Samfélagsmiðlar undirlagðir samanburði á tveimur þekktum konum

Sam­fé­lags­miðl­arnir TikTok, Instagram og Youtube hafa fyllst af mynd­böndum, ásök­unum og grein­ingum á deilum núver­andi og fyrr­ver­andi elskendum poppprins­ins Justin Biebers.

Samfélagsmiðlar undirlagðir samanburði á tveimur þekktum konum

Síðustu vikur hafa sam­fé­lags­miðlar verið und­ir­lagðir undir sam­an­burð á tveimur þekktum konum úr popp­menn­ing­unni. Þetta eru þær Selena Gomez, 30 ára, söng- og leik­kona sem á snyrti­vöru­fyr­ir­tækið Rare Beauty, sem seldi vörur fyrir ríf­lega átta millj­arða íslenskra króna árið 2021, og Hailey Bieber, 26 ára, fyr­ir­sæti og eig­andi nýja snyrti­vöru­fyr­ir­tæk­is­ins Rhode Beauty. Fyrir utan að eiga báðar snyrti­vöru­fyr­ir­tæki eiga þær sam­eig­in­legt að hafa verið í ást­ar­sam­bandi með söngv­ar­anum Justin Bieber. 

Um hvað snýst þetta allt saman?

Justin Bieber hefur sagt að Selena Gomez hafi verið fyrsta ástin í lífi sínu, en aðdá­endur þeirra gáfu þeim gælu­nafnið Jelena. Þau áttu í storma­sömu sam­bandi í tíu ár, hættu oft saman á því tíma­bili og sendu bæði frá sér vin­sæl lög um sam­bandið. Síðasta skiptið sem þau tóku saman var í árs­byrjun 2018.

Á meðan þessu tíma­bili stóð var Justin einnig að hitta aðrar konur, meðal ann­ars Hailey Baldwin. Aðeins tveimur mán­uðum eftir sam­banda­slitin við Selenu árið 2018 til­kynnti hann aðdá­endum sínum að hann hefði beðið Hailey. Þau gengu síðan í hjóna­band í sept­em­ber 2018. Vakti það mikla reiði á meðal aðdá­enda Selenu sem hafa reglu­lega látið heyra í sér síðan, sent Hailey gróf skila­boð og grát­beðið Justin um að byrja aftur með Selenu. Á einum stærsta tísku­við­burði heims, Met Gala, urðu þau hjón fyrir svo miklu aðkasti árið 2021 að tár láku niðar kinnar Hailey. Hún greindi á síð­asta ári frá áhrifum hat­urs­ins á líðan sína í hlað­varps­þætt­inum Call Her Daddy. Sagði hún að þær Selena væru sáttar. Stuttu síðar birt­ist mynd af þeim saman á verð­launa­há­tíð. Allt virt­ist vera gott. 

Nú er frið­ur­inn hins vegar úti, eftir að Hailey var sökum að gera grín að Selenu á Instagram með Kylie Jenner.

Nokkrum dögum áður hafði Selena rutt Kylie úr topp­sæt­inu yfir þá konu sem hafði flesta fylgj­endur á Instagram, eftir að hún sneri aftur inn á þann vett­vang. Þegar hún birti mynd af sér þar sem hún sagð­ist hafa gert mis­tök varð­andi auga­brún­irnar birti Kylie mynd af sér, þar sem hún hafði skrifað texta við auga­brún­irnar með spurn­ingu um hvort þetta gætu verið mis­tök. Hún birti einnig skjá­skot úr mynd­sam­tali við Hailey þar sem búið var að zooma inn á auga­brúnir þeirra beggja. Við­brögðin létu ekki á sér standa. Aðdá­endur Selenu réð­ust að Kylie og Hailey með ljótum skila­boðum á sam­fé­lags­miðlum, auk þess sem þær misstu báðar fylgj­endur og fólk birti myndir af sér henda snyrti­vörum þeirra. Á meðan jókst fylgj­enda­fjöldi Selenu og sömu­leiðis salan á snyrti­vöru­línu hennar. Kylie sagði færsl­una mistúlk­aða, hún hefði aldrei séð auga­brúna-færslu Selenu og ekki verið að skjóta á hana. Selena og Kylie báðu aðdá­endur sína að slaka á. Það var of seint. 

Sam­fé­lags­miðlar hafa síðan und­ir­lagðir af sam­an­burði á milli Hailey og Selenu, gamlar sögur af sam­skiptum þeirra á milli voru rifj­aðar upp, auk þess sem rýnt var í sam­band Justins við þær báðar.

Neytendastríð

Það er ekki nýtt af nál­inni að fjöl­miðlar og fólk almennt stilli tveimur konum upp á móti hvor annarri þegar verið er að berj­ast um athygli eft­ir­sóttra karl­manna. Það sem er nýtt er birt­ing­ar­mynd þess­arar feg­urð­ar­sam­keppni á sam­fé­lags­miðlum og áhrif hennar á neyt­enda­hegðun. Baráttan um Bieber­inn, sem aðal­lega fer fram milli aðdá­enda stjarn­anna, birt­ist í vel­gengni fyr­ir­tækja og vöru­merkja Hailey og Selenu á sam­fé­lags­miðlum.

Á síð­ustu 30 dögum hefur Selena hlotið yfir 19 millj­ónir nýja fylgj­endur á Instagram. Sala á snyrti­vörum Rare Beauty tók ham­skiptum. Notendur á TikTok birta í gríð og erg mynd­bönd af sér skipta út vörum Hailey og Kylie fyrir snyrti­vörur Selenu. Þær hafa báðar tapað milljón fylgj­endum á Instagram. Tölurnar tala sínu máli. Fólk fylgist með. Nýjasta lag Selenu sem kom út á síð­asta ári vann sér inn sæti á vin­sælda­list­anum í Banda­ríkj­unum í byrjun mars. 

Hollusta við Selenu er sýnd með kaupum á vöru. Andúð við Hailey og Kylie birt­ist í förgun á vöru og tapi á fylgj­endum. Búið er að horfa á mynd­bönd sem falla undir myllu­merkið Team­Sel­ena yfir eitt þús­und milljón sinnum á TikTok. Team­Hailey er aðeins með 90 milljón áhorf. Megin til­gangur myllu­merkj­anna er að sýna kon­unum stuðn­ing. Það er gert með því að bera þær saman. Sam­an­burð­ur­inn snýr að útliti og atferli þeirra. Önnur er glötuð, hin er gyðja. Notendur bjóða hver öðrum að velja aðra hvora kon­una, en ekki báðar. Þar er stóru spurn­ing­unni líka varpað fram, hvor gerir Justin ham­ingju­sam­ari?

Hvora konuna viltu?

Und­an­farin ár hefur Hailey hlotið mikið lof meðal ungra kvenna á sam­fé­lags­miðlum fyrir glæsi­legan fata­stíl, fram­úr­skar­andi vel umhirta húð og einkar gott val á gervi­nöglum. Vöru­merki hennar hefur snú­ist um tísku­vit, útlit og hjóna­bandið við Justin. Selena hefur lagt mikið upp úr því að tala um and­lega heilsu opin­ber­lega. Auk vinnu hennar á and­lega svið­inu ber hún undir belt­inu nokkra af stærstu poppsmellum síð­asta ára­tugar ásamt vel liðnum kvik­myndum og þáttum. Hennar vöru­merki snýst um sjálfs­ást, það að rísa upp úr erf­ið­leikum og að fagna göllum sínum. Hún hefur orðið eins­konar and­lit hug­rekkis í Hollywood.

Eig­in­leikar Hailey og Selenu, sem flestir þekkja ekki per­sónu­lega, eru metnir, greindir og gagn­rýndir í hið ítrasta á sam­fé­lags­miðlum. Notendur velja hvor þeirra sé fal­legri og hvor sé með meira tísku­vit. Nið­ur­stöður allra þess­ara grein­inga á sam­fé­lags­miðlum eiga að leiða í ljós hvor konan eigi skilið að njóta vel­gengni í formi fylgj­enda, sölu á snyrti­vörum og ástar Justins. 

Erum við öll með Bieber Fever?

Sjálfur hefur Justin Bieber ekki tjáð sig um málið. Um síð­ustu helgi byrj­aði hann að fylgja fyrr­ver­andi kær­ustu sinni, Selenu, á Twitter. Það eru aug­ljós svik í augum hörð­ustu aðdá­enda Hailey. Hann sleppti því einnig að líka við afmæl­is­upp­færslu Hailey á Instagram. Samkvæmt sam­eig­in­legum aðdá­endum Justin og Selenu er það merki um að hann sé enn ást­fangin af Selenu. Myllu­merkið FreeJustin er með 27 millj­ónir áhorfa. Þar vilja aðdá­endur frelsa hann úr prís­und Hailey. 

Endalok ást­ar­þrí­hyrn­ings­ins eru ekki komin í ljós ennþá. Það er mars 2023, fimm ár eru liðin frá því að Selena og Justin hættu ár síðan og hann hefur verið kvæntur Hailey síðan í sept­em­ber 2018. 

Selena Gomez er með flesta fylgj­endur allra kvenna á Instagram, sölur fyr­ir­tæk­is­ins eru á upp­leið, hún leikur í vin­sælli sjón­varps­eríu og er með lag á vin­sæld­ar­list­anum. En hún er ein­hleyp. Hailey á snyrti­vöru­fyr­ir­tæki sem er minna en eins árs gam­alt, hún heldur áfram að missa fylgj­endur, það er hæðst að henni á net­inu en hún er gift Justin Bieber. Samkvæmt umræð­unni á sam­fé­lags­miðlum á fólk að velja aðra kon­una og halda með henni, eins og verið sé að fylgj­ast með úrslita­leik meist­ara­deil­ar­innar í fót­bolta. Verð­launin eru ást Justin Biebers og aðdá­enda hans.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár