Fjórum sinnum fleiri sóttu um vernd á Íslandi árið 2022 en á fyrra metári

Næstum fjórir af hverjum fimm sem sóttu um vernd á Íslandi í fyrra koma frá Úkraínu eða Venes­ú­ela. Ísland tók á móti mun færri kvótaflótta­mönnum á árinu 2022 en ári áður.

Fjórum sinnum fleiri sóttu um vernd á Íslandi árið 2022 en á fyrra metári
Flótta­fólk Lang­flestir þeirra sem sækja um vernd á Íslandi koma hingað á grund­velli ákvarð­ana um sér­með­ferð fólks frá tveimur löndum sem teknar voru af rík­is­stjórn þeirra flokka sem ráða á Íslandi í dag. Myndin er frá mót­mælum flótta­fólks á Aust­ur­velli fyrir nokkrum árum, þar sem það mót­mælti aðbún­aði sínum. Mynd: Alma Mjöll

Alls sóttu 4.518 manns um alþjóð­lega vernd á Íslandi í fyrra. Um metár er að ræða, en áður hafði mesti fjöldi sem sótti um vernd innan eins alm­an­aks­árs verið 1.131 árið 2016. Því sóttu fjórum sinnum fleiri um vernd í fyrra en á fyrra metári. 

Þetta kemur fram í nýbirtum tölum Útlend­inga­stofn­unar um fjölda umsækj­enda um alþjóð­lega vernd. 

Þar munar lang­mest um rík­is­borg­ara frá Úkraínu, en alls sóttu 2.345 slíkir um vernd á Íslandi í fyrra. Þeir voru því rúm­lega helm­ingur allra umsækj­enda. Alls bjuggu 239 manns þaðan hér á landi í byrjun des­em­ber 2021 en 2.521 í byrjun þessa árs. Um er að ræða fólk sem er að flýja stríðs­á­stand í Úkra­ínu í kjöl­far inn­rásar Rússa inn í landið þann 24. febr­úar 2022. 

Koma þessa fólks til lands­ins byggir á ákvörðun sem tekin var 4. mars í fyrra þegar Jón Gunn­­ar­s­­son dóms­­mála­ráð­herra ákvað að virkja ákvæði útlend­inga­laga sem fól í sér að mót­­taka flótta­­manna frá Úkra­ínu hér­­­lendis myndi ná til sömu skil­­greindu hópa og þeirra sem Evr­­ópu­­sam­­bandið hafði ákvarð­að. Í til­kynn­ingu vegna þessa sagði: „Þessi aðferð er fyrst og fremst til þess að geta veitt þeim sem flýja Úkra­ínu skjóta og skil­­virka aðstoð, nánar til­­­tekið tíma­bundna vernd, án þess að mót­takan og aðstoðin verði vernd­­ar­­kerfi Íslands ofviða.“

Fleiri frá Venesúela á einu ári en á fyrra metári

Umsóknir frá rík­is­borg­urum ann­arra ríkja en Úkraínu voru 2.173. Þær einar og sér voru næstum tvö­falt fleiri en á fyrra metári, áður­nefndu 2016. Rúmur helm­ingur þessa hóps kom frá einu landi: Venes­ú­ela. Alls ósk­uðu 1.199 manns þaðan eftir vernd á Íslandi í fyrra. Því komu fleiri frá Venes­ú­ela einu saman í leit að vernd á Íslandi á síð­asta ári en ósk­uðu eftir vernd allt árið 2016. 

Þessi mikla aukn­ing í aðsókn fólks þaðan byggir á ákvörðun frá 2018, þegar ákveðið var að Útlend­inga­­stofnun veitti umsækj­endum um alþjóð­­lega vernd frá Venes­ú­ela við­­bót­­ar­vernd með vísan til almennra aðstæðna í heima­­ríki óháð ein­stak­l­ings­bundnum aðstæðum hvers umsækj­anda. Reynt var að breyta þess­­ari fram­­kvæmd frá 1. jan­úar 2022 til að draga úr komu þessa fólks. Kæru­­nefnd útlend­inga­­mála felldi hins vegar úrskurð í júlí síð­­ast­liðnum þar sem stóð að ástandið í Venes­ú­ela hefði ekk­ert lag­­ast frá því að upp­­haf­­lega ákvörð­unin var tek­in, og raunar farið versn­andi „og að umfang og alvar­­leiki glæpa gegn mann­kyni hafi auk­ist.“ Bætt ástand í Venes­ú­ela gat því ekki verið rök­­stuðn­­ingur fyrir því að synja umsækj­endum um við­­bót­­ar­vernd hér á land­i. 

Alls koma um 78,4 pró­sent allra sem sækja um vernd á Íslandi frá þessum tveimur löndum, Úkraínu og Venes­ú­ela, á grund­velli ákvarð­ana um sér­með­ferð fólks þaðan sem teknar voru af rík­is­stjórn þeirra flokka sem ráða á Íslandi í dag. 

Það sem af er árinu 2023 hafa þegar borist 535 umsóknir um vernd. Alls eru 411 þeirra frá Úkraínu eða Venes­ú­ela. 

Fleiri fullorðnar konur en karlar

Alls komu umsækj­endur um vernd frá 63 mis­mun­andi ríkjum. Fyrir utan Úkraínu og Venes­ú­ela komu flestir frá Palest­ínu, eða 232 tals­ins. Slétt hund­rað komu frá Sómalíu, 84 frá Sýrlandi og 73 frá Írak. 

Umsóknum frá ein­stak­lingum sem þegar njóta verndar í öðru ríki fjölg­aði um tæpt hund­rað milli ára, úr 203 í 302, og umsækj­endum frá öðrum ríkjum rúm­lega tvö­fald­að­ist, úr 282 í 596. Með umsækj­endum frá öðrum ríkjum er átt við þá sem koma ekki frá öruggu upp­runa­ríki, ekki frá Venes­ú­ela og njóta ekki verndar í öðru landi.

Umsókn­irnar í heild voru lagðar fram af 3.448 full­orðnum og 1.070 börnum. Karlkyns umsækj­endur voru 2.284, kven­kyns 2.231 og þrír skil­greindu sig kynsegin eða annað. Af full­orðna hópnum sóttu fleiri konur um vernd en karlar. Þar munar reyndar ein­ungis um einn ein­stak­ling, kon­urnar voru 1.723 en karl­arnir 1.722.

Útlend­inga­stofnun gerir ráð fyrir að flótta­fólk sem kemur hingað til lands í leit að vernd verði 4.900 í ár, miðað við óbreytta stöðu í Úkra­ínu og óbreytta stefnu gagn­vart Venes­ú­ela.

Tókum einungis við 34 kvótaflóttamönnum í fyrra

Sam­kvæmt flótta­manna­stofnun Sam­ein­uðu þjóð­anna voru 103 millj­ónir manna á flótta í heim­inum um mitt ár í fyrra. Um 72 pró­sent þeirra komu upp­haf­lega frá fimm lönd­um: Sýr­landi, Venes­ú­ela, Úkra­ínu, Afganistan og Suð­ur­-Súd­an. Fimm lönd taka við 36 pró­sent þessa hóps. Tyrk­land, sem er með sér­stakan samn­ing við Evr­ópu­sam­bandið um að hleypa ekki flótta­mönnum frá Mið­aust­ur­löndum inn, hýsti flesta, eða 3,7 millj­ónir alls. Af ríkjum Evr­ópu­sam­bands­ins stóð Þýska­land með höfuð og herðar yfir aðra og hafði tekið við 2,2 millj­ón­um, eða næstum sex íslenskum þjóð­um. Stór nágranna­ríki landa sem mik­illi flótti er frá; Kól­umbía, Úganda og Pakistan, eru svo hin þrjú sem draga vagn­inn í þessum efn­um.

Fólk á flótta skipt­ist í tvo hópa. Annar er sá sem fjallað var um hér að ofan, og sækir um alþjóð­lega vernd eftir að hafa komið sér hingað til lands að sjálfs­dáðum. Hinn eru svo­kallað kvótaflótta­fólk sem kemur hingað í boði stjórn­valda. Frá því að Ísland byrj­aði að taka á móti slíkum og út árið í fyrra tókum við á móti sam­tals 888 kvótaflótta­­­­mönnum á 62 árum, eða 13,5 að með­­al­tali á ári. Árið 2019 ætl­uðum við að taka á móti 85 en þeir urðu 74 á end­an­um. Ári síðar stóð til að þeir yrðu 100, em þá var ekki tekið á móti neinum. Ástæðan var sögð kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn. Hann stöðv­aði þó ekki nágranna­þjóðir okkar sem tóku á móti sínum kvótum. Árið 2021 tókum við á móti 85 kvótaflótta­mönnum en í fyrra, eftir að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn leið undir lok, fækk­aði þeim í 34 tals­ins. 

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár