Virði veðsettra hlutabréfa lækkaði um 42 milljarða króna á þremur mánuðum

Samhliða því að hlutabréfa­verð hefur fallið skarpt það sem af er ári hefur markaðs­virði þeirra hluta­bréfa sem eru veðsett með beinum hætti lækkað. Hlutfall veðtöku af heildar­markaðs­virði hefur hins vegar hækkað.

Markaðs­virði þeirra hluta­bréfa í Kauphöll Íslands sem veðsett eru með beinum hætti hefur lækkað ansi skarpt á síðustu mánuðum. Í lok mars­mánaðar var það tæplega 294 milljarðar króna og hafði þá aldrei verið hærra frá því að hlutabréfa­markaðurinn var endur­reistur eftir bankahrun. Í lok júní var það hins vegar komið niður í um 252 milljarða króna. Virði veðsettra bréfa hafði því lækkað um rúma 42 milljarða króna á þremur mánuðum, eða 14,3 prósent.

Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Nasdaq Iceland, sem rekur íslensku Kaup­höll­ina.

Nasdaq Iceland birtir ársfjórðungs­lega upplýsingar um heildar­veðsetningu á þeim hluta­bréfum sem skráð eru á mörkuðum Nasdaq Iceland og eru jafnframt rafrænt skráðir hjá Nasdaq verðbréfa­miðstöð. Nánar tiltekið er um að ræða upplýsingar um meðal­veðsetningu allra félaga á hlutabréfa­mörkuðum Nasdaq Iceland, Aðal­markaði og Nasdaq First North, reiknað út frá vægi hvers og eins félags.

Upplýsingar um veðsetningu geta veitt ákveðnar vísbendingar um umfang skuld­setningar á hlutabréfa­markaði, það er hversu mikið fjár­festar hafa fengið að láni til að kaupa í skráðum félögum. Gögnin sýna hins vegar einungis beina veðsetningu, en taka ekki tillit til þess að lánveitandi geti verið með veð í öllum eignum lántakanda, þar með talið hluta­bréfum, né innihalda þau upplýsingar um óbeinar veðtökur með gerð fram­virkra samninga.

Í ljósi þess að umtals­verðir hlutir í skráðum félögum eru skráðir á fjármála­fyrirtæki vegna þess að gerðir hafa verið fram­virkir samningar við viðskipta­vini sem eru í reynd þeir sem taka áhættu af viðskiptunum, liggur fyrir að veðsetning hluta­bréfa er í heild mun meiri en tölur Nasdaq Iceland gefa til kynna.

Mikil veð­­setn­ing á árunum fyrir hrun

Veð­­setn­ing hluta­bréfa var mjög algeng á árunum fyrir hrun, og bjó meðal ann­­ars til mikla kerfis­lega áhættu hér­­­lend­­is. Stór fjár­­­fest­ing­­ar­­fé­lög, sem áttu meðal ann­­ars stóra hluti í bönk­­um, fengu þá lán­aðar háar fjár­­hæðir með veði í bréf­um, til að kaupa önnur hluta­bréf. Þegar eitt­hvað súrn­aði varð keðju­verkun vegna kross­­eign­­ar­halds.

Auk þess lán­uðu íslenskir bankar fyrir hluta­bréfa­­kaupum í sjálfum sér með veði í bréf­unum sjálf­­um. Með því var öll áhættan hjá bönk­­unum sjálfum ef illa færi. Til­­­gang­­ur­inn var að skapa markað fyrir bréf sem engin eðli­­leg eft­ir­­spurn var eft­ir, og þar með til að hafa áhrif á eðli­­lega verð­­mynd­un. Hæst­i­­réttur Íslands hefur kom­ist að þeirri nið­­ur­­stöðu í málum gegn öllum gömlu stóru bönk­­unum þremur að þetta atferli hafi falið í sér mark­aðs­mis­­­not­k­un.

Tekið hefur verið fyrir þessa hegðun með laga­breyt­ingum á und­an­­förnum árum.

Bólumerki

Hlutabréfa­verð hækkaði skarpt á meðan að kórónu­veiru­faraldurinn geisaði af fullum krafti. Á árinu 2020 hækk­aði úrvals­vísi­tala Kaup­hallar Íslands, sem mælir þróun á virði bréfa þeirra tíu félaga sem eru með mestan seljanleika hverju sinni, um 20,5 pró­sent og heild­ar­vísi­tala hluta­bréfa um 24,3 pró­sent.

Í fyrra gekk enn bet­ur. Bréf í öllum félögum á aðal­mark­aði, og öllu nema einu á First North, hækk­uðu. Alls hækk­aði úrvals­vísi­talan um 33 pró­sent og heild­ar­vísi­tala hluta­bréfa um 40,2 pró­sent. Þau tvö félög sem hækk­uðu mest í virði, Arion banki og Eim­skip, tvö­föld­uðu mark­aðsvirði sitt.

Samhliða þessu jókst markaðs­virði veðsettra hluta­bréfa mikið. Frá mars­mánuði 2020 og fram til síðustu áramóta jókst það um rúmlega 107 milljarða króna, eða 65 prósent, og var 273 milljarðar króna. Vert er að taka fram að nýskráningar áttu sér stað í milli­tíðinni sem útskýrir hluta hækkunarinnar.

Hækkunin var drifin áfram af ódýru lánsfé og auknum sparnaði lands­manna, en ekki undir­liggjandi frammistöðu félaganna á markaði. Því bar hún öll merki bólu. Margir bjuggust því við leið­réttingu á virði skráðra hluta­bréfa.

Mikil lækkun það sem af er ári

Á þessu tímabili lækkaði hlutfall beinnar veðtöku mikið og var 10,67 prósent í lok árs í fyrra. Það hafði ekki verið lægra síðan á miðju ári 2017.

Það sem af er þessu ári hefur úrvals­vísitalan hins vegar lækkað hratt, eða um 21,2 prósent. Kjarninn greindi frá því í byrjun síðasta mánaðar að hún hefði lækkað um 10,9 prósent í maímánuði einum saman. Það er mesta lækkun innan mánaðar síðan í maí 2010, eða í tólf ár. Lækkun á virði bréfa í Marel, lang­verðmætasta skráða félagsins á íslenskum hlutabréfa­markaði, hefur leitt þessa þróun.

Þrátt fyrir að lækkunar­hrinan væri hafin á fyrstu mánuðum ársins 2022, og heildar­markaðs­virði hluta­bréfa dróst samhliða saman, jókst virði veðsettra hluta­bréfa frá áramótum og út marsmánuð um 21 milljarð króna.

Síðan þá hefur heildar­virði þeirra hluta­bréfa sem veðsett eru með beinum hætti hins vegar dregist skarpt saman, eða um 42 milljarða króna og hlutfall beinnar veðtöku að sama skapi hækkað upp í 13,2 prósent af markaðs­virði bréfa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár