Ráðist á konur í stjórnmálum fyrir það eitt að vera konur

Evr­ópu­ráðs­þingið hefur sam­þykkt þings­á­lyktun og til­mæli til aðilda­rríkja Evr­ópu­ráðs­ins um aðgerðir til þess að berj­ast gegn kyn­ferð­is­legri áreitni og ofbeldi í póli­tík í álf­unni. Kjarninn leit betur á þetta stóra og mik­il­væga mál.

Evrópuráðsþingið í Strassborg
Evr­ópu­ráðs­þingið í Strass­borg Mynd: EPA

Evr­ópu­ráðs­þingið sam­þykkti á vor­þingi sínu í Strass­borg í síð­ustu viku þings­á­lyktun og til­mæli til aðilda­rríkja Evr­ópu­ráðs­ins um aðgerðir til þess að berj­ast gegn kyn­ferð­is­legri áreitni og ofbeldi í póli­tík. Nokkuð var fjallað um málið í íslenskum fjöl­miðlum en ætla má að það sé gríð­ar­lega mik­il­vægt fyrir fjölda fólks sem starfar á þjóð­þingum víðs­vegar um Evrópu.

Þing­flokks­for­maður Pírata og for­maður laga- og mann­rétt­inda­nefndar Evr­ópu­ráðs­þings, Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, var fram­sögu­maður skýrslu um aðgerðir gegn kyn­ferð­is­of­beldi og -áreitni á þjóð­þingum. Hún mælti jafn­framt fyrir þings­á­lykt­un­inni og kom fram með til­mælin til aðild­ar­ríkj­anna.

[adspot]

Kynferðisleg áreitni snýst frekar um völd

Þór­hildur Sunna segir í sam­tali við Kjarnann að skýrslan hafi mikið vægi fyrir ríki sem ekki eru komin jafn langt í jafn­rétt­is­málum og Ísland. „Á mörgum stöðum er kyn­ferð­is­leg áreitni ekki einu sinni við­ur­kennd,“ segir hún.

[quote font="0" align="right“]Á mörgum stöðum er kyn­ferð­is­leg áreitni ekki einu sinni við­ur­kennd.[/quote]

„Þess vegna er þetta svona mik­il­vægt fyrir konur í póli­tík – sér­stak­lega í miðri og aust­an­verðri Evrópu,“ segir hún og bætir því við að kyn­ferð­is­leg áreitni og ofbeldi hafi lítið með kyn­líf að gera og snú­ist frekar um völd. „Það er ráð­ist á þær fyrir það eitt að vera konur í póli­tík,“ segir Þór­hildur Sunna. Þess vegna sé þessi sam­þykkt svo mik­il­væg því þarna fái þessar konur ákveðin verk­færi í hend­urnar. Hún seg­ist vera stolt­ust af því að fá að taka þátt í að gefa þeim það.

Sláandi niðurstöður

Skýrsla Þór­hildar Sunnu byggir á rann­sókn Evr­ópu­ráðs­ins og Alþjóða­þing­manna­sam­bands­ins. Í henni voru tekin við­töl við 123 konur frá 45 Evr­ópu­löndum en 85,2 pró­sent þing­kvenna sögð­ust hafa orðið fyrir and­legu ofbeldi á meðan þær sátu á þingi og 25 pró­sent kyn­ferð­is­of­beldi. Tæp 47 pró­sent kvenna sem spurðar voru höfðu orðið fyrir líf­láts­hót­unum og/eða hót­unum um bar­smíðar og 58 pró­sent þeirra höfðu orðið fyrir árásum á net­inu sem höfðu kyn­ferð­is­legan und­ir­tón.

Tæp 15 pró­sent kvenn­anna sögð­ust hafa orðið fyrir lík­am­legu ofbeldi og 40,5 pró­sent þeirra kváð­ust hafa orðið fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni á meðan þær voru við störf í þing­inu. Í 69 pró­sent til­fella voru karl­kyns þing­menn að verki sam­kvæmt svörum kvenn­anna í rann­sókn­inni.

Áhersla lögð á viðurlög við brotum

Aðgerð­irnar sem sam­þykktar voru í síð­ustu viku eru þrí­þættar. Í fyrsta lagi stendur til að efla fræðslu og rann­sóknir og koma á fót átaks­verk­efnum til vit­und­ar­vakn­ingar. Átakið #Not­In­MyP­ar­li­ament hefur þegar verið sett á lagg­irnar en það snýst um að hvetja þing­menn til að for­dæma áreitni og ofbeldi á þingi.

Í öðru lagi eru gerð til­mæli til aðild­ar­ríkja Evr­ópu­ráðs­ins að setja upp óháða nefnd eða stofnun fyrir þá sem verða fyrir áreitni eða ofbeldi. Sá vett­vangur yrði hugs­aður sem stuðn­ingur við þolendur.

Í þriðja lagi verður lagt til að þing upp­færi siða­reglur sínar og setji lög sem muni ná yfir þing­menn sem og starfs­menn þjóð­þing­anna. Enn fremur verður lögð áhersla á að við­eig­andi við­ur­lög verði sett við slíkri ósæmi­legri hegðun í sam­ræmi við brotið.

[box]

Málið í gegn á methraða

Þór­hildur Sunna seg­ist gríð­ar­lega ánægð með til­mælin. Liðin séu næstum tvö ár frá því metoo-umræður hófust fyrir alvöru án þess að telj­andi við­brögð hafi borist frá Evr­ópu­ráð­inu. Hún bendir á að málið hafi farið í gegnum þingið á met­hraða og telur hún þann árangur vera ærinn. Þings­á­lykt­un­ar­til­lagan sjálf hafi fengið mjög góð við­brögð en 75 þing­menn voru á henni og sam­þykkti yfir­gnæf­andi meiri­hluti hana. „Þetta var tekið alvar­legar og fast­ari tökum en ég átti von á,“ segir hún.

[quote font="0" align="right“]Þetta var tekið alvar­legar og fast­ari tökum en ég átti von á.[/quote]

Hún segir það skipta máli að tala hátt og skýrt um hlut­ina eins og þeir eru en hún hafði upp­lifað að jafn­rétt­is­mál fengju minni athygli á þing­inu.

Varðandi það hvernig Íslend­ingar standa sig í þessum málum þá segir Þór­hildur Sunna að þeir upp­fylli ekki þær kröfur sem ætl­ast sé til. Til að mynda séu engin við­ur­lög við að brjóta gegn fólki og engin sjálf­stæð stofnun sem tekur við ferl­inu. Hún bendir á að sjálf­stæð rann­sókn sé í burð­ar­liðnum um hvernig málum sé nákvæm­lega háttað á Alþingi Íslend­inga og fagnar hún því. Þó sé ýmis­legt ógert.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár