Vigdís og Kolbrún gagnrýna ráðningu Stefáns en Dagur óskar RÚV til hamingju

Tveir odd­vitar í minni­hluta borg­ar­stjórnar seg­ist ótt­ast að ráðn­ing Stefáns Eiríks­sonar sem útvarps­stjóra verði til þess að það muni halla á frétta­flutn­ing úr borg­ar­stjórn. Dagur B. Egg­erts­son gaf Stefáni sín „bestu með­mæli“ og óskar RÚV til ham­ingju.

Kolbrún Bald­urs­dóttir, odd­viti Flokks fólks­ins í Reykja­vík, gagn­rýnir ráðn­ingu Stefáns Eiríks­sonar í starf útvarps­stjóra RÚV í stöðu­upp­færslu á Facebook, en Stefán hefur und­an­farin ár gegnt starfi borg­ar­rit­ara. Hún telur að minni­hlut­anum í RÚV verði úthúðað á RÚV og að það verði sagðar „bara ein­hverjar engla­fréttir af meiri­hlut­anum í borg­inni.“

Vigdís Hauks­dóttir, odd­viti Mið­flokks­ins í Reykja­vík, skrifar ummæli við stöðu­upp­færsl­una og seg­ist vera sam­mála Kolbrúnu. „Erum allir búnir að gleyma því að hann kall­aði okkur í minni­hlut­anum „tudda á skóla­lóð“. Þetta eru mjög slæmar fréttir fyrir okkur verð ég að segja – hlut­leysi hvað?“.

Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri Reykja­víkur, óskar hins vegar RÚV og stjórn þess til ham­ingju með ráðn­ing­una í stöðu­upp­færslu og segir Stefán vera feng fyrir Rík­is­út­varpið. Að sama skapi skilji hann eftir skarð sem nú þurfi að fylla hjá borg­inni. „Hann hefur verið frá­bær sam­starfs­maður, fyrst sem lög­reglu­stjóri höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, síðan sviðs­stjóri vel­ferð­ar­sviðs borg­ar­innar og síð­ast en ekki síst sem borg­ar­rit­ari og stað­geng­ill borg­ar­stjóra. Hann fékki því mín bestu með­mæli þegar eftir því var leitað, enda á Stefán ekki annað skilið: frá­bær og traustur sam­starfs­maður, leið­togi og heil­steypt mann­eskja svo fátt eitt sé talið - og fjári skemmti­legur í þokka­bót. Til ham­ingju Rúv og gangi þér allt að sólu, kæri Stebbi!“

Stefán hefur aldrei verið kjör­inn full­trúi en starfað sem emb­ætt­is­maður árum saman. Síðustu ár hefur hann verið borg­ar­rit­ari, en hann hefur yfir­um­sjón með mið­lægri stjórn­sýslu og stoð­þjón­ustu á vegum Reykja­vík­ur­borgar og er tengiliður Reykja­vík­ur­borgar við byggða­sam­lög og B-hluta félög. Borg­ar­rit­ari er æðsti emb­ætt­is­maður borg­ar­innar að und­an­skildum borg­ar­stjóra og einn af stað­genglum hans. Undir emb­ætti borg­ar­rit­ara heyrir skrif­stofa borg­ar­stjóra og borg­ar­rit­ara og mann­rétt­inda- og lýð­ræð­is­skrif­stofa.

Stefán skrif­aði stöðu­upp­færslu í lok­aðan Facebook-hóp ­starfs­manna Reykja­vík­ur­borgar þann 21. febr­úar 2019 þar sem hann sagði fáeina borg­ar­full­trúa ítrekað hafa vænt starfs­fólk borg­ar­innar um óheið­ar­leika og vegið með ýmsum öðrum hætti að starfs­heiðri þeirra, bæði beint og óbeint. Sagði hann þessa hegð­un, atferli og fram­komu vera til skammar og um leið til mik­ils tjóns fyrir Reykja­vík­ur­borg, starfs­fólk hennar og íbúa alla. Stefán nefndi hins vegar engan borg­ar­full­trúa í færslu sinn­i, en nokkuð víst er að hann átti þar við full­trúa úr minni­hluta borg­ar­stjórnar, sem höfðu gagn­rýnt starfs­menn borg­ar­innar opin­ber­lega.

Í bréfi Stefáns sem birtir í hinum lok­aða hópi, og bar yfir­skrift­ina „Það er komið nóg“, sagði m.a. orð­rétt: „fáeinir borg­ar­full­trúar hafa ekki látið þar við sitja heldur jafn­framt vegið að ein­stak­lingum, stofn­unum og fyr­ir­tækjum sem unnið hafa með eða fyrir Reykja­vík­ur­borg með sama hætti.

Þessi hegðun, atferli og fram­koma þess­ara fáeinu borg­ar­full­trúa er til skammar og um leið til mik­ils tjóns fyrir Reykja­vík­ur­borg, starfs­fólk hennar og íbúa alla. Til­raunir ann­arra borg­ar­full­trúa, einkum innan meiri­hlut­ans en einnig úr röðum heið­ar­legs stjórn­mála­fólks innan minni­hlut­ans, til að reyna að hemja þessa skað­legu, slæmu og full­kom­lega ómak­legu hegðun hinna fáu, hafa tak­mark­aðan árangur borið. Ábend­ingar til hlut­að­eig­andi frá siða­nefnd Sambands sveit­ar­fé­laga um að fram­ganga af þessum tagi brjóti gegn þeim siða­reglum sem gilda um kjörna full­trúa hafa engin áhrif haft.

Starfs­fólk Reykja­vík­ur­borgar hefur hvorki vett­vang eða tæki­færi til að bera hönd fyrir höfuð sér þegar að þeim er sótt á póli­tískum vett­vangi og í póli­tískum til­gangi. Það hefur til þessa getað treyst á heið­ar­leika þess ágæta fólks sem sóst hefur eftir póli­tískum áhrifum innan borg­ar­innar og að við öll sem störfum í þágu borg­ar­innar gerum það til að þjóna íbúum hennar eins og best verður á kosið. Jafn­framt hefur verið hægt að treysta því að athuga­semdir og gagn­rýni á okkar störf, sem að sjálf­sögðu á rétt á sér, hafi verið sett fram á sann­gjarnan og upp­byggi­legan hátt. Nú blasir hins vegar ný staða við, þar sem fáir borg­ar­full­trúar eitra starfs­um­hverfi starfs­fólks Reykja­vík­ur­borgar með for­dæma­lausri hegðun, atferli og fram­göngu eins og að framan greinir.

Og hvað er þá til ráða?

Hvernig er hægt að stöðva tudd­ann á skóla­lóð­inni?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár