Völundarhús Vanja frænda

Leiklistar­gagnrýnandi Kjarnans fjallar um Vanja frænda eftir Anton Tsjekhov sem sýnt er í Borgar­leikhúsinu.

Borgarleikhúsið: Vanja frændi

Höfundur: Anton Tsjekhov

Þýðing: Gunnar Þorri Pétursson

Leik­stjóri: Brynhildur Guðjóns­dóttir

Leikmynd: Börkur Jónsson

Búningar: Filippía I. Elís­dóttir

Lýsing: Björn Bergsteinn Guðmundsson

Tónlist: Bjarni Frímann Bjarnason

Leikgervi: Elín Sigríður Gísla­dóttir

Hljóð: Þórður Gunnar Þorvaldsson

Leikendur: Jóhann Sigurðarson, Unnur Ösp Stef­ánsdóttir, Katrín Halldóra Sigurðar­dóttir, Sigrún Edda Björns­dóttir, Valur Freyr Einarsson, Hilmir Snær Guðnason, Halldór Gylfason, Margrét Helga Jóhanns­dóttir, Arnar Dan Kristjánsson.

Vanja frændi er eitt af fjórum höfuð­verkum Antons Tsjekhovs, hin eru Máfurinn, Þrjár systur og Kirsuberja­garðurinn; það er óumdeilt að þessi fjögur verk njóta sérstöðu í vestrænni leiklistar­menningu og eru þar af leiðandi sett upp reglulega af leikhúsum um allan hinn vestræna heim. Þá nýtur fyrsta leikrit hans, Platonov, einnig nokkurra vinsælda og er þá ekki minnst á nokkra einþátt­unga hans, sem einnig er hampað og svo smásögur hans.

Það fer að mörgu leyti vel á að taka Vanja frænda til sýninga nú – verkið talar á ýmsan hátt til okkar samtíma og nægir að nefna umhverfis­umræðuna sem Astrov læknir stendur fyrir þegar hann vill ganga í augun á hinni fögru Jelenu með því að sýna henni uppdrætti sína af þróun gróður­fars í sveitinni. Þetta atriði gæti nánast verið skrifað nú, en ekki fyrir rúmum eitthundrað árum og segir það eitt sitthvað um hversu forspár Tsjekhov var og sá fyrir um margt það sem öðrum var hulið og þá má ekki síst þreifa á þessum eigin­leika skáld­skapar hans þegar kemur að hinu mannlega eðli – en hann náði, ásamt þeim Ibsen og Strindberg að lýsa hinn nýju félags­veru sem maðurinn í vestrænum heimi var óðum að breytast í.

En án þess farið sé út í víðtækan samanburð á þessum þremur risum vestrænnar leik­ritunar um aldamótin 1900, má segja að þar sem Ibsen og Strindberg fjalla um nútíma og stöðu persóna sinna í honum, eru persónur Tsjekhovs eru gjarnan firrtar, fastar í fortíð sem á sínum tíma boðaði framtíð sem aldrei varð.

Það var svo í Lista­leikhúsinu í Moskvu undir stjórn föður nútíma leik­listar, Konstantíns Stanislavskí, að leikhúsið braust úr viðjum gamaldags, upphafins leikstíls og náði tökum á þeim sálfræði­lega leikstíl sem varð til þess að texti og samræðu­stíll Tsjekhovs öðlaðist þá dýpt og heimspeki­legu vídd sem gerði persónur hans líkt og af holdi og blóði, sem áhorf­endur gátu skilið og látið sér þykja vænt um. Þetta var ný tegund af realisma, stilltari og hógværari og bar með sér meiri skilning á manninum en áður hafði verið í leik­listinni. Verk Tsjekhovs fólu þar með í sér byltingu sem má að sumu leyti segja að enn sjái ekki fyrir endann á í leiklistar­menningu Vestur­landa. En á sama tíma er komið að endalokum gullaldar rússneskra bókmennta þegar Tsjekhov kemur fram á ritvöllinn og gerist talsmaður þeirra sem sjá á bak keisara­veldinu og upplifa hnignun þess; öld upplausnar og úrkynjunar blasir við og hafi einhvern tímann verið til framtíð er hún endanlega horfin.

Þetta kann að hljóma fremur myrkt og væri það eflaust ef um væri að ræða annan höfund en Tsjekhov – en hann er þvílíkur snillingur að glæða persónur sínar slíku lífi að nánast hver einasta setning sem úr munni þeirra kemur verður að dásamlegri kómík – því hvað er hægt að gera annað en skopast að lífinu þegar ekkert er framundan, ekkert gerist, ekkert breytist.

Vanja frændi gerist á sveita­setri því sem Aleksandr Vladimírovitsj Serebrjakov (Jóhann Sigurðarson), prófessor á eftir­launum hefur erft eftir fyrri konu sína. Hann býr sjálfur í Moskvu ásamt nýrri konu sinni, hinni ungu og fögru Jelenu Andrejevnu (Unnur Ösp Stef­ánsdóttir), en sveita­setrið er rekið af dóttur hans af fyrra hjóna­bandi, Sofíu Aleksandrovnu (Katrín Halldóra Sigurðar­dóttir), kölluð Sonja, og móður­bróður hennar, Ívan Petrovitsj Vojnítskí (Valur Freyr Einarsson). Tekjurnar af sveita­setrinu hafa verið sendar til Moskvu og farið í uppihald prófess­orsins og hans nýju konu.

Ívan Petrovítsj Vojnítskí er kallaður Vanja og er sá frændi, sem leikurinn er nefndur eftir. Það er því nokkuð augljóst að samband þeirra Sonju og Vanja er í brennidepli í þeirri sögu, sem Tsjekhov vill segja. Hann er frændi hennar. Það má þó vekja athygli á því þó ekki sé nema til gamans að heiti verksins á frum­málinu er „Djadja Vanja“, en „djadja“ er eins konar gælunafn barns á þeim manni sem er annað hvort móður- eða föður­bróðir og á sér enga hliðstæðu í íslensku; en notkun gælu­nafnsins bendir þó til hvers eðlis samband þeirra Sonju og Vanja er – þau eru skyld, en ekki jafningjar, í það minnsta ekki tilfinninga­lega.

Á setrinu búa einnig móðir Vanja og hinnar fyrri eiginkonu prófess­orsins, María Vasílevjna Vojnítskaja (Sigrún Edda Björns­dóttir) og fóstran gamla, Marína (Margrét Helga Jóhanns­dóttir); þá koma einnig við sögu Míkhaíl Lvovítsj Astrov, læknir (Hilmir Snær Guðnason) og Ílja Íljítsj Teljegín, kallaður Vaffla (Halldór Gylfason), eignalaus óðals­bóndi. Jefim, vinnu­manni (Arnar Dan Kristjánsson), bregður fyrir af og til.

Það er augljóst að í slíkum hópi, þar sem ættar- og fjölskyldu­tengsl og stéttar­staða eru eins fjöl­breytileg og á köflum flókin, má finna efni í heilmikið drama. Og dramað fer af stað um leið og tvennt gerist: Prófessorinn kemur ásamt hinni ungu fögru eiginkonu sinni til dvalar á sveita­setrinu og tilkynnir þar eftir nokkra dvöl að hann hyggst selja setrið enda lítið á því að græða; þá veldur nærvera hinnar fögru Jelenu því að Astrov læknir fer á fjörur við hana, Sonju til mikillar sorgar, því hún elskar lækninn hita og ástríðu.

Yfir allri atburða­rásinni hvílir svo hin velþekkta „tsjekhovska“ angurværð sem undir­strikar að hér er hver einasta persóna leiksins röng manneskja á röngum stað á röngum tíma. Hér er hvergi að vænta „happy end“. En gleymum ekki því, að Tsjekhov er húmoristi, jafnvel þótt hann hafi enga trú á lukku­legum endalokum. Hann er aukinheldur eins langt frá því að vera kaldhæðinn og unnt er, til þess þykir honum alltof vænt um persónur sínar. Og hann vill að okkur þyki vænt um þær líka.

Þetta er í stuttu máli efniviðurinn sem leik­stjórinn Brynhildur Guðjóns­dóttir og hennar listræna teymi hefur til að vinna úr til að skapa þeirra útgáfu af hugar­heimi Tsjekhovs. Brynhildur kom, sá og sigraði með uppsetningu sinni á Ríkharði III á síðastliðnu leikári, þótti koma með ferska sýn á hinn valda­sjúka Ríkharð og samtíð hans og fékk nær einróma lof fyrir verk sitt.

Það er því spennandi að sjá, hvort hið sama sé uppi á teningnum hér – er Tsjekhov gert bilt við, eða er honum kannski bylt við? Hér skal látið nægja að staðhæfa að sýning Brynhildar ber vitni um mikla og fölskva­lausa virðingu fyrir Tsjekhov sem höfundi og hugmynda­smið. Sagan fær að njóta sín eins og hún er, og færð í búning sem telja má að henti vel þeirri okkar samtíð sem hún er sett niður í – eins og fyrr sagði er Tsjekhov glettilega forspár og framsýnn, sem bendir kannski til þess að manneskjan er sér lík, hvort sem var um þarsíðustu aldamót eða aldamótin seinustu, hvort sem er í rússneskri sveit eða íslenskri höfuðborg, nú, eða þá að það umbreytinga­skeið sem hófst með hnignun keisara­veldisins og uppgangi iðnaðar­samfélagsins er hvergi nærri lokið enn og við erum ennþá manneskjur í leit að lífs­tilgangi.

Þegar gengið er inn í sal Borgar­leikhússins blasir við einhver fegursta mynd sem sá sem hér skrifar hefur séð í leikhúsi – Börkur Jónsson og Björn Bergsteinn Guðmundsson skapa nær dulræna fegurð úr þeirri hnignun sem einkennir allt; flekar úr brún­leitum fjölum sem lýsingin smýgur á milli og sem hægt er að lyfta og láta síga eftir þörfum, móta sviðs­rýmið sem getur ýmist verið úti í garði eða innandyra. Sveita­setrið er sagt stórt, herbergin telja á þriðja tuginn og í þessari leikmynd verða þau að völundar­húsi, galopnu og lokuðu í senn þar sem engin persóna virðist vita í raun hvar hún er stödd, hvaðan hún kemur eða hvert hún er að fara. Einu tilfinningarnar sem brjótast um í manneskjunum er fortíðar­þráin, ástin og vonleysið og það er eins og þessar tilfinningar etji kappi hver við aðra. Fortíðin er að baki, liðin tíð sem mun aldrei koma aftur, ástin leitar án afláts í ranga höfn þar sem enginn er til að fagna henni, vonleysið er eiginlega eina tilfinningin sem hrósar happi með því að allt staðnar – prófessorinn hættir við að selja sveita­setrið og allt getur hrokkið í sama farið á ný.

Leik­hópurinn er samhentur, samstilltur og samtaka um að skapa þau hughrif sem bera rás atburða áleiðis til endaloka; hér skiptir máli að láta ekki hina myrku tóna ná yfir­höndinni, þrátt fyrir vonleysið sem einkennir allar persónur Tsjekhovs og það er óhætt að segja, að leik­hópurinn fleyti sér áfram á öldu­toppum húmorsins án þess að draga nokkuð úr þeim harmi sem hefur hreiðrað um sig í brjósti hvers og eins. Hópurinn er samstilltur og samhljóma, sýningin er öguð og hvert smáatriði styður við þá meginlínu, sem Brynhildur leik­stjóri hefur markað. Og ef rýnt er í þá meginlínu mætti kannski segja að hún sé sú að hvað sem líður vonleysi og lítt breytanlegum aðstæðum erum við þó alltént manneskjur og hér leyfa manneskjurnar sér þó að láta í ljósi ást og löngun hvers til annars og þótt þær þreifingar séu klaufskar, ómark­vissar og vandræðalegar þá mun sá dagur rísa – einhvern tímann, vonandi! – að við rötum út úr völundar­húsinu og lærum að taka við ástinni og gefa hana tilbaka, af því það er nú einu sinni hún sem viðheldur lífinu, er lífið sjálft.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár