn­­heimtar tekjur af útvarps­­gjald­i.“

Ljóst er að miðað við þetta munu tekjur RÚV aukast umtals­vert á næsta ári og fara yfir sjö millj­arða króna.

Byggingaréttur og breyttir skilmálar

RÚV hefur getað aukið rekstr­­ar­hæfi sitt með öðrum leiðum en auknum tekjum og fram­lögum á síð­­­ustu árum. Árið 2017 var afkoma RÚV jákvæð um 321 milljón króna og þar skipti hagn­aður af sölu á bygg­inga­lóðum í Efsta­­leiti sköp­um, en heild­­ar­­sölu­verð þeirra var um tveir millj­­arðar króna.

Auk þess samdi RÚV í maí 2018 við Líf­eyr­is­­­sjóð starfs­­­manna rík­­­is­ins (LSR) um að breyta skil­­­málum á skulda­bréfi í eigu sjóðs­ins sem er til­­­komið vegna ógreiddra líf­eyr­is­skuld­bind­inga. Í sam­komu­lag­inu fólst að veru­­lega er lengt í greiðslu­­­ferli bréfs­ins, en loka­gjald­dagi þess er nú 1. októ­ber 2057 í stað 1. apríl 2025. Sam­hliða er höf­uð­­­stóll hækk­­­aður og vextir lækk­­­aðir úr fimm pró­­­sentum í 3,5 pró­­­sent. Þetta mun gera það að verkum að greiðsla skuld­­ar­innar mun teygja sig til nýrra kyn­slóða en fjár­­­magns­­gjöld sem RÚV greiðir árlega munu lækka umtals­vert. Þau voru 282,5 millj­­ónir króna í fyrra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár