Skýring

Félag Samherja kvartar yfir að missa kvóta eftir Brexit en berst gegn inn­göngu í Íslands í ESB

Fyr­ir­tæki Samherja í Bret­landi missti mik­inn kvóta sem það fékk frá Evr­ópu­sam­band­inu eftir að landið gekk úr því. Unnið hefur verið að því að tryggja fyr­ir­tæk­inu nýjan þorkskvóta með samn­ingum milli Bret­lands og Noregs. For­stjóri fyr­ir­tækis Samherja, Jane Sandell, hefur kvartað yfir því að útgangan úr Evr­ópu­sam­band­inu hafi kippt rekstr­ar­grund­vell­inum undan fyr­ir­tæk­inu. Samtímis hefur Samherji barist gegn inn­göngu Íslands í sam­bandið með beinum hætti af því það vill ekki missa kvóta hér til ann­arra rikja.
Skýring

Haraldur lagði rík­asta mann í heimi sem baðst afsök­unar og bauð honum áfram­hald­andi vinnu

Haraldur Þor­leifs­son, Halli, spurði Elon Musk fyrir rúmum sól­ar­hring hvort hann væri enn með vinnu hjá Twitter. Ríkasti maður heims hló að honum, hædd­ist að fötlun hans og efað­ist um vinnu­fram­lag Haraldar. Allt opin­ber­lega í tístum á Twitter. Haraldur setti inn þráð þar sem hann lýsti áhrifum fötl­unar sinnar á getu sína til að starfa af auð­mýkt og kall­aði eftir því að Musk greiddi sér það sem gerðir samn­ingar gerðu ráð fyrir. Næstum 50 milljón manns sáu þráð­inn, erlendir fjöl­miðlar fjöll­uðu um hann og Musk hefur nú beðist afsök­unar.
Skýring

Segir Elon Musk hafa hlegið að sér og spyr hvort hann muni ekki borga sam­kvæmt samn­ingi

Haraldur Þor­leifs­son seldi fyr­ir­tækið sitt til Twitter fyrir rúmum tveimur árum. Hann fór fram á að fá greitt sem launa­tekjur og greiða af þeim skatta á Íslandi. Fyrir vikið var hann næst launa­hæsti Íslend­ing­ur­inn í fyrra. Honum hefur nú verið sagt upp hjá Twitter og veltir fyrir sér hvort Elon Musk, einn rík­asti maður í heimi, muni reyna að kom­ast undan því að borga honum það sem eftir stendur af samn­ingi hans.
Skýring

Karlalið í efstu deild í knatt­spyrnu fá 20 millj­ónir í rétt­inda­greiðslur – Kvenna­lið fá 2,5 millj­ónir

Karlalið í efstu deild í knatt­spyrnu fengu átta sinnum hærri rétt­inda­greiðslur en kvenna­lið frá Íslenskum Topp­fót­bolta fyrir síð­asta keppn­is­tíma­bil. Fram­kvæmda­stjóri Íslensks Topp­fót­bolta segir mark­aðs­legar ástæður fyrir þessum mun en að það sé alfarið undir félög­unum sjálfum komið hvernig greiðsl­unni er skipt. KSÍ segir skipt­ing­una á ábyrgð Íslensks Topp­fót­bolta en bendir einnig á að félög­unum sé frjálst að haga skipt­ing­unni að vild.
Skýring

Fjöldi brott­kasts­mála marg­fald­að­ist eftir að Fiski­stofa fór að nota dróna

Veiði­eft­ir­lits­menn hjá Fiski­stofu hafa á und­an­förnum ára­tug oft­ast skráð um eða innan við tíu mál sem varða brott­kast afla á ári hverju. Í upp­hafi þessa árs var byrjað að not­ast við dróna í eft­ir­liti og von­að­ist Fiski­stofa eftir því að sjá úr lofti góða umgengni við sjáv­ar­auð­lind­ina. Þann 25. nóv­em­ber voru málin þar sem ætlað var að afla bæði stórra og smárra skipa hefði verið kastað í sjó­inn þó orðin að minnsta kosti 120 tals­ins. Alls fjögur mál varða brott­kast af skipum af stærstu gerð, sem veiða með botn­vörpu.

Mest lesið undanfarið ár