Fannst áhugavert að „hinar hagsýnu húsmæður“ sýndu ríkisfjármálum áhuga – biðst afsökunar

Sex konur og þrír karlar ræddu um verklag við opinber fjármál á Alþingi í gær. „Mér finnst áhugavert hverjir það eru sem sýna mestan áhuga á þessum umræðum, það erum við Njáll Trausti og hinar hagsýnu húsmæður sem eru í stórum hópum hér inni,“ sagði Benedikt Jóhannesson fjármála­ráðherra.

Benedikt Jóhannesson, fjármála- og efnahags­ráðherra, vakti athygli á því að konur sýndu umræðum um verklag við opinber fjármál áhuga í umræðum á Alþingi í gær. „Mér finnst áhugavert hverjir það eru sem sýna mestan áhuga á þessum umræðum. Það erum við Njáll Trausti og hinar hagsýnu húsmæður sem eru í stórum hópum hér inni. Það er þannig að það skiptir afar miklu máli að tala um þetta,“ sagði Benedikt í sérstökum umræðum sem Bjarkey Olsen Gunnars­dóttir, þingkona Vinstri grænna, átti frumkvæði að. 

Uppfært 7. febrúar kl. 18: Benedikt hefur beðist afsökunar á ummælum sínum. Hann skrifar á Facebook: „Í ræðustól Alþingis vísaði ég til þing­kvenna sem hagsýnna húsmæðra. Það var tilraun til þess að gefa hnyttið andsvar við fyrri ræðu, en hún heppnaðist afleit­lega. Um leið og ég heyrði mig segja þetta hugsaði ég: „Þú ert nú ekki alltaf jafn orðheppinn Benedikt.“ Þetta voru kjánaleg ummæli og ég biðst afsökunar á þeim.“

Í upphafs­ræðu sinni velti Bjarkey fyrir sér hvort fram­setningin á fjármála­stefnu ríkis­stjórnarinnar væri til þess fallin að skapa faglega umræðu um málið á þinginu. „Megin­áherslan í fjármála­stefnunni er heildar­afkoma og skuldir, en helstu lykil­tölur eru ekki birtar, t.d. hver lands­fram­leiðslan verður í milljörðum króna. Sú tala er ekki gefin upp í spá Hagstofunnar og öll fram­setning byggir á hlut­föllum en ekki jafnframt á tölum,“ sagði hún og bætti við: „Þar sem fjármála­stefna er bæði ætluð sérfræðingum og almennum borgurum spyr ég fjármála­ráðherra hvort hann telji ekki æskilegt að stefnan verði sett upp samkvæmt báðum aðferðum, bæði út frá gagnsæi og út frá því að auðvelda ólíkum hópum að meta stefnuna.“ 

Í svari sínu sagði Benedikt að saman­burður fjármála­stefnu við rauntölur yrði sýndur í fram­tíðinni. „Við erum ekki komin enn á þann stað að geta sýnt slíkan samanburð vegna þess hve stutt er síðan lögin komust í framkvæmd og engar tölur að bera saman við, en ég er sammála þing­manninum um að slíkur saman­burður er afar mikil­vægur.“

Bjarkey sagði að það hefði loðað við frá því að hún kom fyrst inn á þing 2004 að þing­salurinn tæmdist alltaf þegar farið væri að tala um fjárlög eða fjármál. „Það loðir enn við og núna þegar við ætlum að fara að sýna aukinn aga og aðhald í fjármálum er mikilvægt að sem flestir geti skilið um hvað málið snýst. Til þess þurfum við líka tölur. Ég held að við getum sett þær fram án þess að það sé villandi með því að taka fram með hvaða hætti við ákveðum að gera þær samanburðar­hæfar milli ára.“

Benedikt tók undir þetta. Þá sagði hann áhugavert að sjá fjölda kvenna sýna verklagi við opinber fjármál áhuga en sex konur og þrír karlar tóku þátt í umræðunum. „Þetta er líklegast mikil­vægasta málefni kjör­tímabilsins. Þarna erum við að marka stefnuna, marka rammann, og vel að merkja, þegar búið verður að marka þann ramma er þetta orðið stefna Alþingis og við munum haga okkur í samræmi við hana.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár