Dómgreindin í fríi?

Leiklistar­gagnrýnandi Kjarnans fjallar um Sex í sveit í leik­stjórn Bergs Þórs Ingólfs­sonar í Borgar­leikhúsinu.

Sex í sveit
Sex í sveit Mynd: Borgarleikhúsið

Borgarleikhúsið: Sex í sveit

Höfundur: Marc Camoletti

Íslenskun og stað­færsla: Gísli Rúnar Jónsson

Leik­stjórn: Bergur Þór Ingólfsson

Leikmynd: Petr Hloušek

Búningar: Stefanía Adolfs­dóttir

Leikgervi: Guðbjörg Ívars­dóttir

Hljóð: Þorbjörn Steingrímsson

Leikendur: Jörundur Ragnarsson, Sólveig Guðmunds­dóttir, Sigurður Þór Óskarsson, Vala Kristín Eiríks­dóttir, Katrín Halldóra Sigurðar­dóttir, Haraldur Ari Stef­ánsson.

Það er óskiljanlegt að Borgar­leikhúsið skuli draga upp úr kjallara­geymslum sínum slitinn og aflóga gamanleik löðrandi í afdönkuðum staðalímyndum um kyn og kynhlutverk. Það hefði verið sök sér ef ætlunin hefði verið að sýna þessar gamal­kunnu klisjur og fordóma­fullu mannsýn í nýju ljósi, bregða á þetta hugmynda­fræðilega drasl einhverju nýju sjónar­horni í því skyni að fletta ofan af því, mann­fyrirlitningunni sem það miðlar, innihalds­leysi þess, gagns­leysi og hreinlega skaðsemi. En hér er engu slíku til að dreifa. Sex í sveit er sett upp að því er virðist vegna þess að það var sett upp fyrir einhverjum áratugum og varð vinsælt þá. Í alvöru??? Er hægt að finna aumari afsökun fyrir verkefna­vali??? Eiga áhorf­endur ekkert betra skilið?

Það er sömuleiðis hreint ótrúlegt að leik­stjórinn, Bergur Þór Ingólfsson, skuli setja nafn sitt við þetta verkefnaval og vinnslu þess fyrir leik­sviðið; hann hefur öðrum fremur farið hamförum í að fletta ofan af karl­pungum og kynferðis­afbrota­mönnum í anda metoo-hreyfingarinnar en á nú allt í einu þátt í að bera á borð fyrir almenning hluta af þeirri andlegu næringu sem slíkir menn nærast á og sem myndar þeirra samfélags­legu og andlegu innviði. Með fullum stuðningi og á kostnað Borgar­leikhússins, sem er að minnsta kosti að hluta til rekið fyrir almannafé. Hér hefur dómgreindin svo sannarlega tekið sér ærlegt frí, svo mikið er víst. Og óþarfi að hafa um það fleiri orð – en skömmin hverfur ekki úr veggjum Borgar­leikhússins í bráð!

En svo vikið sé að öðru: Hvernig tekst svo til með leikinn, hvað sem líður því hugmynda­fræðilega hrati sem hann er gegnum­sýrður af?

Sögu­þráðurinn er eins og vera ber í farsa, hæfilega einfaldur en þó þannig að hægt sé að flækja hann þar til allt virðist komið í óleysanlegan hnút sem síðan leysist á endanum þannig að allt falli í ljúfa löð. Hér er það Benedikt, leikinn af Jörundi Ragnars­syni, vel efnaður og velgiftur, sem getur varla beðið eftir því að eigin­konan Þórunn, leikin af Sólveigu Guðmunds­dóttur, komi sér út á flugvöll til að fljúga til Egils­staða til að annast veika móður sína. Benedikt er á nálum af því hann á von á ástkonunni Sóleyju, leikinni af Völu Kristínu Eiríks­dóttur ásamt besta vininum Ragnari, leiknum af Sigurði Þór Óskars­syni; ætlunin er að eiga kósíhelgi í sumar­bústaðnum með ástkonunni og vinurinn Ragnar er skálka­skjólið sem á að þykjast vera kærasti viðhaldsins ef á þarf að halda.

Hér er reyndar veikleiki í söguþræði: Ef eigin­konan er á förum, af hverju þarf þá Ragnar að koma líka til að vera eins og þriðja hjólið í ástar­ævintýri Benedikts? Jú, þegar Þórunn eiginkona fréttir að von sé á Ragnar vill hún hvergi fara af því að Ragnar er nefnilega viðhaldið hennar. Þetta stenst auðvitað enga skoðun, en má svo sem leyfa sér í farsa – en til að fela slíkar veilur í söguþræði færi betur á að velja annan leikstíl en hér er gert og verður vikið að síðar.

Nú stefnir í að margir vilji eiga kósíhelgi í bústaðnum og hættan blasir við að flett verði ofan af mörgum leyndar­málum. Inn í þennan söguþráð fléttast svo veislu­þjónustu­kokkurinn Sólveig, sem leikin er af Katrínu Halldóru Sigurðar­dóttur og í litlu hlutverki í lokin birtist eigin­maður hennar, Benóný, leikinn af Haraldi Ara Stef­ánssyni.

Það er segin saga í farsa að persóna, sem lendir í vandræðum vegna lygi grípur til annarrar lygi til að forða sér úr vandræðunum og kemur sér þá einfald­lega í enn verri vandræði. Það er nákvæmlega þetta sem gerist allan fyrri hluta leiksins. Benedikt grípur til uppspuna, skreytni, skröks, ósanninda og lygi til að forða því að Þórunn komist að leyndar­málinu um ástkonuna; í vel leiknum farsa gerist þessi stig­mögnun létt og lipurlega, Benedikt ætti í raun að finnast hann hafa aðstæður á valdi sínu, enda bendir glæsi­leikinn í sumar­bústaðnum til þess að hann þurfi ekki að biðjast afsökunar á sjálfum sér. Og bendir það ekki til nokkurs sjálfs­öryggis og vellíðunar í eigin ríkidæmi að geta leyft sér að gefa ástkonunni pels uppá einar litlar sexhundruð­þúsund? Þess vegna kemur það ankanna­lega fyrir sjónir að Benedikt er eins og á nálum frá upphafi, tauga­veiklaður og trekktur og hagar sér eins og unglingur sem ekki vill láta standa sig að laumu­reykingum! Benedikt er eins langt og hægt er frá því að vera sá valds­mannslegi karl­hrútur sem finnst ekkert eðlilegra en að hann eigi sér ástkonu og viðhald. Með þessari lögn verður enginn þróun í karakternum, hann verður einvíður og fyrir­sjáanlegur.

Þótt hér hafi Benedikt verið tekinn sem dæmi má svipað segja um aðrar persónur leiksins, einkum þau Ragnar og Þórunni. Þau eru frá upphafi í alltof upptrekktu hugar­ástandi, sektin geislar af þeim og það er alveg augljóst hverjum sem sjá vill að það er eitthvað ekki í lagi. En persónurnar sjá ekki það sem blasir við áhorf­endum, enginn virðist vera upptekinn af neinu öðru en að fela sitt eigið leyndarmál. Með slíkum tökum verður enginn stígandi, engin vaxandi spenna og botninn dettur úr samleik og úr verður fremur afkára­legur ofleikur á köflum sem fær svo á sig fjarstæðu­kenndan blæ þegar Sólveig veislu­þjónustu­kokkur birtist. Katrín Halldóra Sigurðar­dóttir hefur svo sannarlega sýnt og sannað að hún er stórkostleg gaman­leikkona, en hér hefði svo sannarlega mátt draga úr látunum, þegar hún birtist í útidyrunum í mótorhjóla­galla og gengur inn í húsið með stór­karlalegu, vaggandi kúreka­göngulagi – sem ber svo ekkert á þegar á leikinn líður!

Hér hefði á heildina litið þurft að beita mun léttari og tilgerðar­minni leikstíl. Persónur eins og Benedikt, Þórunn og Ragnar verða fyndnar þegar þær missa tökin á aðstæðum eftir að hafa lengi barist við að láta eins og ekkert sé að. Svo gripið sé til líkingar úr myndmáli þöglu myndanna: Það er ekkert fyndið að sjá mann sem hefur fallið eftir að hafa stigið á banana­hýði. Það er fyndið að sjá mann ganga í áttina að bananhýði og finna spenninginn yfir spurningunni hvort hann muni stíga á það eða ekki, hvort hann muni falla eða ekki. Spenningurinn er þeim mun meiri eftir því sem maðurinn er valds­mannslegri, því ekkert er fyndnara en að sjá ríkan mann verða fyrir skakka­falli. Enn fyndnara verður það ef hann sleppur hjá banana­hýðinu en fellur í enn dýpri gryfju fulla af skítugu vatni sem enginn sá fyrir og sem hann þarf svo að klöngrast upp úr.

Þegar tjaldið er dregið frá í Sex í sveit hafa lykil­persónur verksins þegar dottið um banana­hýðið – og fallið í gryfjuna að auki. Þegar þannig er fer húmorinn fyrir lítið, það er ekkert sérlega fyndið að koma þar að í söguþræði þar sem persónur leiksins eru að paufast upp úr drullu­pollinum.

Vala Kristín Eiríks­dóttir á auðveldara viðfangs í hlutverki Sóleyjar ástkonu en geldur að sama skapi fyrir það hvað hún er af hálfu höfundar mikið bimbó. Hlut­verkið hefði örugglega mátt gera beittara og fyrst textinn var stað­færður og aðlagaður íslenskum nútíma hefði að minnsta kosti Sóley mátt vera sterkari rödd hinnar almennu skynsemi, sem líka verður að vera til staðar í almennilegum farsa.

Þegar litið er á umgjörð verksins má segja að leik­myndin er helstil yfir­þyrmandi og óhentug, fjar­lægðir eru miklar og erfitt að skapa þá nánd sem getur orðið hættuleg þegar allir eru að ljúga hver að öðrum. Þá má einnig benda á, að snjall­heimilið, „google home“, hefði mátt fá tilgang í gegnum alla sýninguna, þetta er sniðug hugmynd í upphafi en fjarar út og nýtist ekki atburða­rásinni.

Jæja.

Með tilvísun í upphaf þessarar gagnrýni og það sem sagt er um hugmynda­fræði sögunnar og leik­sýningarinnar er óhjákvæmlegt annað en að beina þeim tilmælum til stjórn­enda Borgar­leikhússins að taka þessa sýningu af dagskrá. Hún er einfald­lega ekki Borgar­leikhúsi sæmandi – allra síst í ljósi þess sem á undan er gengið!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár