Fylking Netanyahu leiðir en ekki með meirihluta

Þegar rúmur helm­ingur atkvæða hafði verið tal­inn var fylk­ing Benja­mins Net­anyahu með 55 þing­sæti og stjórn­ar­and­staðan 49. Hvorug fylk­ing virð­ist því eiga auð­velt með að mynda meiri­hluta­stjórn.

Leiðtoginn
Leið­tog­inn Benjamin Net­anyahu, for­sæt­is­ráð­herra Ísraels, talar við stuðn­ings­menn sína í Netanya í aðdrag­anda þing­kosn­ing­anna. Hann hefur verið leið­togi Ísraels með hléum í nær 20 ár. Mynd: JACK GUEZ / AFP

Fylking Benja­mins Net­anyahu for­sæt­is­ráð­herra var með aðeins fleiri atkvæði en stjórn­ar­and­stöðu­fylk­ing keppi­nautar hans þegar helm­ingur atkvæða hafði verið tal­inn í þing­kosn­ing­unum í Ísrael í dag. Hún var þó enn ekki með meiri­hluta á bak við sig.

Kjörsókn var sú mesta í ára­tugi. Kjós­endur lögðu mat sitt á Net­anyahu, sem hefur setið lengst allra for­sæt­is­ráð­herra Ísraels í emb­ætti, beint land­inu skarpt til hægri og hrundið af stað röð árása og inn­rása til að bregð­ast við árás Hamas 7. októ­ber 2023.

Að kosn­ingum loknum hétu bæði Net­anyahu og keppi­nautur hans, Gadi Eisenkot, því að mynda rík­is­stjórn þótt hvor­ugum væri spáð meiri­hluta.

Þegar 51,8 pró­sent atkvæða höfðu verið talin var fylk­ing Net­anyahu með 55 af 120 þing­sætum. Stjórn­ar­and­stöðu­fylk­ing Eisen­kots var með 49 sæti og flokkar araba með 16. Þessar bráða­birgða­tölur gætu breyst eftir því sem fleiri atkvæði verða talin.

Útgöngu­spár höfðu bent til þess að stjórn­ar­and­stöðu­fylk­ing Eisen­kots, fyrr­ver­andi …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár