Danska herinn skortir allt

Það vantar spýtur og það vantar sög segir í þekktu íslensku dæg­ur­lagi. Danski her­inn á kannski spýtur og sög en skortir flest annað, þar á meðal fleiri her­menn. Áratuga nið­ur­skurður segir til sín.

Danska herinn skortir allt
Mikil fækkun Danir reyna nú að gera her­mennsk­una aðlað­andi og sjá til þess að ungt fólk vilji leggja starfið fyrir sig. Mynd: AFP

Fyrir hálfum mán­uði birt­ust á vef­síðu og í sjón­varps- og útvarps­fréttum danska útvarps­ins, DR, fréttir um bágt ástand danska hers­ins. Sumt í þeim fréttum var ekki nýtt af nál­inni en annað hafði ekki verið í hámæli.

Mesta athygli vakti hve margir velja að hætta her­mennsk­unni. Árið 2022 hættu tæp­lega tvö þús­und manns í hernum, þá eru ekki með­taldir þeir sem hættu vegna ald­urs. Ástandið er verst í land­hernum, þar vantar fjórða hvern mann, í flot­anum er ástandið svipað. Herinn er ekki fús að upp­lýsa hvenær sé full­mannað en í umfjöllun danska útvarps­ins kom fram að því fari fjarri að hægt sé að full­manna sam­tímis öll her­skip flot­ans. Að mati sér­fræð­inga sem útvarpið ræddi við þyrfti að fjölga um fimmt­ung í flot­anum til að full­mannað teld­ist. 

Af hverju er ástandið svona?

Eins og stundum þegar stórt er spurt er svarið ein­falt: Gríð­ar­mik­ill nið­ur­skurður árum saman, reyndar ára­tugum saman. Eftir lok síð­ari heims­styrj­aldar tóku þjóðir Evrópu hægt og rólega að rétta úr kútnum, stað­ráðnar í að hild­ar­leik­ur­inn, sem lauk með upp­gjöf Þjóð­verja 1945, skyldi aldrei end­ur­taka sig. Meðal stjórn­mála­manna og almenn­ings ríkti skiln­ingur á nauð­syn þess að byggja upp öfl­ugar varnir og her­búnað.

Á árum kalda stríðs­ins, allt fram til 1990, lögðu margar þjóðir í mik­inn við­búnað, til að bregð­ast við kjarn­orku­vánni, eins og það var gjarnan orðað. Þegar því lauk um 1990 töldu margar þjóðir sig vera komnar á lygnan frið­ar­sjó og í kjöl­farið var farið að draga úr fjár­veit­ingum til her­mála. Danir, eins og margar þjóðir, töldu fjár­munum betur varið til ann­arra verk­efna en hern­að­ar­upp­bygg­ingar og þá hófst nið­ur­skurð­ar­tíma­bil sem segja má að staðið hafi fram á allra síð­ustu ár. Afleið­ing­arnar blasa nú við: skortur á mann­afla, tækja­kost­ur­inn að stórum hluta gam­all og úreltur og húsa­kostur hers­ins ber merki ára­tuga við­halds­leysis, margar bygg­ingar ónot­hæfar vegna leka og myglu. For­svars­menn hers­ins hafa árum saman talað fyrir daufum eyrum stjórn­mála­manna. 

Tveggja prósenta markmiðið árið 2014

Í byrjun sept­em­ber árið 2014 hitt­ust leið­togar Nato-ríkj­anna í bænum Newport í Wales. Fyrr á því sama ári höfðu Rússar ráð­ist inn í Úkraínu og lagt undir sig Krím­skag­ann. Leið­togar Nato ótt­uð­ust að Rússar myndu ekki láta þar við sitja heldur hyggja á frek­ari land­vinn­inga, eins og nú hefur komið á dag­inn. Og hvernig væru Nato-ríkin í stakk búin til að takast á við ógn­ina úr austri var spurn­ingin sem brann á vörum leið­tog­anna. Svarið var að því færi fjarri að í þeim efnum væri allt eins og best yrði á kosið.

2%
Á fundi NATO-ríkja árið 2014 var ákveðið að fjár­veit­ingar til varn­ar­mála ættu að vera 2 pró­sent af vergri þjóð­ar­fram­leiðslu hvers lands.

Anders Fogh Rasmus­sen, sem um þetta leyti var að láta af störfum sem fram­kvæmda­stjóri Nato, ítrek­aði það sem hann hafði margoft sagt varð­andi fram­lög ríkj­anna til her­mála: Þau væru alltof lítil og sífellt yrði erf­ið­ara að snúa tafl­inu við, það myndi koma í bakið á lönd­unum ef ekki yrði brugð­ist við. Á þessum fundi í Wales urðu leið­tog­arnir sam­mála um að stefna að auknum fjár­veit­ingum til varn­ar­mála og miða árlega við 2 pró­sent af vergri þjóð­ar­fram­leiðslu hvers lands. Skuld­bundu sig sem sagt ekki. Tveggja pró­senta við­miðið hafði reyndar oft verið nefnt áður. 

Ákvarðanir til fjögurra ára í senn

Danir hafa haft þann hátt­inn á varð­andi fjár­veit­ingar til varnar- og örygg­is­mála að gera sam­komu­lag á þing­inu, iðu­lega til fjög­urra ára í senn. Oftast hefur verið um að ræða svo­nefnt breitt sam­komu­lag milli stjórnar og stjórn­ar­and­stöðu. Þótt sumir í hópi þing­manna hafi gegnum árin iðu­lega talað mikið og lengi um nauð­syn auk­inna fjár­veit­inga til hers­ins breytti það litlu og 2 pró­senta mark­miðið víðs fjarri árum saman.

Þrátt fyrir að Helle Thorning-Schmidt for­sæt­is­ráð­herra skrif­aði undir „vilja­yf­ir­lýs­ing­una“ í Wales breytti það litlu, árið eftir var nið­ur­skurð­ar­hníf­ur­inn enn á lofti í danska þing­inu og fram­lögin til hers­ins skorin niður um 2,6 millj­arða danskra króna og þá námu fram­lögin um það bil 1,2 pró­sentum af vergri þjóð­ar­fram­leiðslu, óra­langt frá áður­nefndum 2 pró­sentum.

Eftir kosn­ing­arnar í Danmörku 2015 urðu stjórn­ar­skipti, Lars Løkke Rasmus­sen varð for­sæt­is­ráð­herra í minni­hluta­stjórn Venstre. Síðar bætt­ust Íhalds­flokk­ur­inn og Frjáls­ræð­is­banda­lagið í stjórn­ina.  

Í árs­byrjun 2018 gerðu stjórn­ar­flokk­arnir, ásamt sós­í­alde­mókrötum, Radikale Venstre og Danska Þjóð­ar­flokknum sex ára sam­komu­lag um fram­lög til varn­ar­mála, sem nú skyldu aukin í 1,3 pró­sent af vergri þjóð­ar­fram­leiðslu. Eftir mik­inn þrýst­ing frá Banda­ríkj­unum sam­þykkti danska þingið að auka fram­lögin þannig að 2023 næmi upp­hæðin 1,5 pró­sentum af þjóð­ar­fram­leiðsl­unni. Skref í átt­ina að mark­mið­inu í yfir­lýs­ing­unni frá Nato-fund­inum 2014.   

Samkomulag til næstu fjögurra ára  

Samkvæmt áætlun rík­is­stjórn­ar­innar átti að hefja vinnu við gerð sam­komu­lags um varn­ar­mál í byrjun þessa árs. Ýmislegt hefur orðið til að seinka því og vinnan er ekki hafin. Í við­tali við dag­blaðið Berl­ingske fyrir nokkrum dögum sagði settur varn­ar­mála­ráð­herra, Troels Lund Poulsen, að beðið væri eftir gögnum. Hann ítrek­aði sam­komu­lag rík­is­stjórn­ar­flokk­anna um aukin fram­lög til öryggis- og varn­ar­mála á næstu árum en sagði að nið­ur­skurður lið­inna ára­tuga hefndi sín nú.

Margt aðkallandi en starfsmannamálin brýnust

Skömmu eftir síð­ustu ára­mót birt­ist í veftíma­rit­inu OLFI grein eftir Hans Peter Michaelsen hern­að­ar­sér­fræð­ing. Í grein­inni fjallar hann um þann vanda sem danski her­inn stendur frammi fyrir og ráða verður bót á. Hann segir að líkt og með Róm forðum verði ára­tuga fjársvelti og nið­ur­skurður ekki bætt á einum degi. Hann nefnir tíu atriði, sem öll séu mik­il­væg en númer eitt séu starfs­manna­málin og þann vanda sé brýn­ast að leysa.

Allt starfs­fólk hers­ins, segir Hans Peter Michelsen, vinni undir miklu álagi. Álagið valdi því að yngra fólk í hernum gef­ist upp og hætti. Launin séu alltof lág og gera þurfi mögu­legt að greiða auka­lega fyrir ýmiss konar auka­vinnu sem sé ólaunuð í dag. Þótt ein­hvern tím­ann hafi verið litið á her­mennsk­una sem ævi­starf þá sé það ekki þannig lengur. Þess vegna þurfi að grípa til ráð­staf­ana til að draga úr frá­fall­inu, eins og hann orðar það. Hann nefnir líka að fólk sem ræður sig í her­þjón­ustu, um eða innan við tví­tugt, vilji stoppa stutt við. Ástæðan sé sú að her­mennskan seinki hugs­an­legu fram­halds­námi. Ein hug­mynd sem fram hefur komið og ýmsir þing­menn hafa lýst sig fylgj­andi er að þegar ein­stak­lingur hefur gegnt her­mennsku í til­tek­inn ára­fjölda, kannski fjögur til sex ár, fái við­kom­andi laun til að stunda fram­halds­nám. Einnig hefur komið fram sú hug­mynd að her­mennskan gefi til­tek­inn ein­inga­fjölda sem við­kom­andi njóti svo góðs af þegar kemur að fram­halds­námi. 

Í áður­nefndri grein nefnir Hans Peter Michelsen margt annað sem gera þurfi til að efla her­inn. Tækja- og húsa­kostur hers­ins sé alls óvið­un­andi, sam­kvæmt reglum Nato skal her­inn ráða yfir vopnum og vistum sem dugi til mán­aðar átaka, slíkt sé ekki reyndin núna. 

En, und­ir­staðan sé fólkið. Þess vegna þurfi að leggja meg­in­á­herslu á að gera her­mennsk­una aðlað­andi og sjá til þess að ungt fólk vilji leggja starfið fyrir sig.

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PH
    Pétur Hilmarsson skrifaði
    Það sem mætti bæta við þessa frásögn er að Danir tóku hlutfallslega mikinn þátt í stríðunum í Írak og þó sérstaklega Afganistan og stór hluti af útgjöldum hersins fór í þessi ævintýri í stað þess að bæta búnað og mannskap heima fyrir.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár