Nýliðunarbrestur veldur Hafró áhyggjum

Hlýnun sjávar í íslenskri lögsögu er einn áhrifa­þátturinn sem Hafró fylgist grannt með.

Nýliðunar­brestur er augljóst í nokkrum tegundum, í íslenskri lögsögu, og hefur Hafrannsóknarstofnun, Hafró, miklar áhyggjur af því, af því er fram kom í máli Guðmundar Þórðar­sonar, sviðs­stjóra botnsjávar­sviðs Hafró, þegar veiði­ráðgjöf var kynnt í gær.

Þó Hafró leggi til 3 prósent aukningu í þorki, eða 272.411 tonn, þá staðan á ýmsum öðrum stofnum í lögsögunni áhyggju­efni. Þannig er aflamark í ýsu lækkað um 28 prósent milli ára.

Ráðgjöf Hafrannsókna­stofnunar er byggð á vistkerfis­nálgun innan varúðar­nálgunar við stjórn fiskveiða, og er um hana fjallað ítarlega í gögnum sem fylgja ráðgjöf hvers árs.

Vistkerfis­nálgun hefur verið skilgreind á margan hátt, en megin stefið er að stjórn nýtingar á að tryggja að ekki sé gengið það mikið á vist­kerfið að „gæði þess raskist varanlega í nútíð og framtíð“ eins og segir í umfjöllun Hafró.

Vistkerfis­nálgun á að leiða til sjálf­bærrar nýtingar vist­kerfisins, þ.m.t. fiskveiða. Hafrannsókna­stofnun mun á komandi árum leggja aukna áherslu á þennan þátt ráðgjafar og tengja hefð­bundinni einstofna ráðgjöf sem stofnunin hefur veitt um árabil.

Í umfjöllun Hafró segir að hlýnun sjávar í íslenskri lögsögu hafi leitt til breytinga á útbreiðslu margra stofna, auk þess sem „suðrænir flækingar“ hafi komið inn í lögsöguna í meira mæli en áður. „Hækkandi hitastig í neðri lögum sjávar vestan- og norðan­vert á íslenska land­grunninu hefur leitt til breytinga á útbreiðslu margra botn­fisktegunda. Tegundir sem hafa verið við nyrðri mörk útbreiðslu sinnar á Íslands­miðum og yfirleitt haldið sig í hlýja sjónum sunnan og vestan við landið, t.d. ýsa, skötu­selur, langa, keila, sandkoli og langlúra, hafa stækkað útbreiðslu­svæði sitt réttsælis í vestur og norður eftir land­grunninu og á Norðurmið, og í sumum tilfellum hefur útbreiðslu­svæðið flust til (Ólafur S. Ástþórsson o.fl. 2007; Jón Sólmundsson o.fl. 2010; Héðinn Valdimarsson o.fl. 2012). Áður sjaldgæfir suðrænir flækingar hafa fundist í auknum mæli á svæðinu á undan­förnum árum, en stofnstærð og útbreiðsla ýmissa kaldsjávartegunda hefur minnkað í kjölfar hlýnunar,“ segir meðal annars í umfjöllun Hafró. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár