Kanna einelti, kynferðislega og kynbundna áreitni á Alþingi

Félags­vís­inda­stofnun hefur umsjón með rann­sókn á starfs­um­hverfi og vinnu­staða­menn­ingu Alþingis. Könnunin er þáttur í því ferli að kort­leggja umfang ofbeld­is­hegð­unar á þjóð­þingum Evrópu.

Alþingi stendur nú fyrir rann­sókn á starfs­um­hverfi og vinnu­staða­menn­ingu Alþingis með sér­stakri áherslu á ein­elti, kyn­ferð­is­lega og kyn­bundna áreitni. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu á vef Alþingis.

Samkvæmt til­kynn­ing­unni hefur Félags­vís­inda­stofnun umsjón með rann­sókn­inni. Um er að ræða net­könnun með spurn­ingum bæði til þing­manna og starfs­manna sem tekur mið af rann­sókn Alþjóða­þing­manna­sam­bands­ins (IPU) og Evr­ópu­ráðs­þings­ins (PACE) á kyn­ferð­is­legri áreitni og ofbeldi á evr­ópskum þjóð­þingum og verða nið­ur­stöður því að hluta til sam­an­burð­ar­hæfar, sam­kvæmt Alþingi.

Í þeirri rann­sókn kom meðal ann­ars fram að 85 pró­sent þing­kvenna í 45 löndum Evrópu hefðu verið beittar kyn­ferð­is­legu ofbeldi, áreitni og kynja­mis­rétti í vinn­unni. Rann­sóknin náði til 123 kvenna og voru tekin við­töl við allar kon­urnar.

Kortleggja umfang ofbeldishegðunar á þjóðþingum Evrópu

Þá verður jafn­framt nýleg rann­sókn sem Félags­vís­inda­stofnun vann fyrir vel­ferð­ar­ráðu­neytið á íslenskum vinnu­mark­aði, Vald­beit­ing á vinnu­stað, höfð til hlið­sjónar og sam­an­burðar.

Könnunin er, sam­kvæmt til­kynn­ingu Alþingis, þannig þáttur í því ferli að kort­leggja umfang ofbeld­is­hegð­unar – svo sem ein­eltis, kyn­ferð­is­legrar og kyn­bund­innar áreitni – á þjóð­þingum Evrópu, en hún er einnig til að afla almennra upp­lýs­inga um Alþingi sem vinnu­stað og sam­eig­in­legt starfs­um­hverfi þing­manna og starfs­manna.

Starfs­menn og þing­menn hafa fengið bréf frá for­seta Alþingis með hvatn­ingu til að taka þátt í könn­un­inni, þar sem bent er á að góð svörun auki veru­lega gæði könn­un­ar­innar og gagn­semi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár