256 tonn af gömlu kjöti í frystinum

Starfs­fólk danska mat­væla­eft­ir­lits­ins rak í rogastans þegar það opn­aði frysti­geymslu fyr­ir­tækis á Suður-Jótlandi, skömmu fyrir síð­ustu jól og skoð­aði kjöt­fjall sem þar var að finna. Stimpl­arnir sýndu að kjötið var 10 ára gam­alt eða eldra.

256 tonn af gömlu kjöti í frystinum
Frosið kjöt Skare í Danmörku hefur marg­sinnis orðið upp­víst af vafasömum vinnu­brögðum. Mynd: AFP

Danska mat­væla­eft­ir­litið (Fødevarestyrel­sen) hefur, í stuttu máli sagt, eft­ir­lit með fram­leiðslu og geymslu mat­væla. Þar er í mörg horn að líta en starfs­menn eru rúm­lega 1.500. Stofn­unin skipt­ist í fimm deildir, ein þeirra nefn­ist Kød­kontrol og hefur, eins og nafnið gefur til kynna, eft­ir­lit með slát­ur­dýrum og slátrun ásamt holl­ustu­háttum í slát­ur­húsum og kjöt­vinnslum. 

Starfs­fólk mat­væla­eft­ir­lits­ins heim­sækir reglu­lega fyr­ir­tæki um allt land og heim­sókn­irnar eru yfir­leitt ekki til­kynntar fyrir fram.

Meðal þeirra fyr­ir­tækja sem starfs­fólk kjöt­eft­ir­lits­ins hefur heim­sótt á mörgum und­an­förnum árum er kjöt­vinnslu­fyr­ir­tækið Skare í bænum Vejen á Suður-Jótlandi. 

Skare Meat Packers, eins og fyr­ir­tækið heitir fullu nafni, var stofnað árið 1972. Stofn­and­inn var Kurt Skare og hann var jafn­framt fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins í 50 ár. Dóttir hans, Gitte, tók þá við sem fram­kvæmda­stjóri en Kurt er enn þá stjórn­ar­for­maður, „á gólf­inu“ eins og hann komst að orði í við­tali fyrir …

Kjósa
26
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Stefán Hallur Ellertsson skrifaði
    SKARE fékkst í NETTO fyrir nokkrum árum.Viðbjóður !
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár